Frjáls verslun - 01.12.1955, Page 19
„Hér verður hann ekki krossfestur."
Gamla konan leit upp til hennar tárvotum aug-
um, sagði styrkari en áður:
„O blessuð, o, blessuð sért þú ævinlega og þitt
móðurhjarta."
Svo tók hún að róa og raula, slitrótt og með
fagnaðarblöndum klökkva:
„Þér gjöri ég ei rúm með grjót né tré,
gjarnan læt ég allt í té,
vil ég mitt hjartað vaggan sé,
vertu nú hér, minn kæri;
með vísnasöng ég vögguna þína hræri."
Það fengust engar fregnir af því, að konan með
barnið hefði komið að Hömrum. Ef til vill hafði
hún farið lengra, alla leið út fyrir nes eða norður
yfir heiði. En þangað áttu engir erindi, búsettir í
★
Ameríkani á ferðalagi í Bretlandi sat andspænis
gamalli konu í járnbrautarklefa. Hann tuggði
jórtuleður í gríð og erg án þess að mæla orð af
vörum. Eftir stundarkom stóðst gamla konan ekki
mátið og hallaði sér áfram:
„Það er mjög elskulegt af yður að reyna að
halda uppi samræðum," sagði hún. „En ég vehð
að segja yður, ungi maður, að ég heyri hræðilega
illa."
þessari sveit. Svo varð þá til helgisögn um konuna
og bamið. Hún fór lágt, því að menn vildu ógjam-
an láta saka sig um guðlast, en frá kynslóð til
kynslóðar hefur hún borizt, hefur til þessa verið
sögð þama í fjörðunum.
American Express
Framh. aj hh. 152.
að búa um könnuna. Þegar hún byrjaði á ný sagði
ég:
— Nét, nét. Vo bú-já she.
— Við skiljum ekki rússneskuna þína, sagði
hann.
— Hvað er nei á kínversku.
— Vo já she, sagði hann.
— Ég á ekki fyrir þessu, sagði ég og notaði
ekki vo já she, af því ég vissi það þýddi ekki nei.
Stúlkan hafði búið um könnuna í brúnum umbúða-
pappír og Wangi-boy fór oní skyrtuvasa sinn
eftir þriggja yena seðli. Þegar hann hafði fengið
til baka, rétti hann mér könnuna;
— Ég get ekki tekið við henni, sagði ég.
— Vertu rólegur.
— Nei, nei.
— Þú getur verið eins mikill framsóknarmaður
og þú villt, eða hvað sem íhaldið þitt heitir á Is-
landi. En þessa könnu gefur þú henni móður þinni
frá mér. Hann sagði þetta mjög ákveðinn og horfði
ofarlega í gegnum gleraugun. Ég hristi höfuðið, en
hann kom nær mér og tróð könnunni í vasa minn.
Honum gekk þetta illa og ég varð að hjálpa hon-
um. Þegar við komum út, gengum við yfir að
bifreiðunum og settumst inn meðan við biðum
eftir mönnunum með American Express ávísan-
imar.
lleykjavík 'í nóvcmber.
FRJÁLS VERZLUN
103