Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Side 71

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Side 71
mælingar á þvagi „heilbrigðra“ kúa á Lundi og Galtalæk. Þá var gerð ein slík mæling á kúm í Skjaldarvík. Alls voru um 250 sýni úr 75 kúm efnagreind. Þótt enginn afgerandi munur á heilbrigði hafi komið í ljós við seleníumgjöfina, er þó ljóst, að eitthvert jafnvægis- leysi virðist vera á milli kalsíums og fosfórs í Bringukúnum, miðað við að samanburðarkýrnar hafi verið heilbrigðar. Þá er það og athyglisvert, að þær kýr, sem lengst voru leiddar, skildu út margfalt (allt upp í 200 falt) meðal-fosfórmagn í þvaginu. Segja má, að gildi þessarar tilraunar birtist sumpart í hinum almennu niðurstöðum efnagreininganna, við þess- ar aðstæður. Þar sem rannsóknum þessum verða gerð betri skil síðar, mun spjalli um þær ljúka hér með því að gefa meðaltöl yfir allar mælingarnar. Magn fosfórs er gefið upp í mg á kú á dag, en önnur steinefni í meq (= milliquivalentum = millijafngildum, sem er mun raunverulegri mælikvarði á virkni málm- anna í upplausn en fjöldi atóma þeirra, að ekki sé minnst á massa þeirra) á kú á dag. Er þá miðað við, að hver gripur láti frá sér 10 1 af þvagi á dag. Sýrustig (pH) ......... Fosfór (mg á dag) . Kalí (meq á dag) . . . . Kalsíum (meq á dag) Natríum (meq á dag) K/Na — hlutfall .... 7,77 (sveifla 6,8 — 8,4 ) 21,2 ( - 5,6- 111=») 3090 ( - 1350-4100 ) 156 ( - 16- 490 ) 410 ( - 0-2000 ) 7,6 Að auki voru minni háttar efnagreiningar framkvæmdar fyrir ýmsa aðila. * Þrjár kýr ekki með í meðaltalsútreikningi. Þær voru Flekka á Bringu, sem komst í 4250, Tinna á Bringu í 259 og Dimma í Skjaldarvík í 870 mg á dag. 74

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.