Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Blaðsíða 7
Félagssvæði S. N. E. nær nú til allra hreppsfélaga við
Eyjafjörð, sem framleiða og flytja mjólk til Mjólkursamlags
K. E. A. á Akureyri.
RÁÐUNAUTASTÖRFIN
í þessu yfirliti um stofnun og störf S. N. E. í 40 ár er rétt.
og skylt að skrá nöfn þeirra manna, sem gengt hafa ráðu-
nautsstörfum hjá sanrbandinu á þessum liðnu árum, því
þó að margir aðilar hafi lagt hér hönd að, þá hefir þó liinn
daglegi þungi starfsins hvílt að rnestu á ráðunautunum, sem
hverju sinni liafa leiðbeint og hvatt bændurna til starfa og
félagslegrar þátttöku og sem síðan gerðu skýrslur og lögðu
fram í lok hvers árs unr þann árangur, sem náðst hafði í
starfinu:
Ráðunautar S. N. E. hafa verið þessir:
Árni Ásbjarnarson
Björn Símonarson
Jónas Pétursson
Eyvindur Jónsson
Bjarni F. Finnbogason .
Eyvindur Jónsson (aftur)
Hjörtur E. Þórarinsson .
Bjarni Arason..........
Olafur Jónsson ........
Sigurjón Steinsson.....
| í félagi
í 2 ár (1929 og 1930)
í 2 ár (1931 og 1932)
í 8 ár (1933 til 1940)
í 1 ár (1941)
í 3,5 ár (1942 til 1945)
í 3 ár (1946 til 1948)
í 8 ár (1949 til 1956)
í 9 ár (1957 til 1965)
síðan árið 1966
Eyrstu 15 árin voru störf nautgriparæktarfélaganna og
S. N. E. að sjálfsögðu að mestu bundin því starfi, að haldnar
væru skýrslur um fóðrun kúnna og afurðagetu þeirra í
mjólk og fitumagni, ennfremur að skipuleggja nautahaldið
í félögunum, leiðbeina bændum í þessum störfum sínum
og svo að annast uppgjör allra kúaskýrslanna í lok hvers árs.
Síðustu 25 árin hafa störf S. N. E. og ráðunautanna orðið
umfangsmeiri heldur en áður var, því á |)essum árum hafa
9