Dagblaðið - 18.05.1981, Blaðsíða 21
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. MAÍ1981.
21
6 km ósteyptur vegarkaf li á Kjalarnesi veldur íbúum Grundarhverfis miklu tjóni:
ÞURFA AÐ SKIPTA UM BÍLRÚÐ-
UR ÁRLEGA FYRIR SKODUN
— kaflinn verður
steypturá næstu
þremurárum,
segir
þingmaður
kjördæmisins
„Það tekur því ekki fyrir okkur að
vera að skipta um bílrúður nema einu
sinni á ári, fyrir skoðun, þær brotna
strax aftur. Ég get nefnt sem dæmi að
ég keypti í fyrra nýja rúðu. Þremur
dögum seinna kom fyrsti bresturinn og
þegar ég skipti núna um daginn voru 10
göt á rúðunni. Það eru ekki bara rúð-
urnar sem fara heldur eru bílarnir
okkar allir stórskemmdir,” sagði Jónas
Sigfússon einn íbúa í Grundarhverfi á
Kjalarnesi i samtali við DB.
íbúar í Grundarhverfi hafa myndað
með sér samtök og er Jónas einn af
þremur í stjórn. Samtökin vinna að því
að vegarkafli um 6 km sem liggur á
Kjalarnesi verði lagður varanlegu slit-
lagi. Árið 1973 var vegurinn steyptur
upp í Kollafjörð. í fyrra var vegurinn
síðan steyptur sunnan Arnarholts-
afleggjara inn í Kjós og stóðu þá sex
kílómetrar eftir á milli steyptu kafl-
anna, ósteyptir. Sá kafli liggur framhjá
ibúðarbyggöinni, sem nefnist Grundar-
hverfi.
„Bílar sem fara þama framhjá keyra
eins og þeir séu á hraðbraut yfir
ósteypta veginn. Þarna er skóli rétt hjá
og 50% íbúanna eru börn. Hvergi er
merki um hraðatakmörkun eða
Bíópetersen
kominn heim
Hér stendur Bió-Erlendur hjá vél
Bíópetersens, sem hefur líklega verið
talsvert erfið f meðförum.
Kvikmyndasafni Islands vex ört
fiskur um hrygg. Fyrir stuttu veitti
Erlendur Sveinsson forstöðumaður
safnsins viðtöku kvikmyndatökuvél
þeirri sem P. Petersen, Bíópetersen
öðru nafni, notaði hér á landi á
árunum 1919—1930. Bíópetersen
setti á fót- fyrsta kvikmyndahús
Reykjavikur sem síðar varð Gamla
bíó, en tók auk þess kvikmyndir af
helztu atburðum í bæjarlifinu.
Kvikmyndatökuvélina gaf sonur
Bíópetersens, Jörgen Höberg-Peter-
sen, en samkvæmt upplýsingum
Erlendar Sveinssonar er hún af gerð-
inni Williamson Kinematograph,
fyrir 35 mm filmu. Hún er handsnúin
og með henni fylgja 4 filmuhylki sem
hvert um sig tekur 30 metra filmu.
í haust ætla svo Kvikmyndasafnið
og Gamla bíó að minnast 75 ára af-
mælis bíósins með úttekt á framlagi
Bíópjetersens og vill safnið hvetja alla
sem hafa undir höndum einhverjar
upplýsingar um Bíópetersen og kvik-
myndasýningar í Gamla bíói að hafa
samband við forstöðumann.
- AI
LAOA1600 CANADA
■; ■
Verö fyrir öryrkja
ca kr. 44.700
Munið að varahlutaþjónusta okkar er í sérflokki. — Það var
staðf est í könnun Verðlagsstof nunar.
******************
★
★
★
★
★
★
★
Verð ca kr.;
68.900.- í
Biíreiclar & Lancllninaúanélar hí.
<U,,)aJDIs' SurtiirlamMiraii! !4 - llr>kjaiil> - Simi
aðvörun um að þarna sé þéttbýlis-
kjarni. Þeir voru að hefla veginn í gær
og næstu tvo daga eftir að það er gert
er hann ófær vegna grjótflugs.
Ég ræddi við Jóhann Einvarðsson
þingmann kjördæmisins og fékk það
uppgefið að tveir kílómetrar af þessum
sex veröa steyptir í sumar, frá Kleifum
að Saltvik. Á næsta ári verður lagt á
3—4 km eða frá Saltvik að Vallá og
árið 1983 á að leggja slitlag á þá 700
metra sem eftir verða frá Vallá að
Amarholtsafleggjaranum.
Okkur finnst þetta svolitið sárt þar
sem nnum megin í kjördæminu,
Suðurnesin, er allt bundið varanlegu
slitlagi. Ég frétti það einnig að á næsta
ári á að tengja Reykjavík við Hafnar-
fjörð og á meðan sitjum við eftir með
sárt ennið við einn af umferöamestu
þjóðvegum landsins,” sagði Jónas.
-ELA.
:
:<§sgis>:
Joke
Teg. 10
Brúnt ledur
Steerðir 36 46
Verð kr, 2$S. 70
^ ipr'
Free
Teg. 7 7
Brúnt leður
Stærðir:
36 40 kr .266,60
41 46kr.298.70
mmmm
Litur: Rautt eða
svart Igður.
Nr. 36-40 kr. 285.40
Hvitt leður
Nr. 40-46
Kr. 285.40
POSTSEIMDUM
Skóverz/un
Þórðar Péturssonar
Kirkjustræti 8 v/Austurvö/i — Sími 14181
Laugavegi 95— Sími 13570