Dagblaðið - 18.05.1981, Side 24
24
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. MAl 1981.
Veðrið
Qert er ráð fyrlr frekar haagH austan-
aða norðaustanátt. Skýjað varður að
mastu á landinu I dag, búast má við
skúrum suðvastanlands an þokuloftl
á noröan- og austanvarðu landinu,
sárstaklega við strandur, en lldega
verður bjart I innsvaltum í dag.
Klukkan 6 var suðaustan 2, þoku-
móða og 8 stig í RaykJavRc, austan 1,
rigning og 6 stlg á Gufuskálum,
breytileg átt 1, alskýjað og 4 stlg á
Galtarvita, norðvestan 2, þoka og 4
stlg á Akureyri, austan 2, þokumóða
og 3 stlg á Raufarhöfn, austan 1,
þoka og 1 stig á Dalatanga, norðaust-
an 3, þokumóða og 6 stlg á Hðfn og
austan 4, þokumóða og 7 stig á Stór-
hðföa.
I Þórshöfn var þokumóða og 8 stlg,
láttskýjaö og 18 stlg í Osló, haiðsklrt
og 13 stlg f Stokkhólmi, skýjað og 9
stig í London, þokumóða og 12 stig f
Hamborg, suld og 10 stlg í Parfs, látt-
skýjaö og 8 stlg f Madrid, skýjað og
14 stig f Lissabon og léttskýjað og 12
stigfNaw York.
Birglr Kristján Hauksson, sem lézt 9.
maí sl., fæddist 23. október 1954 í
Reykjavík. Foreldrar hans voru Mál-
fríður Þórðardóttir og Haukur Guð-
mundsson. Árið 1967 fluttist hann með
móður sinni í Kópavog og bjó þar
síðan. Birgir lauk gagnfræðaprófi í
Kópavogi en auk þess stundaði hann
nám einn vetur í Héraðsskólanum í
Borgarfirði. Birgir stundaði iðnnám
hjá Sindrasmiðjunni en árið 1972 hóf
hann störf hjá Guðmundi Arasyni og
vann hjá honum síðan. Birgir verður
jarösunginn i dag, 18. mai, kl. 13.30
frá Kópavogskirkju.
Vilhjálmur Aðalsteinsson, sem lézt á
Landspítalanum 16. apríl, fæddist 3.
nóvember 1919 á Akureyri. Vilhjálmur
stundaði ýmis störf um ævina og þegar
ÍSAL var stofnað hóf hann störf hjá
fyrirtækinu og starfaði þar til dauða-
dags. Vilhjálmur var tvíkvæntur. Fyrri
kona hans var Borghildur Eggertsdóttir
en þau slitu samvistum.Seinni kona
^iapniin tii .
Vilhjálms var Þorbjörg Guðjónsdóttir.
Vilhjálmur eignaðist 7 börn og eru 6 á
lifi.
Slgmar Friðriksson bakarameistari,
semlézt6. maisl., fæddist31. júlí 1901
á Seyðisfirði. Foreldrar hans voru
Helga Sigurðardóttir og Friðrik Jóns-
son. Sigmar stundaði bakaranám í
Björnsbakaríi í Reykjavík og lauk því
árið 1926. Hann vann við jðn sína
mestan hluta ævi sinnar en vann einnig
almenna verkamannavinnu. Sigmar var
gerður að heiðursfélaga íþróttafélags-
ins Hugins árið 1973. Árið 1929 kvænt-
ist Sigmar Svövu Sveinbjörnsdóttur og
áttu þau 12 börn. Hann var jarðsettur á
Seyðisfirði 16. maí sl.
Friðrik Jóhannesson skipstjóri, sem
lézt 2. maí sl., fæddist 15. maí 1927 á
Fáskrúðsfirði. Foreldrar hans voru
Guðfmna Árnadóttir og Jóhannes
Michelsen. Friðrik fór í Sjómannaskól-
ann og gerðist fljótlega skipstjóri en
eignaðist svo sjálfur bát sem hann
stjórnaði og átti i mörg ár. Síðan
gerðist hann tollvörður og gegndi því
starfi þar til embættið var lagt niður.
Friðrik sat í hreppsnefnd á Fáskrúðs-
firði og einnig kenndi hann sjóvinnslu
við unglingaskólann þar. Hann var
kvæntur Stefaníu Ingólfsdóttur og áttu
þau 4 börn. Friðrik var jarðsunginn 9.
maí sl. frá Búðakirkju.
Ágúst Öskar Sæmundsson rafvirkja-
meistari, sem lézt 8. maí sl., fæddist 27.
