Dagblaðið - 18.05.1981, Page 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. MAl 1981.
15
N
Electrolux:
Taktu eldavélina undir hand-
legginn þegar þú flytur
— kjörin smávél fyrir fólk í leiguherbergjum
I VÖrumarkaðnum sá ég æðislega
sniðuga „ferðaeldavél” (Electrolux).
u
Þetta er hálfgerð dvergvél en tvær
hellur og ofn er meira en nóg til að
útbúa þriggja stjörnu kóngamáltíð.
Hún var ekki stærri en gamaldags út-
varp, svo sem hálfur metri á breidd
og 35 centimetrar á hæð og þykkt.
Það er hægt að setja hana í samband
i venjulega innstungu hvar sem er.
Hún er kjörin fyrir fólk sem býr í her-
bergjum án eldunaraðstöðu. Ekkert
er auðveldara en bera hana burt með
sér, þegar maður flytur. Rauð að lit
kostarhúnkr. 1700.
Sá eða sú sem á slíka vél þarf ekki
að híma einmana yfir súrmjólkur-
diski og brauðsneið, heldur getur
eldað dýrlegar krásir í ofninum og á
plötunum tveimur. Þótt ofninn sé
ekki nógu stór fyrir kalkún, þá má
baka í honum fisk, kjöt og hænsni á
þúsund vegu. Enginn vandi að halda
smáveizlu fyrir „kæróið”.
- IHH
Ekki lengur munaður:
Klukka sem
stjórnar ofninum
— meðan þú ert úti íbæ
Rafmagnsklukka virðist vera orðin
sjálfsögð á allar stærri eldavélar nú
til dags. Hún er tengd við ofninn og
margar húsmæður kveikja á henni í
hvert einasta skipti sem þær setja eitt-
hvað inn í ofninn og láta hana
hringja til að minna sig á að taka það
út. Það er að sjálfsögðu miklu
ánægjulegra heldur en að hrökka við
með skelfingu þegar brunalyktin er
farin að breiðast um íbúðina. Þannig
gat hæglega farið i gamla daga, ef
maðurgleymdi sér.
En þessar klukkur geta gert fleira
en tilkynna hvað tímanum líður. Það
er hægt að stilla þær þannig að þær
kveiki af sjálfsdáðum á ofninum,
þótt enginn sé heima í húsinu, haldi
honúm á vissu hitastigi svo lengi sem
óskað er og slökkvi síðan á honum
þegar maturinn er tilbúinn.
Þetta getur verið alveg óskaplega
þægilegt fyrir okkur sem þurfum að
vera að vinna eða fundast allan dag-
inn og komum dauðþreytt heim á
kvöldin. Mér er sagt að amerískar
húsmæður noti þetta mikið. Þær út-
búa matinn fyrir hádegið, fara síðan
að verzla, spila golf eða liggja í sól-
baði og koma ekki heim fyrr en kom-
inn er tími til að borða.
En við hérna sem ekki erum í golf-
inu þurfum kannski að fara aðeins
fyrr á fætur á morgnana til að útbúa
ofn.éttina.
-IHH
Soóin ýsa og kartöflur er það bezta, sem ég þekki. En þeir sem heldur vilja borða
mat sinn glóðar- eða djúpsteiktan gætu haft ánægju af þessum eldunargræjum frá
Gaggenau: Lengst t.v. er glerblandin ieirplata með tveimur suðureitum, í miöju
glóðarrist, t.h. djúpsteikingarpottur. Verð samtals um kr. 9.400.
verið í einu hólfi, grænmetið eða
kakan í öðru. Verð á slíkum tvöföld-
um ofni er rétt um kr. 7000. Þeir eru
rennilega hannaðir með stórum
svörtum gagnsæjum hurðum.
Þegar reiknaður er út kostnaður
við það að hafa hellur sér og ofn sér,
þá má auðvitað ekki gleyma því að til
að setja þau upp þarf smiði og raf-
virkja. Það er dýrara og snúninga-
samara heldur en að kaupa sér sam-
byggða vél af sígildri gerð og stinga
henni í samband þar sem sú gamla
stóð áður. (Hún er nú væntanlega
komin á haugana. Megi hún hvíla í
friði.)
- IHH
• Lífrænn áburöur - ríkur af bætiefnum sjávar
• Notist ásamt tilbúnum áburöi í matjurtagarða
• Bætir frjómagn jarövegs - Flýtir vexti plantna
• Eykur bragðgæöi og geymsluþol garöávaxta
• Eykur viðnámsþrótt jurta gegn sjúkdómum
TILVALIÐ í HEIMILISGARÐINN, ÞAR SEM GÆÐIN SITJA
í FYRIRRÚMI.
NOTKUNARREGLUR
Á grasflöt.........5kg/100 m2
í jarðvegsblöndur... 1 kg/ 50 I (5 fötur) af moldarblöndu
í safnhaug........10 kg/2Ö0 I af lífrænum úrgangi
í matjurtabeð.....10 kg/ 50 m2 •
INNIHELDUR
% mg/kg
Kofnunarefni (N?) 1,67 Joð I 1000
Fosfór (P2O5) 0,22 Járn Fe 480
Kalí (KaO) 3,8 Mangan Mn 86
Brennisteinn s 1.95 Molybden Mo 2,71
Klór Cl 5,5 Kóbalt Co 4,16
Kalsíum Ca 5,9 Nikkel Ni 13,8
Magníum Mg 1.01 Kopar Cu 10,4.
Natríum Na 4,1 Zink Zn 21
Tin Sn 18,9
Blý Pb 10,57
Inniheldur auk þess plöntuhormóna' o.m.fl.
sem flýta frumuvexti.
Inniheldur engín klórkolvetni.
UMBUÐIR
SÖLUSTAÐIR: KAUPFÉLÖGIN UM LAND
ALLT
REYKJAVÍK: BLÓMAVAL OG SÖLUF. GARÐ-
YRKJUMANNA
ÞÖRUNGAVimSLAN HF.
\
y