Dagblaðið - 18.05.1981, Blaðsíða 16
16
I
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. MAÍ 1981.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
D
* r* <: . “>f X'" , ; \
. - ■ f ; >•* mm, j /á mé
■9 ! í
i II
Þessi myndasyrpa sýnir aðdragandann að þriðja marki Valsmanna svo og markið sjálft. Jón Gunnar Bergs sést á bak við
Stefán markvörð á miðmyndinni. DB-myndir Bjarnleifur.
ÖSTER TÓK AIK
IKENNSLUSTUND
—vann 5-0, en Teitur skoraði ekki
„Þetta gekk mjög vel hjá okkur en
það fór eins og svo oft þegar við vinn-
um stórt að mér tókst ekki að skora,”
sagði Teitur Þórðarson i morgun er við
spjölluðum vlð hann. öster vann AIK f
gærkvöld f Allsvenskan með 5—0 og er
nú eina liðið f deildinni með fullt hús
eftir 5 umferðir.
„Leikurinn var í nokkru jafnvægi
2. deildin:
Aðeins sex
mörk skoruð
Fyrsta umferðin f 2. deild íslands-
mótsins i knattspyrnu var háð um hela-
ina. Úrslit urðu þessi. Haukar — Völsungur 1—1
Keflavik — Fylkir 2—0
Skallagrimur — ÍBÍ 0—0
Þróttur N — Selfoss 2—0
Þróttur R — Reynir, Sand. 0—0
Önnur umferðin hefst 21. maf — á
fimmtudag — með leik Hauka og Kefl-
vfkinga. Siðan verða fjórir leikir um
næstu helgi.
framan af og þeir fengu þá eitt al-
mennilegt marktækifæri — Hörður
Hilmarsson átti það, en tókst ekki að
skora. Siðan tókum við hreinlega öll
völd. Ungur strákur að nafni Nyman
skoraði þrennu og Jan Mattson skoraði
hin tvö,” sagði Teitur.
Úrslit annarra leikja urðu sem hér
segir:
Elfsborg—Kalmar 1—3
Gautaborg—Brage 3—1
Halmstad—Malmö 1—2
Hamarby—örgryte 3—0
Norrköping—Djurgaarden 2—0
Sundsvall—Aatvidaberg 1—1
Sem fyrr segir er öster efst með 10
stig eftir 5 umferðir. Norrköping hefur
8, Sundsvall og Aatvidaberg 7, Brage 6,
Gautaborg, AIK, örgryte, Halmstad,
Malmö og Kalmar öll 4 stig, Hammar-
by og Elfsborg 3 og Djurgaarden 2.
-SSv.
Sigurður var
aftur beztur
—sigraði i Víkurbæjarkeppninni
Slgurður Pétursson, sem vann Fin-
iux-keppnina á Hvaleyrinni um fyrri
helgi, gerði sér lftið fyrir og vann einnig
Vikurbæjarkeppnina sem fram fór f
Leiru um helgina. Lék Sigurður 36 hol-
urnar á 150 höggum, sem er hörkugott
svo snemma sumars.
Blíðskaparveður var báða keppnis-
dagana en 2. og 3. flokkur kepptu á
laugardag. Meistara- og 1. flokkur léku
svo í gær. Þátttakendur voru 105 tals-
ins og áhorfendur fjölmargir báða dag-
ana.
Úrslitin fara hér á eftir:
2. Geirm. Sigvaldason, GS 90 högg
3. Hafsteinn Ingvarsson, GS • 92högg
Fyrir þá sem e.t.v. hafa ekki tekið
eftir því voru leiknar 36 holur í mfl. en
aðeins 18 í hinum. Þetta var ekki stiga-
mót til landsliðs og skýrði það fjarveru
margra sterkra kylfinga. Fyrsta stiga-
mótið er hins vegar um næstu helgi á
Hvaleyrinni, Þotukeppnin.
-SSv.
Meistaraflokkur
1. Sigurður Pétursson, GR 150högg
2. Gylfi Kristinsson, GS 152högg
3. Sigurður Albertsson, GS 154högg
4. Ragnar Ólafsson, GR 154 högg
Þeir Sigurður og Ragnar léku bráða-
bana um 3. sætið og hafði ,,sá gamli”
betur.
