Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Side 60

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Side 60
greiðara niður sem jarðvegurinn er nýunnari og gljúpari, en svo sem kunnugt er eiga svellalög, sem verða til við stöðn- un vatns á yíirborðinu, drjúgan þátt í kalskemmdum. Eg man nú ekki að telja fleira, sem gerir endurvinnslu túna, og sér í Jagi nýræktar, æskilega, ef ekki nauðsynlega, á fárra ára fresti, en með því að vera má, að einhverjum þyki ekki röksemdir mínar nógu sannfærandi eða studdar nægri reynslu og rannsóknum, vil ég fara um sumt af framansögðu nokkrum fleiri orðum. Uin fyrstu fjögur atriðin þarf þó varla að ræða. Þau eru bæði augljós og viðurkennd svo langt, sem þau ná, þótt deila megi t. d. um áhrif kalsins á jarðveginn, og hvernig úr þeim skuli bæta. Fimmta atriðið ætti líka að vera nokkuð augljóst. Allir, sem eitthvað hafa fengizt við jarðrækt ættu að vita, hve örðugt er að breyta torfjarðvegi okkar í mold, og eins það, að frjósemi torfsins nýtist ekki fyr en rotnun hefur átt sér stað. Sjást þess oft augljós merki, að bezt sprettur meðfram skurðum og grófum, þar sem uppþurrkun landsins er bezt og loftið hefur greiðastan aðgang að jarðveginum. Ófúin torf- jörð veitir gróðrinum mjög léleg vaxtarskilyrði, en er hinn ágætasti frjóefnagjafi þegar hún tekur að fúna og myldast. Þannig þótti rústa- og rofamold áður fyrr tilvalinn undir- burður í flóra og hin ágætustu áburðardrýgindi. Þá er það búfjáráburðurinn og mikilvægi hans fyrir jarð- ræktina. Það er vafalaust þýðingarmesta atriðið í sambandi við endurvinnslu túnanna, að fá tækifæri til þess að koma honum niður í jörðina og ætti eitt tit af fyrir sig að vera nægileg rök fyrir endurvinnslu. Fyrst og fremst eykur búfjár- áburðurinn smáverulíf jarðvegsins og þar með rotnun lians og umbreytingu, en um þetta vitum við reyndar of lítið. — Hins vegar nýtist búfjáráburðurinn margfallt betur plægð- ur niður í jarðveginn heldur en breiddur ofan á eða herf- aður saman við moldina. Þetta sýndu tilraunir Ræktunar- félags Norðurlands á árunum 1931—’36 mjög greinifega. (Samanber Ársrit Rf. Nl. 1936, bls. 25—45). Má heita stór- furðulegt live bændur og leiðbeinendur þeirra hafa snið- 63

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.