Dagblaðið - 18.05.1981, Síða 36
f-
Birgir ísleifur
Gunnarsson:
„Erfiðleikarn-
ir ná ekki að
letja
kjósendur”
„Könnunin ber vitni um það að ekki
hafa orðið verulegar breytingar á
fylgi Sjálfstæðisflokksins á undan-
fðrnum mánuðum,” sagði Birgir
ísleifur Gunnarsson alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins ímorgun.
Fylgi flokksins virðist vera töluvert
meira en það var I siðustu kosningum
og er það auðvitað ánægjuefni. Þetta
ber vott um það að erfíðleikarnir sem
flokkurinn hefur átt viö að etja með
þvl að vera bæði innan og utan
stjórnar ná ekki að letja okkar kjós-
endur. Þetta hvetur okkur til þess að
gera allt sem við getum til þess að
leysa þessi mál flokksins þannig að
hann komi heili og óskiþtur út úr
þeim erfiöleikum sem hann gengur
nú í gegnum,” sagði Birgir. -DS.
Magnús Magnússon:
„Persónulegt
fylgi við
Gunnar
Thoroddsen”
,,Ég er ekkert hissa á þessari út-
komu,” sagði Magnús Magnússon
varaformaður Alþýöufiokksins.
„Niðurstaðan er ekki óeðlileg
miðað við það sem á undan er
gengið. Mér virðist sem stuðnings-
menn stjórnarflokkanna styðji þá
vegna þess að þeir sjá cngan annan
möguleika og telja að þessi stjórn sé
betri en engin. Ég túlka þetta svo að
þetta sé fremur persónulegt fylgi við
Gunnar Thoroddsen en
stjórnarflokkana að öðru leyti,”
sagði Magnús. -DS.
9
Svavar Gestsson:
„Ánægjuleg
vísbending”
„Þessi niðurstaða segir okkur I
Aiþýðubandalaginu ekki nýjar fréttir
en er út af fyrir sig ánægjuleg vis-
bending,” sagði Svavar Gestsson for-
maður Alþýðubandalagsins.
„Ég hef haft það á tilfinningunni
að fylgi Alþýðubandaiagsins hafi
iengi verið svipað, að flokkurinn hafi
að minnsta kosti ekki tapað fylgi frá
því I síðustu kosningum.
Ríkisstjórnarflokkarnir tveir halda
sinu samkvæmt könnuninni. Ef
niðurstöður þessarar könnunar og
könnunarinnar á fylgi rikisstjórnar-
innar eru bornar saman kemur í ljós
að helmingur sjálfstæðismanna
styður ríkisstjórnina. Hrun Alþýðu-
flokksins kemur ekki á óvart. Ég hef
ekki frekar en aðrir orðið var við lífs-
mark hjá þeim flokki.”
Þess má geta aö margítrekað var
reynt að ná sambandi við forystu-
menn Framsóknarflokksins í
morgun, en árangurslaust.
-ARH.
Fyrstu lækn-
amirganga
útídag
Fyrstu læknarnir sem sagt hafa
upp störfum á Landspítalanum og
Borgarspítalanum ganga út í dag.
Eru það tveir af Landspitalanum og
einn frá Borgarspitalanum. Mun
fleiri ganga út á morgun, t.d. hætta
þá átta læknar á Borgarspitaianum.
Fara þeir síðan hver af öðrum með
jöfnu millibili út mánuöinn.
Strax á næstu dögum fer að skap-
ast neyðarástand á sjúkrahúsunum.
Læknar hafa boðizt til að koma til
starfa ef slíkt ástand skapast en hafa
ekki útskýrt á hvaða kjörum það
verður. Yflrlæknar sjúkrahúsanna
hafa heimild til að kalla læknana út
ef þess gerist þörf.
Engar samræður hafa farið fram
við læknana síðan á föstudag og
enginn fundur boðaður. -ELA.
14 ára hjólreiðamaður
fórst á Knsuvíkurvegi
mikill hraði talinn eiga þátt í slysinu
Fjórtán ára Hafnfirðingur, Guð-
ráður Davfð Bragason, Miðvangi 37,
lét lífið í umferðarslysi á Krfsuvíkur-
vegi rétt fyrir kl. 6 á laugardaginn.
Guðráður Davíð var í hjólrciða-
ferð með félaga sfnum og voru þeir á
leið niður Krísuvíkurveg og komnir á
vegarkafla sem lagður er slitlagi
nokkru austan Reykjanesbrautar.
Kom þá bíll á eftir þeim. Guðráður
Davíð var þá á undan félaga sínum.
Lenti bifreiðin á honum og kastaðist
hann upp á vélarhús og skall síðan í
götuna. Hann var látinn er læknar
komu á vettvang.
Að sögn rannsóknarlögreglunnar í
Hafnarfirði eru tvö vitni að aðdrag-
anda slyssins. Sá annað vitnanna bfl-
inn fara eftir veginum á mikilli ferð,
heyrði síðan flaut og hávaða er slysið
varð. Fór hann á staðinn á bil sínum.
