Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Page 38

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Page 38
Auðvitað má hafa aðra tilhögun á þessu en þá, er ég hefi lagt til og verður hver og einn að prófa sig áfram með hve mikið álag tún hans þolir. Það ber einnig að liafa það hug- fast, að hér er aðeins um kenningu að ræða og verður því ekkert fullyrt um árangurinn, en meðan við eigum ekki völ á haldbetri þekkingu, er þess vert að reyna þetta. Sú staðreynd er að minnsta kosti óhögguð, að kalið í túnunum stór- minnkar eða hverfur með öllu þegar hætt er að nytja þau, og það þótt þau séu ekki friðuð fyrir sumarbeit. Liggur því nær að álykta, að nytjunin eigi á einhvern hátt þátt í kalinu. Það virðist líka ofur eðlilegt, að ofnotkun túnanna stuðli að kalskemmdum, og að þetta ágerist með kólnandi veðr- áttu og minnkandi sprettu, en þar sem túnin eru fyrst og fremst ætluð til fóðuröflunar, verðum við umfram allt að reyna að létta af þeim beitinni. Hún er laundrjúg og tekur oft meira til sín en okkur grunar. Einkum er það þó haust- beitin, sem gjalda verður varnaði við og auðveldast er að leggja niður. Þegar túnin eru slegin, ber að hafa þetta hug- fast: Að hefja fyrri slátt svo snemma, þegar tvíslegið er, að háarsláttur dragist ekki langt fram í ágústmánuð og að draga ekki sláttinn svo lengi, ef einslegið er, að grasið spretti stór- legfa úr sér os: fúni í rót. Slíkt g;etur að vísu s;efið vaxtarauka en ekki fóðurauka, tefur stórlega endursprettu og dregur úr þoli jurtanna gegn kali. Avallt ber að slá svo snemma, að túnin geti sprottið nokkuð upp aftur, áður en vetur gengur í garð, því rætur og jarðstönglar þurfa skjóls með og hlífðar sregn kulda os; áfrera. Vera má, að þessar ráðleggingar mínar hrökkvi skammt í baráttunni við kalið, en í sambandi við þær ber að hafa hugfast, að þær eru miðaðar við að verjast kali, en ekki að bæta úr skaðanum, þegar hann er orðinn. Þá ber og að minn- ast þess, að kal verður með mörgu móti, hefur valdið tjóni svo langt, sem vitað er, og ekki er líklegt, að við því finnist nein allsherjarvörn. Engu að síður finnst mér aðkallandi, að fá úr því skorið, hvers vegna tún á eyðibýlum kala síður en þau tún, sem eru i fullri notkun. 41

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.