Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Side 57

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Side 57
túnþýfisins lokið. En með því, að ég er ekki alveg viss um, að öllum sé ljóst, liver munur er á endurræktun gömlu túnanna og nýyrkju, vil ég víkja lítið eitt að því atriði. Gömlu túnin, þótt þýfð væru, voru á vissan hátt ræktuð. Aldalöng notkun áburðar og nytjan þeirra, hafði þróað skilyrði fyrir sérstakt gróðurfélag, er við nefnum oft tún- gróður, og einnig hafði jarðvegsástand þeirra breytzt, jarð- vegurinn fúnað og bygging hans orðið hagkvæm heilgrös- um, senr eru megin uppstaðan í túngróðrinum. Með þeirri frumstæðu aðferð að bera búfjáráburðinn ofan á landið, hafði þessi breyting að vísu verið mjög hæg, en þó orðið smám saman. Hér var því ræktunin komin á undan jarð- vinnslu og sléttun. Öðru nráli gegnir þegar við t()kum land til nýræktar. Þá er engri fornri ræktun til að dreifa, og nreginhluti rækt- unarstarfsins, svo sem framræsla, bylting, jöfnun, vinnsla, áburður og sáning, eru þættir, senr fyrst og frenrst eiga að greiða ræktuninni braut, og vandamál okkar er, hvernig við bezt getunr hagað þessum stiirfum, þannig að ræktun- in verði sem hröðust. Hver sá, sem reynir að hugleiða þessi mál, hlýtur að skilja, að skyndivinnsla á rætnu landi, svo sem mýrlendi og ófrjóum óræktarmóum, þótt þurrir séu, er í raun og veru engin ræktun, heldur aðeins undirbúningur að rækt- un og sléttun, en sé landið að öllu leyti vel undirbúið hvað framræslu, vinnslu, frágang og áburð áhrærir og svo vel með farið og vel áborið næstu ár, má vera, að það ræktist smárn saman, þannig, að jarðvegurinn fá eðliseiginleika frjó- moldar, en hve langan tíma þetta tekur, fer eftir meðferð, veðurfari o. fl. Ýmissa ráða hefur verið leitað til þess að ná þessu marki, en með misjöfnum árangri og má vera, að vankunnátta valdi þar nokkru um. Eitt af því, sem nefnt hefur verið í þessu sambandi, er endurræktun túnanna, einkum nýræktanna, á nokkurra ára fresti. A kalráðstefnunni, sem haldin var í febr. s.l. ár, var þeirri spurningu varpað fram hvort nokkuð benti til þess, að endur-

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.