Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Qupperneq 54
SAMANDREGIÐ YFIRLIT
Tilraunir með bór sem áburðarefni hafa verið mjög af
skornum skammti hér á landi. Lengi hefur þó verið vitað
um bórskort í káli og rófttm og ráðlagt hefur verið að bera
á bórax til lækningar því. Alla kortlagningu vantar á því,
livar bórskortur er mestur og við hvaða skilyrði hann er
mest áberandi. Efnagreiningar á bóri í jarðvegi og upp-
skeru eru svo til engar til hérlendis. Greinilegt er því, að hér
þarf að gera átak til úrbóta.
I grein þessari er fjallað um tilraun með bóráburð á kart-
öflur á Teigi í Hrafnagilshreppi. Niðurstciður liennar sýna,
að uppskeruauki fyrir bc'ir á kartöflur er allverulegur, eða
34 hkg/ha af söluhæfum kartöflum. Skortseinkenni, sem
verið höfðu á kartöflum í garði þessum, voru að mestu horf-
in á kartöflum úr reitum, sem fengið höfðu bór.
Steinefnamagn reyndist óháð því, hvort á var borið bór
eða ekki. Áberandi er hve kalímagn kartaflna er hátt.
HEIMILDASKRÁ
1. Gisli Krist jánsson, 1951: Bór. Freyr 46. árg., bls. 44.
2. Gisli Kristjánsson, 1962: Bór er áburðarefni. Freyr 58. árg., bls. 184.
3. Handbák btenda.
4. Hvatum, O. 0., 1965: Bestemmelse av varmtvannl0selig bor i jordpr0ver
fra norske borgj0dslingsfors0k. Meldinger fra Norges Landbrnksh0jskole.
Vol 44, no. 1.
5. Magnús Óskarsson, 1969: Jarðræktarfræði, kafli 1: Áburðarfræði.
6. Philipson, T., 1955: Boron in plant and soil, with special regard to Swedish
agriculture. Acta Agriculture Scandinavia. Vol. III: 2, 121—242.
7. Skýrslur tilraunastöðvanna, 1961—1964.
8. Veðráttan, 1968 og 1969.
9. Wallace, T. 1961: The Diagnosis of Mineral Deficiences in plants by visual
Symptoms. l’ublisbed by Her Majesty’s Stationery Office, London.
57