Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Side 89

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1970, Side 89
er haldinn var á Akureyri 29. okt. s.l. Samþykkt var að vísa þessum tillögum til nefndar. I nefnd til þess að fjalla um þessar tillögur voru kjörnir: Jóhann Helgason, Hermóður Guðmundsson, Ólafur Jóns- son, Aðalbjiirn Benediktsson og Ármann Dalmannsson. F.r hér var komið var fundi frestað. Að loknu matarhléi, hófst fundur að nýju með því, að dr. Stefán Aðalsteinsson flutti erindi. Stefán sagði m. a.: Grundvöllurinn sem búrekstur okkar byggist á, er landið, ýmist óræktað, hálf ræktað og fullrækt- að. Þetta land notum við til þess að hafa á sauðfé og naut- gripi til framleiðslu á söluhæfum viirum. Til búrekstursins eða til nýtingar á landi til fóðuröflunar, þurfum við vélar til jarðvinnslu, fóðurtegundir til að sá, áburð til aukningar á uppskeru, vélar til fóðuröflunar, geymslu fyrir fóður, búfé til þess að breyta fóðri í afurðir, byggingu yfir brtfé, og síðast en ekki sízt þekkingu til að nýta þessa þætti búskaparins á sem hagkvæmastan hátt. Meginhlutverk hagnýtra landbún- aðarrannsókna væri að afla nýrrar þekkingar, sem nota má til bættra búskaparhátta. Þá ræddi dr. Stefán um hvernig hugsanlegt væri að haga þessari þekkingarleit. Meta þyrfti hvar þekkingarskorturinn stendur mest fyrir þrifum. Þá gerði hann samanburð á ýms- um þáttum búreksturs hér og í öðrum löndum, og nefndi dæmi um þekkingu, sem hægt væri að fá annars staðar frá og sannreyna við hérlendar aðstæður. Hann nefndi dæmi um verkefni, sem taka þyrfti til rannsóknar, s. s. rafgirð- ingar fyrir sauðfé, tilraunir með jarðvinnslu o. fl. Þá nefndi hann dæmi um þekkingu, sem væri fyrir hendi, en ekki nýtt, t. d. varðandi framleiðslu á gráum gærum og jafnvel hvítum. Margt fleira kom fram í erindi dr. Stefáns varðandi þörf- ina á rannsóknum í landbúnaði og hugsanlegan raunveru- legan árangur. Síðan vék ræðumaður að störfum Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, hvaða mannafli væri þar, og að hvaða verk- efnum væri unnið. 92

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.