Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Side 63

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Side 63
verið sú, að yfirborðsvatnið sígur greiðast niður yfir lokræs- unum. Við endurvinnslu túna, þar sem aðeins er plægt í 12—15 cm dýpi, er þess varla að vænta, að varanleg áhrif geti orðið í þessa átt, en sennilega mætti auka þau með því að setja rótfjöður á plóginn, sem græfi plógfarið niður í 40—50 cm dýpi. Væri sannarlega þess vert að reyna slíkt. Svo skal ekki fjölyrða um þetta mikið frekar og er þó margt ósagt um þetta mál. Eg tel mig hér að framan hafa fært sæmileg rök að því, að endurræktun túna sé þörf og geti orðið grasrækt okkar til mikils framdráttar, sé rétt á haldið. Ég hefi ekki séð ástæðu til að ræða um mismunandi form, er hugsast gætu á slíkri ræktun, þ. e. plægingu búfjár- áburðar niður í jörðina með eftirfylgjandi vinnslu og gras- fræsáningu. Auðvitað á þessi vinna að framkvæmast með heimilistraktorum og viðeigandi plóg og herfi. Um grasfræ- ið ræði ég ekki, en verð þó að segja, að í þá röska hálfa öld, sem ég hefi fylgzt nokkuð með íslenzkri grasrækt, hefur mér aldrei virst meiri óvissa ríkjandi um grasfræ til sáningar í tún okkar en nú. Þegar ég t. d. sé grasfræblöndur með 50% vallarfoxgrasfræi auglýstar til notkunar við varanlega tún- rækt, þá verður mér á að spyrja: Hvaða reynsla eða tilraunir staðfesta það, að þessi grastegund sé varanleg hér á landi, jafnvel þótt leitað sé til veðursælustu sveita? Fyrir svo utan það, að hún þolir mjög illa beit, þótt hún að öðru leyti sé ágæt fóðurjurt og geti gefið ágæta uppskeru, meðan hún endist. Hún gæti því hentað bezt í tún, sem aðeins eru notuð til slægna og endurræktuð eru á fárra ára fresi. — Annað, sem sérstaklega hefur vakið athygli mína, er hve lítils megandi háliðagrasið er orðið í fræblöndunum. Það er þó tvímælalaust harðgerðasta erlenda grastegundin, sem við höfum reynt að rækta hér. Ekki getur það talist sak- næmt, á tímum kólnandi veðurfars og vaxandi kals, þótt háliðagrasið sé flestum grösum fljótvaxnara, því reynslan sýnir, að það getur skilað ágætum háarvexti, sé vel á borið og fyrri sláttur sleginn snemma. Lengst af höfum við notað finnskt háliðagras, en nú mun einnig amerískt háliðagras á markaðnum. Ekki veit ég til þess, að neinar samanburðar- 6G

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.