Sá hann þá tvo menn koma úr bflnum
er 1 slysinu lenti og gengu þeir að
drengnum sem lá á veginum. Síðan
hvarf bflstjórinn á bíl sínum en far-
þeginn varð eftir. Skömmu sfðar kom
ökumaður eftir að hafa kallað á
hjálp. Annað vitni sá að félagarnir á
hjólunum voru f röð er slysið varð og
fór sá er lézt þá á undan. Hinn hjól-
reiðapiltinn sakaði ekki.
-A.St.
Sanitas
drykkir
LÆKKAÐ
VERÐ
Jan Mayen vidræður:
Skipulag um nýt-
ingu auðlindanna
—beggja vegna miðlínu. Elliot Richardson formaður
sáttanef ndarinnar væntanlegur í dag
Tillögur þær um Jan-Mayen-sam-
komulag milli íslendinga og Norð-
manna fela í sér skipulag um nýtingu
auðlinda á landgrunninu milli íslands
og Jan Mayen.
Með hliðsjón af rannsóknum sem
gerðar hafa verið af íslenzkum jarð-
fræðingum og erlendum er talið að
með nokkrum líkum megi ráða hvar
helzt er að vænta auðlinda á eða —
Og í landgrunninu. íslendingar hafa
gert tilkall til nýtingar þess. Um það
er ekki samkomulag.
Elliot Richardson, fyrrum utanrikis-
ráðherra Bandaríkjanna, hefur verið
í forsæti nefndar, sem skipuð er
Hans G. Andersen þjóðréttarfræð-
ingi, af hálfu íslands, og Jens Evin-
sen fv. ráðherra og einum helzta
fræðingi Norðmanna f hafréttarmál-
um.
Er Elliot væntanlegur til íslands i
dag til viðræðna við Ólaf Jóhannes-
son utanríkisráðherra, og ríkisstjórn.
Fundir hafa veriö í utanríkismála-
nefnd vegna málsins og viðræður f
ríkisstjórninni.
Landfræðilega er talið að á þessu
stigi séu hugmyndir sáttanefndar-
innar talsvert flóknar og að sumu
leyti miklu frekari skoðunar verðar.
-BS.
frfálst, óháð dagblað
MÁNUDAGUR 18. MAÍ 1981.
Lítil fiugyél
brotlenti
— allir sluppu ómeiddir
Lítil, fjögurra sæta flugvél, TF-
MOL, brotlenti á túni við bæinn
Broddanes á Ströndum um kl. fjögur á
laugardag. Um borð voru, auk eins
flugmanns, þrir farþegar, þar af tvö
börn. Sluppu allir ómeiddir.
Flugmaðurinn hugðist lenda vél sinni
á túni en rak hægra aðalhjólið í þúfu
við túnendann með þeim afleiðingum
að það brotnaöi af. 1 lendingunni kom
vélin því niður á hægri vænginn.
Flugvélin, sem þarf mjög stuttar
brautir til að athafna sig, er mjög lítið
skemmd. Er jafnvel hugsanlegt að
hægt verði að fljúga henni suður til
Reykjavíkur í dag eftir að búið verður
aðgeraviðhana. -KMU.
Blæjujeppi valt í
Fnjóskadal
Jeppi, sem var á leið til Akureyrar,
fór út af beinum vegi 3—400 metra
norðan við bæinn Skóga í Fnjóskadal
um kl. sex síðdegis á laugardag. Fór
jeppinn niður 4ra metra háa vegarbrún
og kom niður á tún, þar sem hann fór
a.m.k. eina veltu.
ökumaðurinn var ung kona en með
henni í jeppanum voru móðir hennar
og unnusti. Voru þau öll búsett á Akur-
eyri. Unga konan var meðvitundarlaus
eftir óhappið og var hún strax flutt á
sjúkrahús á Akureyri. Hin tvö sluppu
ómeiddaðmestu.
Orsökin fyrir veltunni mun hafa
verið bilun í stýri. „Okkur sýnist liður-
inn ofan við stýrisvélina hafa brotn-
að,” sagði Stefán Tryggvason hjá
Akureyrarlögreglunni við DB. Hann
bætti við: „Þetta var blæjujeppi en
með öryggisgrind og hefur það orðið
fólkinu tillífs.” -IHH.
Heppinn DB-áskrifandi verður
dreginn út i vikunni og svari hann
léttum spurningum um smáaug-
lýsingar DB hlýtur hann Lignano-
ferð að launum. Nýir vinningar
verða velttir vikulega næsta hálfa
árið i þessum leik Dagblaðsins.
Fyrstu Egjlsstaðastúdentamir
Fyrstu stúdentarnir voru brautskrádir frá Menntaskólanum á Egilsstöðum í gær. Vilhjúlmur Ein-
arsson útskrifaði alls 22 stúdenta. Gestir við athöfnina voru Ingvar Gíslason menntamálaráðherra,
Vilhjálmur Hjálmarsson fv. menntamálaráðherra og Egill Jónasson alþingismaður og fluttu þeir
á vörp. DB-mynd Einar Halldórsson Egilsstöðum.
Vinningur
fyrstu
vikunnar er
Útsýnarferð
til Ítalíu