Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Page 58
ræktun túnanna væri þörf. Andhverfa þessarar spurningar
hefði ef til vill verið allt eins eðlileg, þ. e. hvort nokkuð af-
sanni það, að endurræktunar sé þörf. Satt að segja er mér
ekki kunnugt um neitt, hvorki úr tilraunum né praktiskri
reynslu, er skeri úr um þetta. Að vísu mun einu sinni hafa
verið byrjað á tilraunum með þetta á öllum aðal tilrauna-
stöðvunum, en tilraunin farið nokkuð úrskeiðis á þeim öll-
um, meðal annars vegna þess, að þrátt fyrir reynsluna frá
þaksléttunum, og tilraunum, er síðar verður getið, var bú-
fjáráburðurinn ekki plægður niður við endurvinnsluna.
Nýttist hann því verr en skildi, og illgresi gerði mikið vart
við sig. Þessi viðleitni sýndi þó tvímælalaust, að tilrauna-
ráð taldi, að þörf væri slíkra tilrauna.
Bændur og jafnvel leiðbeinendur þeirra, eiga örðugt rneð
að sætta sig við, að sléttun og vinnsla lands, sé ekki sama og
ræktun þess. Þar af leiðandi eiga þeir ekki hægt með að
kyngja því, að fárra ára nýræktir þurfi að endurræktast,
nema þær hafi orðið fyrir meiri háttar áföllum. Endur-
ræktun gömln túnanna var nauðsyn vegna þess, að þau
voru þýfð og ekki véltæk. Það skildu allir. En að sæmilega
sléttar nýræktir þurfi endurvinnslu við, finnst víst flestum
fjarstæða, nema þær hafi orðið fyrir stórskemmdum af völd-
um kals, mannvirkjagerðar eða af öðrum orsökum. Því
miður eru ekki allir ágallar nýræktanna augljósir, svo þeim
sé verulegur gaumur gefinn. Skal nú vikið að því helzta, sem
hvetur til endurvinnslu, og því þá jafnframt svarað, hvers-
vegna endurvinnsla túnanna, og sér í lagi nýræktanna, er
þörf. Bæði með hliðsjón af því, sem er augljóst, og hinu,
sem dylzt öllum fjöldanum.
1. Kalið mun sá þátturinn, sem nú gerir oftast endur-
vinnslu túna nauðsynlega, en nokkuð verða landshlutarnir
misjafnt úti í þeim efnum, og margt er enn á huldu um það
hvenær grípa skal til endurvinnslu af þessum orsökum, eða
hvernig henni skuli hagað.
2. Missig lands, þar sem stórþýft hefur verið, eða mikil til-
færsla hefur átt sér stað, getur gert endurvinnslu nauðsyn-
G1