Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Side 43

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Side 43
ingar, sem á er byggjandi. Þó virðist mega ætla, að dætur hans séu ófrjósamar. Leiri 105 var einnig frá Syðra-Álandi. Móðir hans Leira 2 var frjósöm og mikil afurðaær. Niðurstöður þær, sem hér liggja fyrir, benda til, að Leiri hafi gefið dætur, sem eru mjög nærri meðallagi. Á Syðra-Álandi hafa dætur hans reynzt mun frjósamari en dætur Gyllis, en hafa ekki sýnt sérstaka afurðagetu. Ás 102. Um hann er ekkert hægt að álykta út frá þeim tölum, sem hér liggja fyrir. Virðast tölur þessar þó vera honum í hag ef eitthvað er. Spakur 150 hlaut I. heiðursverðlaun fyrir afkvæmi haustið 1966. Var það haust tekinn á sæðingarstöðina og notaður þar einn vetur. Við niðurstöður þær, sem hér birtast er það að athuga, að þessar dætur Spaks 150 eru ekki tilkomnar við sæðingu. Þær eru allar úr sf. Mývetninga. Má ætla, að mæð- ur þessa dætrahóps séu betur valdar og jafnbetri en mæður dætra sæðishrútanna. Niðurstöðurnar virðast þó mega túlka þannig, að dætur Spaks séu góðar afurðaær, og tölurnar frá Hesti renna ótvírætt stoðum undir þessa skoðun. Um Rosta 202 og Fífil liggja aðeins fyrir upplýsingar frá Hesti haustið 1969, sem fyrir Fífil lofa ekki góðu. Um Kjarna 72 er lítið vitað, en á Grímsstöðum í Mývatns- sveit, þar sem hann var notaður áður en hann kom að Lundi, hafa veriðmjög miklar afurðir síðustu árin, með þeim hæstu, sem dæmi eru um hérlendis. Að fengnum þessum niðurstöðum virðist, að Spakur 73 og Spakur 150 hafi bætt ærstofninn. í ætt Gyllis kemur fram ófrjósemi og þekking á dætrum hans, úr skýrslum sauðfjár- ræktarfélaganna bendir í sömu átt. Dætur Þokka eru í meðallagi góðar mjólkurær, lömb þeirra eru léttari en lömb jafngamalla áa, en kjötprósenta er hærri. Frjósemin er góð. í Ársriti Rf. Nl. 1966, gerðu Sigurjón Steinsson og Ævarr Hjartarson grein fyrir vænleika lamba undan þeim hrút- um, sem notaðir voru á Sauðfjársæðingastöðinni að Lundi, haustið 1964. 46

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.