Dagblaðið - 18.05.1981, Blaðsíða 33
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. MAÍ1981.
(i
Menning
Menning
Menning
Menning
Það er víst ekki ofsagt að sýning
þeirra félaga, Magnúsar Kjartans-
sonar listmálara og Árna Páls ljós-
myndara, í Djúpinu í fyrra, hafi
komið ýmsum í opna skjöldu. Þarna
stóðu, héngu og lágu myndverk sem
virtust einhvers staðar mitt á milli
Storm P. og Dada, samansett úr
furðulegasta dóti sem tvímenning-
arnir höfðu tínt upp af vegi sínum og
sett saman eftir hendinni.
Þó var langt frá því að þetta væri
tómt klambur, þvert á móti voru
verkin vel unnin og báru vott ríku-
legri efniskennd skaparanna, auk
þess sem þau geisluðu af fjarstæöu-
kenndri fyndni. Þeim var ætlað að
gera allt í senn, hressa, kæta og
skjóta áhorfandanum skelk í bringu.
Þar að auki virtust þeir Magnús og
Árni Páll hafa unnið nánast eins og
samvaxnir tvíburar því erfitt var að
greina á milli verkanna, heimfæra
þau á annan fremur en hinn. Þetta er
mjög óvenjulegt í myndlist.
Af rakstur ársins
En fyndni er nú kannski ekki alltof
vel liðin í listum, alltént brugðust
margir starfsbræður þeirra tveggja
ókvæða við þegar fréttist að Menn-
ingarsjóður hefði ákveðið að veita
tvímenningunum starfslaun til heils
árs, — töldu sjálfsagt eldri og alvar-
legri listamenn betur að þeim aurum
komna.
En nú sýna þeir Magnús og Árni
Páll afrakstur þessa árs í húsnæði
Nýlistarsafnsins (til 23. maí) bæði
skúlptúr og málverk. Það kemur i
ljós að þessum starfslaunum hefur
verið vel varið því sýning þeirra er í
senn ferskasta og frisklegasta uppá-
koma í myndlistum sem hér hefur átt
sér stað i háa herrans tíð.
Skúlptúr þeirra er til orðinn með
svipuðum hætti og í fyrra, úr föngum
héðan og þaðan en nú er efniviðurinn
nær eingöngu brotajárn, ómálað en
lakkað Listamennirnir eru sömu-
leiðis orðnir metnaðarfyllri.
Ferskir& frískir
Magnús Kjartansson og Árni Páll í Nýlistarsafninu
Vægi og virkni forma
Þeir eru ekki alfarið að búa til
furðuhluti, — gripi sem koma á óvart
vegna þess hve líkir eða ólíkir þeir eru
hlutum sem við þekkjum, — þó
grunnt sé á slíkum hugmyndum i
stöku verki.
Nú gera þeir meira af þvi að
kompónera í stórum einingum sem
krefjast mikils rýmis, samræma verk
innbyrðis, íhuga vægi og virkni
forma, þ.e.a.s. ganga út frá mörgum
helstu forsendum hins móderníska
járnskúlptúrs. Það má meira að segja
greina tvær meginkvíslir í þessum
skúlptúr Magnúsar / Árna Páls, ann-
ars vegar formalisma David Smiths
og Caros (sjá hlutverk alls kyns hjóla
í verkum hins fyrrnefnda), hins vegar
óskipulegar samsetningar Rauschen-
bergs og fylgismanna hans (assem-
blage) þar sem formlegt samræmi er
metið minna en stuðkraftur verks
(shock value).
Myndlist
Árni Páll — Dans mynd, málv. & Ijósm.
Þó get ég varla séð beinar ívitnanir
í þessa erlendu meistara, nema kann-
ski í hornverkinu „Fyrir menn” sem
kinkar kolli í átt til Rauschenbergs.
Jafnræði og
jafnvægi
Eru þetta svo virkir skúlptúrar út
frá þeim forsendum sem höfundar
gefa sér? Allflestir þeirra eru það, þó
maður verði óneitanlega var við tog-
streitu í sumum þeirra, milli hins
formræna og hins „sniðuga” í þeim.
En þar sem þeim Magnúsi & Árna
Páli tekst best upp, t.a.m. í Kolbítur
(nr. 11), Tango (nr. 13), Sperrileggur
(nr. 16) og Hvurju spáð’ ann (nr. 17),
þar rikir jafnræði meö hinum ýmsu
þáttum myndverkanna og þar eru
ýmis myndræn vandamál leyst af
skemmtilegu hugviti. Tango er t.d.
merkileg tilraun til að brúa bilið milli
hreyfanlegs gólfverks og veggmyndar
en þar er einnig slegiö á fjarstæðu-
kenndina með því að koma fyrir hjól-
um á verki sem ætlað er að standa
rígfast upp við vegg. Allt um það eru
þessi þrívíðu myndverk ágæt og þörf
viðbót við fábreytilegan skúlptúr á
íslandi.
Málað aftan á
Ekki eru málverk þeirra M & Á P.
síður athyglisverð. Þeir hafa fundið
sér sérstakan ljósnæman striga, kalla
fram á hann ljósmyndir en bæta
siöan við litum með því að mála strig-
ann aftan frá eftir öllum kúnstarinn-
ar reglum. Og að sjálfsögðu er einnig
hægt að mála strigann að framan.
Hvað vinnst svo við þessar brellur?
Jú, hægt er að tengja ljósmyndir og
oliuliti nánar en ella, öll skil verða
ekki eins skörp og verkin verða
„mýkri” og heillegri að sjá.
Magnús sem hefur sérhæft sig í að
tefla saman mótífum úr ýmsum átt-
um, slær sér sérstaklega upp á þessari
tækni. Mikið stækkaðar ljósmyndir
af svörtum plastpokum verða í hans
höndum feikilega magnaður kjarni
a.m.k. tveggja verka en í kringum
þann kjarna spilar Magnús svo á liti
af sinni venjulegu leikni. Hér finnst
mér eins og málverk hans gangi fylli-
lega upp i fyrsta sinn, — hinir ýmsu
partar þeirra lúta allir sömu hrynj-
andi.
Uppáfinningasamur
Málverk Árna Páls með sömu
tækni komu mér enn meira á óvart.
Það var á margra vitorði að hann er
ágætur og uppáfinningasamur ljós-
myndari en hér sýnir hann fullkomið
vald yfir hinum miklu víðáttum mál-
verksins. Myndir hans, Vatns mynd
og Dans mynd, að hluta afstrakt, að
hluta raunsæjar, eru að mínu viti eitt-
hvað fallegasta ljóðræna malerí sem
ég hef séð hér á landi í langan tíma,
— ef malerí er þá rétta orðið. Á þessa
sýningu ætti fólk að flykkjast og taka
nótis af því sem hugmyndabanki
þeirra félaga hefur að bjóða.
- Al
AÐALSTEINN
INGÓLFSSON
m
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiðslustofa Klapparstíg
Tímapantanir
13010
VANTA5m FRAMRUÐU?
<TF
Ath. hvort við getum aðstoðað.
ísetningar á staðnum.
BÍLRÚÐAN S££n