Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1955, Síða 21

Frjáls verslun - 01.12.1955, Síða 21
listafélagsins. í þessi rit var skrifað um margt, sem fátt hafði verið um fengizt í íslenzkum bók- menntum áður. Meðal annars var birt þar ýmis- legt um þeirra tíma athuganir á búfræði og nátt- úrufræði. En til þess að geta tjáð niðurstöður fræðimanna um þessi efni reyndist nauðsynlegt að smíða ný orð. En ég efa, að menn geri sér almennt grein fyrir því, hve þeir, er þá þurftu að smíða ný orð, áttu rímnaskáldunum mikið að þakka — mönnunum, sem gert höfðu list orðmynd- unar að eins konar ævistarfi. Það er alveg óvíst, hve íslenzkan hefði reynzt þjál til nýyrðasköpun- ar, ef ekki hefði verið eins mjög á hana reynt í þeim efnum frá upphafi vega. Ég hefi ekki hugsað mér að rekja hér sögu ný- yrðasköpunar á Islandi. Ég vildi aðeins benda á, að jafnframt því sem íslenzkan hefir geysimikinn efnivið orðstoina til þess að skapa úr nýyrði, hefir hún einnig gamiar erfðavenjur við að styðjast. Og það gerir okkur leikinn miklu auðveldari en öðr- um þjóðum, sem að vísu hafa mikinn efnivið, en takmarkaðar erfðavenjur. IV. Eins og alþjóð er kunnugt, stendur nú yfir ný- yrðasöfnun á vegum Menntamálaráðuneytis. For- saga þess máls er sú, að Björn Ólafsson, fyrrver- andi menntamálaráðherra, beitti sér fyrir því á Alþingi 1951, að veitt yrði fé til nýyrðasöfnunar. Sami ráðherra hafði áður lagt fram á Alþingi frumvarp um stofnun Akademíu Islands, sem hefði sérstaklega það hlutverk með höndum að annast íslenzka málvernd. Þessi hugmynd ráðherrans fékk ekki hljómgrunn í sölum þingsins, þótt stærsta þjóð Norðurlanda, Svíar, hefðu reyndar séð ástæðu til þess að stofna Akademíu á 18'. öld. En ráðherrann reyndi að bjarga því, sem bjargað varð. Hann fékk samþykkta fjárveitingu til ný- yrðasöfnunar, og þegar var hafizt handa. Björn ráðherra fól orðabókarnefnd Háskólans að hafa yfirumsjón með nýyrðasöfnuninni. I þessari nefnd eiga sæti þeir prófessorarnir Alexander lóhannes- son (formaður), Einar Ól. Sveinsson og Þorkell Jóhannesson. Hlutverk þessarar nefndar var áður aðeins fólgið í því að annast yfirstjóm hinnar vís- indalegu íslenzku orðabókar, sem nú er unnið að í Háskólanum. En nú fékk hún víðara verkssvið. Orðabókamefndin varð vitanlega við tilmælum ráðherrans. Hún réð dr. Svein L. M. Bergsveinsson, nú prófessor í Berlín, til þess að annast ritstjórn fyrsta heftis. FR.TÁtS VPRZI.TTN Fyrsta hefti nýyrðasafnsins kom út 1953, og hafði verið í það safnað orðum úr eðlisfræði, raf- tækni, efnafræði, bifvélatækni, sálarfræði, rök- fræði, erfðafræði og fleiri greinum. Sé það fjarri mér að gagnrýna starf dr. Sveins. Mér er kunnugt um, að hann vann ósleitilega að söfnuninni. En allt um það er óþarft að draga fjöður yfir það, ■— en það er vafalaust ekki Sveins sök, — að upp- hafleg áætlun um nýyrðasöfnunina var reist á of mikilli bjartsýni. Það kom mjög fljótlega í ljós, að taka þurfti hverri grein rækilegra tak en gert var í fyrstu. Það voru ekki fræðilegar ástæður, heldur hagnýtar, sem réðu því, að svo mörg verkefni vom tekin til meðferðar í 1. hefti nýyrðasafnsins. Dr. Sveini bauðst prófessorsstaða í Berlín í árs- byrjun 1953, og tók hann við þeim starfa, nokkru eftir að i. hefti nýyrðasafnsins kom út. Formaður orðabókamefndar, dr. Alexander Jóhannesson, fór þess á leit við mig, er dr. Sveinn hvarf af landi brott, að ég tæki að mér starf hans við nýyrða- söfnunina, og varð það að ráði. Varð mér að ómet- anlegu gagni sú reynsla, sem fengizt hafði af starfi dr. Sveins við Nýyrði I. Ég hófst þá þegar handa að safna nýyrðum, er varða sjómennsku og land- búnað. Reyndist það allerfitt og tímafrekt starf. Einkum var örðugt að eiga við sjómennskuna. Ég get t. d. getið þess, að furðulítið virðist hafa verið skrifað um veiðiaðferðir sumar, t. d. togveiðar. Varð ég því að snúa mér til togarskipstjóra og leita fróðleiks hjá þeim. Reyndust þeir mér mjög vel. En ég hygg þó, að nauðsynlegt reynist að gera sjómannamálinu betri skil síðar, þótt viðurkenna verði, að góður stofn er þegar fenginn. Niðurstöð- umar af söfnun nýyrða úr sjómennsku og land- búnaði birtust í Nýyrðum II og III (Rvk. 1954 og 1955). Það er vitanlega ekki mitt að dæma, hvemig tekizt hefir. Það verða aðrir að gera. 1 þeim þremur nýyrðasöfnunum, sem út eru komin, hafa birzt um 12. þús. orð. Og enn er ekk- ert lát á þessari starfsemi. Nú er unnið að söfnun orða úr flugmáli og útgáfu heftis um það efni. Hefir vinna við þetta tekið langan tíma, en henni er nú langt komið. Má búast við, að heftið um flugmál komi út snemma á næsta ári. Agnar Koe- fod Hansen átti frumkvæði að því, að flugmálið var svo snemma tekið til athugunar. Á hann miklar þakkir skildar fyrir það. Orðabókarnefnd hafði vit- anlega gert sér ljóst, að gera varð þessu efni skil. En henni var jafnframt kunnugt um það, að erfið- ara var um vik að safna orðum um þetta efni en flest önnur, vegna þess að heimiidir voru svo 165

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.