Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Side 80

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Side 80
einstakur bóndi það sjálfsagða tryggingu fyrir réttari áburð- arnotkun að senda jarðvegssýni til efnagreiningar á fárra ára fresti. RANNSÓKNIR Eitt af megin verkefnum Rannsóknarstofu Norðurlands hef- ur frá upphafi verið að vinna að ýmsum rannsóknum; taka til meðferðar og kryfja til mergjar eftir því, sem tök leyfa, ýmis vandamál, sem aðsteðja í búskap bænda. Má í því sam- bandi nefna rannsókn á brennisteinsskorti, sem oft hefur ver- ið umrædd og ekki er ætlunin að fjölyrða frekar um hér. Þá hafa verið gerðar inni á rannsóknarstofu ýmsar greiningar á jarðvegi, t. d. nokkuð ýtarleg athugun á alúmíníummagni jarðvegs, athugað kalsíum, magníum og natríummagn o. fl. mætti til tína, sem gert hefur verið af beinum rannsóknum. Á liðnu ári voru rannsóknir auknar að mun og er það að mestu að þakka auknu starfsliði. Þórarinn Lárusson gerir á öðrum stað í ritinu grein fyrir þeim tilraunum og athugun- um, sem hann hefur haft veg og vanda af, en hér er ætlunin að víkja ögn frekar að jarðvegsefnagreiningum og tilraunum í sambandi við þær. Síðastliðin þrjú ár hefur verið mælt kalsíummagn í (illum jarðvegssýnum, sem til stofunnar hafa borizt. Hefur kalsíummagnið verið mjög lágt á ýmsum stöð- um og virðast tveir meginþættir ráða hversu mikið er af þessu efni í moldinni, en það er jarðvegstegundin og veður- farið. Eftir því sem hitastig er lægra og úrkoman meiri því minna er kalsíummagnið í jarðveginum að öðru jöfnu. Sand- jarðvegur er einnig mjög fátækur á kalsíum. Gerð hefur ver- ið nokkur athugun á því hvort tún með lágu kalsíummagni spryttu verr en hin með hærra magni. í uppgjöri þessu eru notaðar upplýsingar bænda, sem safnað er þegar jarðvegssýni eru tekin. Niðurstöður þessara athugana benda til þess að tún með mjög lágu kalsíummagni spretti verr en þau, sem rneira höfðu af þessu efni. I framhaldi af þessari athug- un voru síðastliðið sumar, 1970, gerðar tvær tilraunir með 83

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.