Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Side 12

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Side 12
Hin forsjála stjórn Mjólkursamlagsins hafði þegar áður krækt sér í tvö afburða-naut, sem S. N .E. fékk til afnota. Síðan hafa nokkrir kálfar bætzt við, og nú er í ráði að ná í ein tvii reynd kynbótanaut, ef pestarvarnir girða þá ekki fyrir alla slíka viðleitni. í miðjum maí 1946 rann loks upp sá dagur, að hægt væri að sæða fyrstu kýrnar. Við auglýstum, að við mundum sæða kýr í öllum hreppum Eyjafjarðar, allt út í Svarfaðardal, — einnig á Svalbarðsströnd. Aðsókn var dauf í fyrstu, en brátt eyddust efasemdirnar og bændur lærðu að meta það hagræði að þurfa ekki að sækja naut eða leiða kú, eins og áður fyrr, þó ekki væri nú hugsað um kynbótahlið málsins. Um áramót höfðum við sætt um 460 kýr, og fyrstu tvo mánuði þessa árs um 250, svo mjög er starf stöðvarinnar í uppgangi. En þá komu snjóarnir og lokuðu, jafnvel fyrir jeppunum, allri útsýslunni og Svalbarðsströnd að auki. Kom sér nú vel, að svo hafði verið tilstillt, að víðast var stutt að fara til að ná í naut eða nautkálfa. En öll aðalskilyrði til þess, að sæðingastöð fái þrifizt er að unnt sé að fækka þarfanautunum í sveitunum til stórra muna, eða a. m. k. gjöra nautahaldið mjög ódýrt. Reksturskostnaðurinn er heilmikill, áætlaður um 110.000 kr. fyrir árið 1947. Nautstollur er kr. 40,00 hjá félagsmönn- um, svo við þyrftum að sæða nær 3000 kýr til að slétta kostn- aðinn. En svo margar kýr eru reyndar alls ekki til á sam- bandssvæðinu. F.g væri mjög ánægður ef við náum að sæða helming þeirrar tölu á árinu. En svo er vonast eftir einhverj- um opinberum styrk. Raunar finnst mér alltaf að ekki eigi að gjöra kröfur til, að stofnun slík sem þessi beri sig endilega, beint peningalega. Hún á að bera sig í lengdinni með áhrifum sínum á kúa- kynið, og það veit ég, að hún gerir, og það von bráðar, ef val nautanna heppnast. Undir því er allt komið. Senn er ár liðið síðan stöðin tók til starfa. Sæddar hafa verið hátt á áttunda hundrað kúa. Um 75% hafa haldið við fyrstu sæðingu. Fyrstu kálfarnir eru að koma í heiminn, og með þeim kemur aukinn áhugi á málinu. Eyfirzk veðrátta 14

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.