Dagblaðið - 18.05.1981, Side 22
22
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 18. MAÍ1981.
33 1/3 sn . . . 33 1/3 sn . . . 33 1/3 sn . . . 33 1/3 sn ... 33 1/3 sn . . .
KfflingJoke:
Fyrir margra hluta
sakir athyglisverð
Það er ekki langt síðan ég vissi
hvorki haus né sporð á hljómsveitinni
Killing Joke. Vafalítið eru fæstir hér-
lendis, sem vita nokkur deili á henni
enda ekki nema von.Hún er tiltölu a'.a
ný af nálinni og ein þeirra hijómsveua
sem spretta upp með hraða gorkúin-
anna í Englandi. Fyrir margra hluta
sakir er hér um nokkuð athyglisverða
hljómsveit að ræða en fyrsta plata
hennar, sem er hér til umfjöllunar,
getur þó ekki talizt neitt meistaraverk.
Það eru þeir Youth (bassi), Jaz
(hljómborð), Geordie (gítar) og Paul
(trommur) sem mynda þennan fjögurra
manna — vægast sagt óvenjulega
kjarna. Það er hins vegar tónlistin en
ekki mennirnir sjálfir, sem hér er til
umræðu.
Auðvitað má eflaust flokka hana
undir „nýbylgju”, sem í raun er anzi
teygjanlegt hugtak. Ef við gefum okkur
það samt að tónlist Killing Joke flokk-
ist undir þann ramma mætti segja að
hér væri á ferðinni, ,þung nýbylgja” og
jafnvel mónótónísk á köflum. Lög KJ
byggjast upp á sterkum trommu- og
bassaleik og eins og hjá svo mörgum
hljómsveitum er fylgja þessari stefnu
tónlistar er pákunotkun trommarans
áberandi. Gítarleikurinn er einfaldur
og hljómborðin lítt áberandi.
Á þessari fyrstu plötu Killing Joke er
að Finna áttq |ög — mjög svo misgóð.
Það lakasta finnst mér vera S. O. 36
þar sem þýzkur útvarpsmaður þylur upp
einhverja romsu, sem „background”.
Deutsch-Englische Freund-schaft?
Áðurnefnt er sennilega eina lagið sem
flokkast undir að vera slakt — aðallega
vegna hræðilega einhæfrar laglínu.
Góðu punktarnir eru tjk ^lögum eins
og Requiem, Bloodsport, The wait og
Complications.
Tónlist Killing Joke er blátt áfram,
einföld en umfram allt kraftmikil. Mér
finnst þó skorts á hugmyndaflugi
gæta í nokkrum laganna og það getur
aldrei talizt kostur. Ég hef enn ekki
heyrt nýju breiðskífu þeirra, sem er rétt
komin út, en að sögn eru tónlistin þar
mjög breytt frá því sem hér um ræðir.
Það getur varla leitt nema til góðs og
sjálfir munu meðlimirnir ekki vera neitt
yfir sig hrifnir af fyrstu plötu sinni.
Það segir e.t.v. meira en mörg orð
vesæls gagnrýnanda. -SSv.
Whitesnake: Comeandgetit
Krafturinn og „þétt-
leikinn” er engu líkur
Shakin Stevens — This Ole House:
PARTÍPLA TA
Það leynir sér ekki þegar hlustað er á
nýjustu breiðskífu Whitesnake, Come
and get it, að þar er valinn maður í
hverju rúmi. Hljóðfæraleikurinn hreint
frábær og söngur Coverdale í senn
geysilega þróttmikill og yfirvegaður.
Það vekur þvi talsverða undrun að
hljómsveitin virðist hafa átt nokkuð
erfitt uppdráttar i heimalandi sínu,
Englandi. Með þessari plötu trúi ég
vart öðru en þeir nái að festa sig al-
mennilega í sessi því þótt Come and get
it sé e.t.v. ekki hrátt bárujárnsrokk er á
ferðinni kraftmikið og geysilega vel
spilað þungarokk. Ég legg áherzlu á að
ég tel þungarokk og bárujárnsrokk
ekki einn og sama hlutinn.
Rokkið hjá Whitesnake er ívið
þunglamalegra án þess að það skemmi
nokkuð fyrir — síður en svo. Mér
heyrist að hljómsveitin sé orðin örlítið
„amerískari” en áður og kemur það
bezt í ljós í laginu Don’t break my heart
again.
Það er David Coverdale, fyrrum
söngvari Deep Purple, sem er drif-
fjöðrin í Whitesnake. Auk söngsins
leggur hann til meirihluta laganna svo
og alla texta. Textar hans eru dálítið
einhæfir — fjalla allir, utan einn, um
samskipti við konur. Innst inni grunar
mann að hann sé að reyna að lýsa eigin
reynslu að einhverju leyti.
Sér til trausts og halds hefur Cover-
dale frábæran mannskap. Ian Paice
lemur húðirnar af snilld eins og hans er
von og vísa og víst er að trommararnir í
rokkinugerast ekki betri. Þriðji fyrrum
meðlimur Purple, Jon Lord, sér um
hljómborðsleik og skilar sínu vel.
Bassaleikarinn Neil Murray er frábær
og bókstaflega drífur hljómsveitina
áfram með krafti sínum. Gítarleikar-
arnir eru tveir, Bernie Marsden, sem
m.a. var í Babe Ruth áður, og Mick
Moody. Einnig þeir eru pottþéttir þótt
hvorugur þurFi í raun að taka neitt
verulega á nema þá helzt í laginu Wine,
women and song. Sumsé, pottþéttur
hljóðfæraleikur.
