Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1959, Page 142

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1959, Page 142
142 HALLDÓR HERMANNSSON (assistant professor) 1920—-24 og prófessor 1924—46. En hann hélt bókavarðarstöð- unni tveim árurn lengur eða þar til hann varð sjötugur 1948. Eitt ár, 1925—26, var hann bókavörður við Arnasafn við Kaupmannahafnarháskóla, og í Arnanefnd a. m. k. frá 1935—52. Um mörg ár var Halldór í útgáfunefnd bókmennta- og menningarfélags- ins American Scandinavian Foundation og fulltrúi þess (trustee) frá 1943. Fyrir það félag átti hann að skrifa íslandssögu, en ellin hindraði. Halldór var að sjálfsögðu margvíslegur sómi sýndur. Þannig varð hann RF (riddari fálkaorðunnar), Str (stórriddari fálkaorðunnar) og Str*F (stórriddari fálkaorðunnar með stjörnu). Halldór var gerður heiðursdoktor við Háskóla Islands 1930. Hann var og heiðurs- félagi Hins íslenzka Bókmenntafélags og Þjóðræknisfélags íslendinga í Winnipeg. Hann var bréfafélagi í Vísindafélagi Islendinga og í The Medieval Academy of America (sem gefur út tímaritið Speculum). Hann var og meðlimur í ný-mála-félagi Ameríkana. The Modern Language Association of America, sem gefur út PMLA og heldur fundi ár hvert milli jóla og nýjárs. Var Halldór að sjálfsögðu meðlimur í Norðurlandamála- deild þess og kom oft á fundi, meðan hann var frískur. HALLDÓR OG NEMENDUR Um kennslu Halldórs er rétt að leiða Richard Beck til vitnis, þar sem hann var fyrsti og eini nemandi hans íslenzkur, enda hefur hann skrifað meira um Halldór en nokkur annar maður. í Tímariti þjóðrœknisfélagsins 1941 segir hann svo: ,,Þó að bókavarðarstarfið og ritstörfin hafi verið meginþættirnir í starfi Halldórs Hermannssonar í Cornell. hefir hann samhliða þeim haft með höndum kennslu í nor- rænum fræðum frá því að hann gerðist þar bókavörður fyrir meir en 35 árum síðan; enda hefir Norðurlandamáladeild háskólans, undir handleiðslu hans, skipað öndvegis- sess meðal slíkra deilda vestan hafs, að því er íslenzk fræði snertir. Hann hefir kennt bæði forna íslenzku og nýja, og var um langt skeið eini háskóla- kennari í Vesturheimi, er kenndi nýmálið ásamt fornmálinu. Auk þess hefir hann flutt og flytur árlega (vitanlega á ensku) fyrirlestra um norræna menningu, sögu og bók- menntir. Er það orðinn álitlegur hópur nemenda, sem stundað hafa nám hjá honum í íslenzku og öðrum Norðurlandamálum, hvað þá þeir, er fræðzt hafa um norræn efni af háskólafyrirlestrum hans. Getur sá, er þetta ritar, borið um það af eigin reynd, að sarna alúð og vandvirkni einkenna kennslu hans sem ritstörf hans.“ Einn af eldri nemendum hans var Bertha Thompson; hún þýddi íslenzka smásögu fyrir American Scandinavian Review 1932. Beck varð fyrstur manna til að taka meist- ara- og doktorspróf undir handleiðslu Halldórs, þó í enskudeild skólans. En eini maður- inn sem las norræn fræði hjá Halldóri og Norðurlandabókmenntir og tók doktorsritgerð í þeim fræðum var John B. C. Watkins, þá ritari i American Scandinavian Foundation. Þetta var á stríðsárunum síðari. Síðar varð Watkins sendiherra Canada í Noregi og á
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.