ágúst 1911 í Reykjavlk. Foreldrar hans
Andlát
Sveinn Gunnlaugsson skólastjóri, sem
lézt 3. mai, fæddist 17. maí 1889 í Flatey
á Breiðafirði. Foreldrar hans voru
Gunnlaugur Sveinsson og Guðlaug
Gunnlaugsdóttir. Sveinn lauk prófi frá
Kennaraskólanum vorið 1909. Fyrsta
veturinn kenndi hann í Flatey en síöan á
Patreksfirði í 4 ár. 1914—1928 kenndi
Sveinn í Breiðafjarðareyjum en tók
síðan við skólastjórastöðu barnaskól-
ans í Flatey og gegndi því starfi frá
1930 til 1959 er hann lét af störfum
fyrir aldurssakir. Hann annaðist þó
stundakennslu lengur. Árið 1910
kvæntist Sveinn Sigríði Oddnýju Bene-
diktsdóttur, áttu þau 3 börn, hún lézt
árið 1957. Árið 1958 kvæntist Sveinn
önnu Ólafsdóttur, hún lézt árið 1977.
UM
JiELGINA
ÞJÓDLÍF 0G RÚNTURINN
Löður — eitt allra bezta efni sjónvarpsins.
Það var margt gott og einnig margt
slæmt sem sjónvarpið bauð lands-
mönnum að horfa á yfir helgina. Eitt
af því leiðinlegasta sem sjónvarpið
býður upp á er þátturinn Á döfinni
sem samanstendur eingöngu af
fréttatilkynningum,..sem eru lesnar,
og með eru sýndar ljísmyndir, mjög
misjafnar að gæðum.
Skonrokk er aftur á móti þáttur
sem er yfirleitt mjög fagmannlega
unninn. Þar koma fram poppstjöm-
úr sem syngja og flytja lög sín á oft
mjög frumlegan og skemmtilegan
hátt. Ófá lög hafa orðið vinsæl á
þennan hátt og í erlendum sjónvarps-
stöðvum eru þeir farnir að koma með
óskalagaþætti þar sem unga fólkiö
getur bæði séð og heyrt uppáhalds-
lögin sín flutt.
Kvikmynd sjónvarpsins á föstu-
dagskvöldið var í einu orði sagt frá-
bær, mjög raunsæ og góð kvikmynd
og allur leikur fyrsta flokks.
Aðalefni íþróttaþáttarins var enski
bikarúrslitaleikurinn milli Manchest-
er City og Tottenham og verð ég að
segja eins og er að hann olli mér
nokkrum vonbrigðum og bauð ekki
upp á neina sérstaka knattspyrnu.
Hefði Bjarni alveg mátt sleppa því að
sýna leikinn í heild. En ég bíð spennt-
ur eftir seinni leiknum sem sagður er
mjög góður og sýna allt þaö bezta
sem þessi vinsælasta íþrótt heims
getur boðið okkur. Annað efni
íþróttaþáttarins á laugardaginn var í
miklum minnihluta, helzi að borð-
tennisaðdáendur fengju eitthvað við
sitt hæfi.
Fyrst ég er byrjaður að tala um
íþróttir vil ég endilega beina því til
Bjarna Felixsonar að hann reyni að
fá fleiri golfmyndir. Þær eru vel
þegnar hjá mörgum, það veit ég, og
heyrt hef ég fólk, sem ekki stundar
golf, lýsa ánægju sinni með golf-
myndina sem sýnd var á laugardags-
kvöldið fyrir viku.
Löður er uppáhaldsþátturinn minn
í sjónvarpinu. Bæði kemur til mjög
skemmtilega skrifað handrit og
hreint stórkostlegar týpur sem eru
uppistaðan í þáttunum. í þættinum á
laugardaginn var aldeilis frábært
samtal milli kvenpersóna þáttanna
þar sem þær voru allar að drepast úr
karlmannsleysi.
Ekki horfði ég nú meira af laugar-
dagsdagsskránni, hafði lítinn áhuga á
nútíma útfærslu á Öskubusku i með-
förum blökkumanna og hefði örugg-
lega sofnað yfir heimsmeistarakeppni
í samkvæmisdönsum.
Þjóðlif er örugglega bezta eigin
framleiðsla sem sjónvarpið gerir.
hafa allir þættirnir í vetur verið með
afbrigðum góðir og ekki brást Sigrún
okkur í þetta skiptið frekar en áður.
Rúnturinn er hugtak sem allir
Reykvíkingar þekkja og flestir eiga
einhverjar skemmtilegar minningar
um rúntinn. Þó mikið sé búið að
skrifa og þrasa um þennan sam-
komustað reykvískrar æsku væri
borgin okkar ekki söm ef rúnturinn
væri tekinn af okkur og er ég viss um
að ungt fólk á eftir að hittast á rúnt-
inum um ókomna framtíð eins og
krakkar geranú.
Nútímatónlist getur verið skemmti-
leg, eins og kom fram í Þjóðlífi, en
fyrir mig og aðra sem ekki hrærast í
þessari tegund tónlistar er skýringa
þörf, annars er þetta fyrir mig eins og
að horfa á rússneska kvikmynd án
skýringartexta.
-HK.
voru Guðlaug Jóhannsdóttir og
Sæmundur Þórðarson. Árið 1941
kvæntist Ágúst Guðnýju Karlsdóttur
og áttu þau 7 börn. Þau bjuggu í
Reykjavik.