1. flokkur
1. Guðmundur Vigfússon, GR 78högg
2. Guðlaugur Kristjánsson, GK 79 högg
3. Ólafur Skúlason, GR 80 högg
2. flokkur
1. Guðbjartur Jónsson, GK 85högg
2. Þorsteinn Björnsson, GK 87 högg
3. Ingi Kr. Stefánsson, GR 87 högg
Þorsteinn vann bráðabana við Inga.
3. flokkur
1. Hannes Ingibergsson, GR 84 högg
Sigurður Pétursson.
KR4NGAR FENGU FLENGINGU
KR-lngar komu niður á jörðina á
laugardag og það ekki með neinni silki-
lendingu eftir 0—3 tap fyrlr Valsmönn-
um. Án Ottós Guðmundssonar var KR-
vörnin eins og höfuðlaus her þótt yfir-
burðir Valsmanna yrðu ekki aigerir
fyrr en i siðari hálfleik.
Leikurinn var ekki nema átta mín-
útna gamall er KR-ingar fengu á sig út-
sölumark af verstu tegund og geta
engum nema sjálfum sér um kennt.
Steves hefur lagt rika áherzlu á
„ítölsku aðferðina”, þ.e. að mark-
vörðurinn gefi knöttinn út til bakvarð-
anna og það gerði Stefán Jóhannsson
markvörður einnig í tilviki sem var
—áttu ekki möguleika gegn f rískum Valsmönnum og töpuðu 0-3
ákaflega hæpið. Hann rúllaði knettin-
um til Barkar sem þegar 1 stað var stíft
pressaður af einum sóknarmanna Vals.
Hann tók þá það ráö aö gefa þvert út
eftir vítateignum til Atla Héðinssonar
sem var rétt utan hans. Áður en hann
gat áttað sig hafði Þorvaldur í. Þor-
valdsson stolið af honum knettinum.
Hann lék síðan rétt inn fyrir vítateiginn
og skoraði með góðu skoti út við stöng,
1—0. Vel gert en að sama skapi nötur-
legt fyrir KR-ingana.
Það sem eftir lifði hálfleiksins áttu
KR-ingar lítiö minna i leiknum. Óskar
átti gott skot yfir og rétt á eftir
skapaðist hætta við Valsmarkið eftir
mistök Ölafs markvarðar. Sæbjörn átti
skot i hliðarnetið og þar fram eftir göt-
unum. Sókn KR-inga var þó ekkl
markviss og færin komu frekar eftir
varnarmistðk en snjallan sóknarleik.
Annað mark Valsmanna kom svo á
59. minútu. Eftir hornspyrnu átti Dýri
Guðmundsson skot að marki af ör-
stuttu færi. Guðjón Hilmarsson
bjargaði meistaralega á llnu — skallaði
upp í þverslána og út — en þaö var
skammgóður vermir. Boltinn hafnaði á
hausnum á Hilmari Harðarsyni sem
þurfti ekki annaö en stanga hann létti-
legainetiö.
Eftir þetta tóku Valsmenn öll völd og
hver sóknarlotan á fætur annarri buldi
á vörn KR sem var satt að segja ólík
sjálfri sér. Þriðja markið var hins vegar
það fallegasta og með fallegri mörkum
sem undirritaður hefur séð. Þorsteinn
Sigurðsson tók þá hornspyrnu. Jón
Gunnar Bergs náöi ekki að hemja
knöttinn inni í teig en sendi hann síðan
út til Hilmars Sighvatssonar á hægri
vængnum. Hann lék á Sigurð Péturs-
son og gaf vel fyrir markið. Þar kom
Dýri Guðmundsson að og átti þrumu-
skot sem skök þverslána. Boltinn barst
af slánni til Jóns Gunnars sem af-
greiddi hann með ekki lausara skoti
upp undir þverslá án þess að Stefán
kæmi vörnum við. öruggur sigur og
ekki er annað hægt að segja en að Vals-
liðið hafi komið rækilega á óvart. Hinu
er hins vegar ekki að neita að KR-ing-
arnir voru slakir.
Beztir þeirra vo'ru Birgir Guðjónsson
og Sæbjörn Guðmundsson. Aðrir lltt
sannfærandi. Hjá Valsmönnum var
hins vegar fleira fyrir augað. Þor-
grímur sterkur í bakvarðarstöðunni og
Dýri mjög sannfærandi. Jón Gunnar
Bergs stefnir rakleiðis í fótspor bróður
síns. Þeir Njáll Eiðsson og Þorvaldur í.
Þorvaldsson einnig sterkir.
- SSv.