Frjáls verslun - 01.09.1942, Qupperneq 11
Versl unarrá ð Islands 25 ára
Verzlunarráð Islands var stofnað á svonefnd-
um „fulltrúafundi verzlunarstéttarinnar“, sem
haldinn var í húsi K. F. U. M. í Reykjavík 17.
sept. 1917. Var stofnun þess einskonar fram-
hald á starfsemi kaupmannaráðs Islands, sem
starfaði hér í Reykjavík um nokkur undanfar-
in ár. Kaupmannaráðið undirbjó stofnun Verzl-
unarráðsins og var ætlunin að stofna einskonar
fulltrúanefnd fyrir verzlun, iðnað og siglingar.
Á stofnfundinum, 17. september 1917, lagði Jes
Zimsen fram furmvarp kaupmannaráðsins til
laga fyrir hið nýja verzlunarráð, og var tilgang-
ur þess ákveðinn sá, að vernda og efla verzlun,
iðnað og siglingar landsmanna, og settar regl-
ur um störf þess í einstökum atriðum. Það voru
156 kaupsýslumenn og fyrirtæki sem stofnuðu
verzlunarráðið, en fljótt bættust fleiri við, og
hefir félagatala þess aukizt mjög síðan. Fyrstu
fulltrúar verzlunarráðsins voru þeir Jes Zim-
sen, Garðar Gíslason, Jón Brynjólfsson, Ólafur
Johnson, Carl Proppé, Jensen-Bjerg og Olgeir
Friðgeirsson, og var Garðar Gíslason kosinn
fyrsti formaður þess og hefir hann ætíð síðan
verið í stjórn þess, en formaður á árunum 1917
—1921 og frá 1922—1934. Ólafur Johnson var
formaður 1921 og Hallgrímur Benediktsson frá
1934 til þessa dags.
Síðan verzlunarráðið var stofnað hafa geng-
ið yfir landið miklir örðugleikar í verzlun og
viðskiptum, og hefir ráðið haft til meðferðar
fjölda mála, sem miðuðu að því að bæta hag
verzlunarstéttarinnar og greiða úr örðugleik-
um hennar innanlands og utan. I minningarriti
því, sem verzlunarráðið hefir gefið út á 25 ára
afmæli sínu, er saga þes srakin og drepið á þau
mál, sem mestu varða og skal aðeins fátt eitt
af því talið hér. Verzlunarráðið hefir haft mikil
afskipti af ýmsum löggjafarmálum, sem verzl-
unarstéttina vörðuðu, allt frá því er það var
stofnað. Einnig hefir verzlunarráðið haft mikil
afskipti af verzlunarskólanum og tók það að
sér umsjón og fjárhald skólans árið 1922 af
kaupmannafélaginu og Verzlunarmannafélagi
Reykjavíkur, en þá var fjárhagur skólans mjög
erfiður, en verzlunarskólinn er nú orðinn eins-
konar sjálfseignarstofnun og hagur hans blóm-
legur. Verzlunarráðið hefir frá upphafi haldið
uppi skrifstofu í Reykjavík og var fyrsti skrif-
stofustjóri þess Georg Ólafsson, sem lét af því
starfi er hann varð bankastjóri Landsbankans.
Eftir það varð Björn Sigurðsson um tíma skrif-
stofustjóri, en þar á eftir var Sigurður Guð-
mundsson ritari skrifstofu ráðsins og einn
starfsmaður þess um skeið. Árið 1934 varð dr.
Oddur Guðjónsson skrifstofustjóri ráðsins og
hefir síðan hvílt á honum meginþungi allra
Garðar Gíslason
fyrsti formaður V. I.
Björn Ólafsson
í stjórn 1937—’'42.
Richard Thors
í stjórn 1929—’42.
PRJÁLS VERZLUN
11