Stefán Magnússon bókbindari, sem lézt
9. mai sl., fæddist 6. marz 1906 í Torf-
mýri í Blönduhlið. Foreldrar hans voru
Ragnheiður Jakobina Gísladóttir og
Magnús Hannesson. Eftir að barna-
skóla lauk fór Stefán i unglingaskóla á
Sauðárkróki þar sem foreldrar hans
bjuggu. Skömmu síðar fluttist hann að
Reynistað og var m.a. meðhjálpari við
Reynistaðarkirkju. Stefán lærði bók-
band á Akureyri og stundaði það fyrst
með annarri vinnu en síðan eingöngu.
Stefán fluttist siðan til Sauðárkróks þar
sem hann stundaöi bókbandiö sem
aðalatvinnu. Hann var jarðsunginn frá
Sauðárkrókskirkju sl. laugardag.
Anna Thorlacius, Kársnesbraut 108,
lézt 14. maí sl.
Ragnar V. Jónsson veitingamaður, Sól-
landi við Reykjanesbraut, verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni i Reykjavík
þriöjudaginn 19. maí kl. 13.30.
Jarðsett verður á Þingvöllum sama
dag.
Árni Sigurðsson, Skipagötu 2 Akur-
eyri, lézt á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri 15. maí sl.
Slgrún Ásmundsdóttir, sem lézt á
Landspitalanum 11. mai sl., veröur
jarðsett frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 20. maí kl. 10.30.
Jakob Elnarsson bóndi, sem lézt 10.
maí sl., fæddist 18. marz 1898 að
Norður-Reykjum. Foreldrar hans voru
Ingibjörg Eyjólfsdóttir og Einar Þórð-
arson. Árið 1930 tók Jakob við búinu á
Efri-Reykjum og bjó þar síðan í um
hálfa öld. Jakob var kjörinn heiðursfé-
lagi Umf. Aftureldingar. Árið 1948
kvæntist Jakob Guðjónu Benedikts-
dóttur og áttu þau 2 syni.
Ragnar Gislason frá Viðey, Sólvalla-
götu 52, verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju i dag, 18. maí, kl. 15.
Rebekka Bjarnadóttir, sem lézt að
Hrafnistu 11. maí sl., verður jarðsett
frá Fossvogskirkju 19. mai kl. 13.30.
Jónina Guðrún Benediktsdóttir frá
Steinalæk, Bugðulæk 13, sem lézt á
Landspitalanum 13. maí sl., verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðju-
daginn 19. maí kl. 16.
LifMlÍH
Auka-aukasýning
á Konu
Ákveðið hafði verið að hætta sýningum á leikritinu
Kona eftir Dario Fo og Franca Rame um siðustu
helgi en vegna mikillar aðsóknar hefur verið ákveðið
að bæta við einni aukasýningu, þriðjudaginn 19.
mai, og lýkur þar með sýningum á þessu vinsæla
verki Alþýðuleikhússins í Reykjavík.
Leikhópurinn hefur farið með þessa sýningu viða
um sveitir og nú síöast var leikið fyrir starfsfólk
Hrauneyjafossvirkjunar. Fyrsta júlí leggur hópurinn
af stað í leikför austur og noröur um land. Fyrsta
sýningin verður í Vík i Mýrdal en sú síðasta væntan-
elga í Grímsey þann 24. júlí.
Konu, sem hlaut mikið lof gagnrýnenda, er leik—
stýrt af Guðrúnu Asmundsdóttur, leikmynd gerði
Ivan Török og leikhljóð Gunnar R. Sveinsson.
Alþýðuleikhúsið býður væntanlega gesti sina vel-
komna og minnir á aö það kostar ekkert að brosa.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING Ferðamanna-
Nr. 91 — 16. mal 1981 gjaldeyrir
Eining kl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarfkjadollar 6,848 6,886 7,553
1 Steríingspund 14,227 14,264 16,690
1 Kanadadollar 6,706 5,721 6,293
1 Dönsk króna 0,9498 0,9523 1,0476
1 Norsk króna 1,2071 1,2103 1,3313
1 Sœnsk króna 1,3947 1,3984 1,6382
1 Finnskt mark 1,5828 1,5868 1,7466
1 Franskurfranki U397 1,2429 U872
1 Belg. franki 0,1823 0,1838 0,2020
1 Svissn. franki 3,3194 3,3282 3,6610
1 Hollenzk ftoripa 2,6826 2,6896 2,9588
1 V.-þýzktmaric 2,9862 2,9930 3,2923
1 ftöisk Ifra 0,00599 0,00601 0,00661
1 Austurr. Sch. 0,4228 0,4240 0,4664
1 Portug. Escudo 0,1125 0,1128 0,1241
1 Spánskurpesetí 0,0749 0,0751 0,0826
1 Japansktyen 0,03077 0,03085 0,03394
1 Irskt Dund 10,904 10,932 12,025
SDR (sárstök dráttarréttindi) 8/1 8,0485 8,0696
Simsvari vegna gengisskráningar 22190.