Vísbending - 18.12.2000, Page 51
9*
\ of
H. Blönda/
Pétur H. Blöndal er fæddur árið
1944. Hann hélt til náms í
stærðfræði og fleiri greinum í
Þýskalandi og lauk doktorsprófi árið
1973. Fyrstu árin eftir að hann kom
heim sinnti hann kennslu við Háskóla
íslands en tók árið 1977 við starfi for-
stjóra Lífeyrissjóðs verslunarmanna.
Árið 1982 stofnaði hann, ásamt
nokkrum öðrum, fyrirtækið Kaupþing
hf. en meðal annarra stofnenda má
nefna Baldur Guðlaugsson ráðuneytis-
stjóra, Sigurð B. Stefánsson, fram-
kvæmdastjóra VÍB, og Ragnar Árna-
son prófessor. Áður var aðeins eitt fyr-
irtæki starfandi á því sviði, Fjárfest-
ingarfélag íslands hf. Markmiðið var
að starfrækja fyrirtæki sem veitti ah
hliða fjármálaþjónustu og Kaupþing
starfaði í nokkrum deildum, verðbréfa-
deild, útgáfu á Vísbendingu, ráðgjafa-
deild, fasteignasölu, innheimtudeild og
kröfukaupadeild. Árið 1984 tók Pétur
við starfi framkvæmdastjóra. Kaupþing
vakti athygli fyrir að vera framarlega á
sviði verðbréfaviðskipta og félagið rak
nokkra sjóði sem einstaklingar gátu
eignast hlutdeild f. Árið 1984 voru
vextir gefnir frjálsir og verðbréfafyrir-
tæki gátu boðið einstaklingum betri
ávöxtun en áður hafði þekkst. Fyrir
daga vaxtafrelsisins voru þeir sem
buðu lán á hærri vöxtum en banka-
kerfið gerði eftir forskrift ríkisins tald-
__ okurlánarar, en skyndilega varð
mönnum nú almennt ljóst að með því
að framboð og eftirspurn fengju að
ráða á þessum markaði myndi fljótlega
skapast jafnvægi og vextir gætu hækk-
að eða lækkað eftir aðstæðum. Pétur
hefur vakið athygli fyrir það að liggja
ekki á skoðunum sínum um málefni og
þykir oft yfirlýsingaglaður. Hann fjalh
aði oft um stöðu lífeyrissjóða, en hún
var veik hjá mörgum þeirra á þessum
árum, en forsvarsmönnum sjóðanna
þótti óviðeigandi að fjalla um slíkt op-
inberlega. Einnig lýsti Pétur því hve
hættulegt væri að fjármunir væru ekki
( eigu neins sérstaks og talaði um „fé
án hirðis“. Árið 1986 keypti Pétur hlut
félaga sinna í Kaupþingi en seldi svo
umsvifalaust sparisjóðunum 49% hlut
á hærra verði en hann hafði greitt fyr-
ir félagið allt. Hagnaður af Kaupþingi
fór vaxandi og athygli vakti þegar fé-
lagið birti auglýsingu í Morgunblaðinu
sem sýndi mikinn hagnað. Þjóðviljinn
taldi að gróðinn væri óeðlilegur en
Pétur svaraði því til að þóknanir hjá
Kaupþingi væru ekki meiri en annars
staðar en kostnaður fyrirtækisins væri
hlutfallslega minni en annarra. Um
þetta leyti fór verðbréfafyrirtækið
Ávöxtun á hausinn og mönnum varð
betur ljóst að miklu skiptir að rekstur
skili eðlilegum hagnaði. Pétur var
hugmyndaríkur stjórnandi og þótti
drífa starfsfólk áfram með dugnaði.
Hann gerir ekki mannamun og sagt
var frá því að einhverju sinni hefði Jón
Baldvin Hannibalsson, sem þá var
fjármálaráðherra, lagt skilaboð fyrir
Pétur en skildi ekki eftir símanúmer.
Pétur leit á skilaboðin og sagði: „Eg
má ekkert vera að því að elta ein-
hverja menn úti ( bæ, ég er að vinna.“
Árið 1990 seldi Pétur hlut sinn í
Kaupþingi til Búnaðarbankans og lét
af framkvæmdastjórn árið eftir. Hann
kenndi við Verzlunarskólann í nokkur
ár en var kosinn á Alþingi árið 1995
og situr þar enn.
51
Samherji