Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1959, Page 145

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1959, Page 145
HALLDÓR HERMANNSSON 145 ekki fyrr en 1948—52. Annars fórum við Beck auðvitað fyrst í skrár Halldórs til að vita, hvort hann hefði ekki ártölin. Varð hann þannig fyrsta og stundum eina heimild okkar. En í öllu þessu verki sínu má nærri geta, hvort Halldór hefur ekki saknað skrár um íslenzka höfunda, enda var það eitt af fyrstu verkum hans, meðan hann var að vinna aðalskrána, að skrá íslenzka samtíðarhöfunda í Islandica (1913). Og þegar eg kom í safnið (1928), átti hann á miðum skrá yfir rithöfunda frá eldri tímum. I þessari skrá voru tilvitnanir i blöð og tímarit, sem eitthvað höfðu sagt um mennina; aftur á móti voru þarna ekki fullar ritaskrár manna, eins og hann hafði gert um lifandi höfunda 1913. Fann eg nú í skránni spjald um Halldór sjálfan og á því tilvitnun í Lögberg. Enn fremur var þar tilvitnun í grein eftir Sigurð Nordal um Halldór sextugan í Nýja Dag- blaðinu 6. janúar 1938. Hefur Halldóri að maklegleikum þótt mjög vænt um þá grein, því þeir Nordal voru miklir mátar. Eflaust hefur Halldór hugsað sér, að einhverntíma gæti komið að því, að hann gæfi út þetta rithöfundatal í Islandica. I formála stóru skrárinnar (1914) getur Halldór þess, að Fiske hafi verið byrjaður á vísindalegri skráningu íslenzkra bóka; en á eldri bókum fylltu titlarnir oft titilsíðuna alla. Halldór tók sér nú fyrir hendur að lýsa þessum bókum vísindalega í nokkrum árgöngum af Islandica, fyrst 16. aldar bókum (1916), síðan 17. aldar bókum (19221. Nokkrar viðbætur við þessar skrár birti hann í Bibliographical Notes (1942). Eitthvað var hann að hugsa um að halda áfram með 18. aldar bækur á sama hátt, en ekki varð af því. Hins vegar hélt hann áfram bókaskrám um fornritin. Skrá um Eddur kom 1920, viðbótarskrá um íslendingasögur 1935, en viðbætur við Konunga- og Fornaldarsögur 1937. Aður en framhaldsbindin af stóru bókaskránum eru tekin fyrir, er rétt að geta um rúna-bókaskrá, sem út kom 1917. Fiske hafði safnað hókum og ritgerðum um rúnir, svo að þetta safn mun hafa verið eitthvert hið bezta, er skráin kom út. En eftir það hætti Halldór að safna rúnum. Þá er komið að framhaldsbindum aðalbókaskrárinnar. Kom hið fyrra 1927 og hið síðara 1943; þá var safnið orðið 21.830 bækur, eða nærri helmingi stærra að bindatölu en þegar fyrsta skráin kom út. Skrána 1927 borgaði Halldór með prófessorslaunum sín- um 1925—26, er safnazt höfðu fyrir, meðan hann var bókavörður í Árnasafni. En hann fékk peninga úr Carnegie-sjóði til að gefa út skrána 1943. Nú eru allar skrárnar upp- seldar. En í erfðaskrá sinni gaf Halldór fé til að ljósprenta þær allar að nýju. Það hafði verið siður Halldórs, er hann var að búa sig undir stórskrárnar, að viða að sér bókum til að fylla skörð í safnið. Keypti hann oft í því skyni bækur af fornbóksöl- um við niðursettu verði. Var þetta tiltölulega auðvelt verk 1914 og 1927. En eftir það fór það saman, að hann hafði minni peninga að spila úr, en þeir verðlausari með ári hverju. Á stríðsárunum óx bóka- og blaðaframleiðsla svo, að engin tök voru á að kaupa nema úrval. Þannig hefur Halldór hætt að kaupa Alþýðublaðið 1940, en Vísi 1944. Svipuð skörð urðu í bókakaupin, sumpart fyrir trassaskap bóksala heima. Þegar Halldór hóf kennslu við Cornell voru byrjendalaun kennara 1500 eða 1700 Árbók Lbs. ’57-58 10
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.