Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Blaðsíða 79
Taka jarðvegssýnanna er í höndum búnaðarsambandanna
og sjá ráðunautar þeirra um að taka sýnin. Nauðsynlegt er
að kort sé til af þeim túnum, sem taka á sýni úr. A undan-
fömum árum hefur verið gert stórátak í því að kortleggja tún
hér á Norðurlandi og búið er nú að kortleggja þau langflest.
í framkvæmd hefur þetta þó verið þannig að oftast hafa tún-
in verið mæld upp sama sumar og jarðvegssýni eru tekin.
Hafa því sjaldnast verið til kort af túnunum þegar sýni voru
tekin. Þegar önnur umferð sýnatöku hefst, nú á næstu árum,
má reikna með að þetta verði mun auðveldara viðfangs.
Ástæður fyrir því, að nauðsynlegt er að kortleggja túnin
og raunar allt ræktanlegt land, eru augljósar en til frekari
áherzlu má nefna eftirfarandi: I fyrsta lagi má segja að það
sé fyrsta skilyrði til þess að bóndi geti borið rétt á, að hann
viti með vissu hvað sú túnspilda er stór, sem hann ætlar að
bera á. Slíkt verður ekki almennt í lagi fyrr en gerð hefur
verið nákvænt mæling og kortlagning á viðkomandi túni. I
öðru lagi þá er reynslan sú, að margir bændur hafa hvorki
númer eða nöfn á hinum ýmsu túnspildum, og því er nauð-
synlegt að koma hér á skipulagi með því að mæla og teikna
upp túnið og gefa hverri túnspildu númer (eða nafn) áður
en jarðvegssýni eru tekin.
Taka sýnishorna skal fara fram að haustinu i sept,—okt.
Efnagreiningar eru gerðar að vetrinum og þegar niðurstöður
hafa verið ritaðar eru þær sendar til ráðunauta búnaðarsam-
bandanna í tvíriti. Heldur búnaðarsambandið iiðru eintak-
inu, en hitt fer ráðunauturinn með til bóndans og aðstoðar
hann við að gera áburðaráætlun í samræmi við niðurstöður
jarðvegsefnagreininganna. Það er tvímælalaust mikilsvert að
niðurstöðunum sé komið þannig til skila að farið sé með þær
til hvers bónda og þær útskýrðar. Allverulegar endurbætur
hafa nú verið gerðar á áburðarbók B. í. Hefur Sigfús Ólafs-
son kennari á Hólum átt drýgstan þátt í þeim endurbótum.
Eru nú þessar nýju áburðarbækur notaðar í a. m. k. Suður-
Þingeyjarsýslu, Eyjafirði og Skagafirði. Áburðarleiðbeining-
ar út frá jarðvegsefnagreiningum eiga sér ekki langan aldur
hérlendis, en það er von okkar að í framtíðinni telji hver
82