Come and get it er í raun beint fram-
hald af plötunni Ready and willing.
Breytingir, er ekki mikil og yfirbragðið
nokkuð svipað. Lögin er öll mjög í
anda Coverdale, en Whitesnake er að
mínu mati fantalega gott „band” og
það er leitun að betri hljóðfæraleikur-
um í rokkinu.
Bezta lag plötunnar finnst mér vera,
Wine, women and song. Hot stuff og
Would I lie to you eru einnig mjög góð
og hin koma öll í hnapp á eftir. Ekki
verður svo skilið við plötuna að á
Martin Birch sé ekki minnzt. Hann er
„pródúser” á Come and get it, rétt eins
og á Ready and willing, og það eru ekki
margir sem standast honum snúning.
Krafturinn og „þéttleikinn” er engu
líkur.
-SSv.
The Who—Face Dances:
Þrumandi gott rokk
eins og fyrri daginn
Ég vona að ég deyi áður en ég verð
gamall, sungu The Who árið 1965. Þrír
þeirra eru ennþá á lífi og sennilega hafa
þeir aldrei verið vinsælli en einmitt nú.
The Who eru hiklaust önnur tveggja
virtustu rokkhljómsveita heimsins.
Hversu lengi þeir Pete Townshend,
Roger Daltrey, John Entwistle og
Kenny Jones eiga eftir að starfa saman
er þó ómögulegt að segja um. Fresta
varð Evrópuferð Who núna fyrir
nokkrum vikum vegna óstands og
ósamkomulags fjórmenninganna.
Townshend sagði i viðtali að annað-
hvort hefðu þeir orðið að fresta Evr-
ópuferðinni eða að hætta á að sam-
starfið leystist endanlega upp í miðri
hljómleikaferð.
En hvað sem öllu ósamkomulagi
líður þá er ný LP plata fyrir stuttu
komin á markaðinn með The Who.
Face Dances nefnist hún og inniheldur
níu lög. Sjö þeirra eru eftir Pete
Townshend. John Entwistle er skrif-
aður fyrir tveimur.
Face Dances er kraftmikil rokkplata.
Nokkuð eru lögin þó misgóð. Til
dæmis á Entwistle ekki góðan dag að
þessu sinni. Þau tvö lög sem hann lagði
í púkkið skemma þó engan veginn
heildarmyndina. Hann hefur bara oft
gert miklu betur á eldri plötum.
Townshend svikur ekki frekar en
fyrri daginn. Face Dances hefst á sterk-
asta lagi plötunnar, You Better You
Bet, kraftmiklum rokkara sem mikilla
vinsælda hefur notið vestan hafs að
undanförnu. Lögin Don’t Let Go The
Coat og Daily Records gefa því fyrr-
nefnda lítt eftir. Þarna er svo sannar-
lega engin stelpumússík á ferðinni. Þau
lög, sem eru ótalin, urðu skrifara ekki
LP platan, This Ole House, hefur að
geyma hressilegt rokk og ról upp á
gamla móðinn. Andi Presleys heitins
svífur yfir vötnunum. Sums staðar
læðist meira að segja að manni sá
grunur að búið sé að endursemja
gömul Presleylög. Ekki skemmir það
heldur að Shakin’ Stevens nær
fraseringum rokkkóngsins gamla
prýðilega.
Það er kannski ekki að ófyrirsynju
að söngur Shakin’ Stevens minnir á
rödd Presleys. Þegar söngleikurinn
Elvis var settur á svið í London fékk
hann aðalhlutverkið og þótti standa sig
prýðilega. Þegar sýningum lauk gekk
hann inn í sjónvarpsþáttinn, Oh Boy,
sem Jack Good stjórnar. í nóvember í
fyrra kom út fyrsta LP platan hans. Sú
nefnist Take One. Um það leyti sem
hún kom út stofnaði Stevens hljómsveit
og ferðaðist með henni vítt og breitt um
England. Sú kynning bar þann árangur
að nú er hann orðinn vinsæll rokkari í
heimalandinu og viðar.
Á plötunni, This Ole House, syngur
Shakin’ Stevens tólf lög. Þeirra
þekktust hafa orðið lögin Marie, Marie
og titillagið. Það komst reyndar í efsta
sæd enska vinsældalistans á dögunum.
öll hin lögin á plötunni eru álíka hressi-
leg.
This Ole House krefst einskis af
hlustandanum annars en að hann þarf
að vera hress í skapi þegar hann rennir
plötunni undir nálina. Hér er því um
ákjósanlega dans- og partíplötu að
ræða. Hún ætti að geta komið flestum í
gott stuð.
-ÁT-
eins minnisstæð, ágæt á að hlýða engu
að síður.
The Who er ein af fáum hljómsveit-
um sem tekst að spila af slíkum krafti i
stúdíói að hún gæti allt eins verið á
sviði. Tónlist hennar höfðar til allra
þeirra sem hafa gaman af kraftmiklu
og þéttu rokki. Aldur skiptir þar engu
máli. Þó að Who hafi spilað saman í
sautján ár og eigi vonandi eftir að
halda saman lengi enn þá höfðar hún
jafnt til táninga og jafnaldra þeirra
Townshends, Daltreys, Entwistles og
Jones. Platan Face Dances var gerð
þessum hópi til ánægju.
- ÁT
33 1/3 sn ... 33 1/3 sn . . . 33 1/3 sn . . . 33 1/3 sn . . . 33 1/3 sn . . .