Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1955, Qupperneq 27

Frjáls verslun - 01.12.1955, Qupperneq 27
orðið var. Hinir ókunnugu gestir, sem þetta minnilega kvöld bar að garði á Sporði voru tveir bændur utan af Vatnsnesi, Þorgrímur Jónatansson á Kárastöðum og Stefán Þorsteinsson í Sauðadalsá, en þriðji gesturinn var bónda- sonur austan úr Vatnsdal, Þorsteinn Konráðsson frá Hauka- gili. Voru þeir á leið austan úr Vatnsdal og ætluðu vcstur um. Menn þessir höfðu nóttina áður gist á Jörfa í Vatnsdal, komust þaðan tiltölulega se nt af stað en ætluðu að komast vestur á Vatnsnes um kvöldið. Þegar þeir voru komnir vestur fyrir Víðidalsá, var komin feikna fannkoma svo að nýsnævi óðu þeir í miðjan legg. Hinsvegar var veður gott að öðru leyti og blæja logn. Þegar þeir félagar voru komnir á Selásinn, bar sem hann ber hæst, námu þeir staðar til þess að ráða málum sínum. Kafaldið hafði þá aðeins rénað í bili, en koldimmir klakk- ar allt í knng. Æsings bnmhljóð barst til eyrna þeirra norðan af söndunum og í norðri sáust á stöku stað rjúka sviptivindar, sem þyrluðu snjónum í geysiháa stróka. Mönn- unum þremur var það af gamalli veðurreynslu ljóst, að brátt myndi skipast veður í lofti og sennilega svo um munaði. Ræddu þeir hvort skyldi heldur halda áfram eða snúa til baka, en þar sem cinn þeirra, Þorgrímur Jónatansson, hafði áður verið bóndi í Sporði, þaulkunnugur öllum staðháttum og kennileytum og auk þess þckktur að ratvísi og öryggi var ákveðið að halda áfram og freista að ná Sporði. Var Þor- grímur sjálfkjörinn fararstjóri. Héldu þeir félagar síðan af stað og vestur götusneið- ingana í Selásnum að svo miklu leyti sem unnt var að fylgja þeim vegna snjólaga og snjóblindu. En beir voru vart komnir niður í þá miðja er fyrsta bylgusan reið yfir og síðan hver af annarri unz komin var samfelld iðulaus stórhríð, svo dimm að ekki sá út úr augunum. Veðurhæðin óx með hverju augnablikinu sem leið og innan stundar var veðrið óstætt orðið. Vindstaðan var á hlið við bá félaga en þegar snjórinn þyrlaðist um andlit þeirra og vit voru þcir komnir að köfnun og urðu þráfaldlega að snúa sér undan veðrinu til þess að ná andanum. Þegar veður hafði vaxið í þvílíkum mæli, tók Þorgrímur til þess ráðs að binda þá þremenmnga saman með snæri, sem hann bar á sér. Var þá svo komið að ekki var lengur stætt og urðu þeir að skríða. Skreið Þorgrímur fremstur en hinir á eftir. Allt í einu stanzaði Þorgrímur við það að hann var konnnn fram á þvcrhnípta brún, en eftir nokkra athugun kom í ljós að þeir voru staddir á húsþaki. Var þá leitað niðurgöngu og síðan leitað dyra. Þarna var um tómt fjár- hús að ræða, dyr stóðu opnar og hafði allmikið fennt inn um þær. Þóttist Þorgrímur í húsi þessu þekkja eitt fjár- húsanna í Sporði, myndi það vera Hólshús ncfnt og standa syðst í túninu, en bæjarhús nokkru norðar. Varð að ráði milli þeirra þriggja að tveir skyldu leita „Sagt var að þá er líkin fundnst hafi ]ón setib u-p-pi með son sinn í fanginu . . .“ bæjar, en sá þriðji halda sig við fjárhúsið og hóa eða kalla. Áður en til þessara framkvæmda kænn bar að fjórða mann- inn, sem var eins og hrundið inn í húsið til beirra, svo var veðurhæðin gífurleg. Var þar konnnn Bjarni Sigurðs- son að leita Sporðsfeðga. Ekki kvað Bjarni þá vera stadda í Hólshúsinu heldur í öðru húsi skammt vestan við bæ- inn. Þótti þeim þremenn ngum þá sýnt að ef Bjarna hefði ekki borið að og þcir hinsvegar haldið í norðurátt í leit að bænum, eins og þeir höfðu ætlað sér, myndu þeir aldrei hafa fundið hann og viðbúið að þeir hefðu borið bein sín í villu og hríð í mýrarauðninni. Bauðst Bjarni til að fylgja aðkomumönnum til bæjar og hafði þá enn harðnað veðrið, enda sögðu þeir félagar síðar svo frá, að það hafi verið karlmennskuraun hin mesta að komast þessa stuttu leið milli fjárhúss og bæjar. Enda þótt þeir væru hraustmenni hin mestu og á bezta aldursskeiði urðu þeir að skríða og halda sér föstum í taðköggla, sem frosið hafði niður í svörðinn. Þcgar heim í bæjardyrnar kom fennti þar allt upp í einni svipan og gekk illa að loka hurðinni. Varð það ekki gert fyrr en Bjarni sótti tré eitt mikið upp á bæjarþak og spennti það fyrir hurðina. Er gestirnir höfðu skafið af sér mestu fönnina gengu þeir til baðstofu og var þar tekið með íslenzkri gestrisni eftir því sem efni og föng stóðu til. Baðstofan var lítið hús en sæmilegt, eftir því sem þá gerðist á minni bæjum. Hún var 9 álna löng og um 6 álnir á breidd. Afþiljuð var hún og inngangur fyrir miðjum stafni. Fimm rúm voru í stofunni, en eldavél í sjötta rúm- stæðinu og þar voru vosklæði gestanna þurrkuð. Ekki var um aðra upphitun að ræða, nema það sem yljaðist frá elda- vélinni, enda kólnaði mjög í baðstofunni, og töldu a. m. k. sumir gestirnir sig hafa orðið að ganga um gólf um nótt- ina til þcss að halda á sér hita. Ljós týrði á lampa og úti fyrir geysaði tryllt fár\4ðrið svo baðstofan nötraði og skalf, enda hrikti og brast í hverju tré undan átökum hinna ofsa- legu hamveðra. FHJÁLS VERZLUN 171

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.