Frjáls verslun - 01.12.1955, Síða 40
Tvígift konct sagði einu sinn við seinni mann
sinn: ,,Mikið getur þú verið matvandur. Það er
munur á þér og fyrra manni mínum. Aldrei fann
hann að mat hjá mér."
„Já, en hann dó nú líka," sagði þá maður
hennar. ISLENZK FYNDNI
★
Sá, sem hefur hugann við starfið, kemst áfram,
en sá , sem hefur starfið á heilanum, verður hálf-
vitlaus. LION-MAGAZINE
★
Tveir menn, er höfðu ferðast víða um heim, voru
að ræða saman um ýmsa þá staði, er þeir höfðu
heimsótt:
„London," sagði annar, "er ábyggilega mesta
þokubæli í heimi."
„Nei, það held ég ekki," sagði hinn. „Ég hef
komið til staðar, sem er meira þokubæli."
„Hvar var það?" spurði vinur hans.
„Ég veit það ekki," svaraði hinn, „ það var svo
mikil þoka, að ég get ekki sagt írá því."
★
Stúlka er orðin fullvaxta, þegar piltarnir hætta
að elta hana, en eru byrjaðir að fylgja henni
heim. FEMINA
★
Lítill drengur angraði stúlku, er sat við hlið
hans í strætisvagni, með því að sjúga stöðugt
upp í nefið. Stúlkan þoldi þetta ekki til lengdar.
„Drengur minn, hefur þú ekki vasaklút?" spurði
hún gremjulega.
Litli drengurinn horfði á hana stundarkorn og
sagði síðan: „Jú, en mamma sagði, að ég mætti
ekki lána hann ókunnugum. VARIETY
★
„Mamma, má ég synda líka?"
„Nei, barnið mitt, vatnið er hættulegt hérna."
„En pabbi er að synda."
„Já, góða mín, pabbi er líftryggður."
★
Við réttarhöld í máli einu lýsti annar málsaðili
hinum sem brögðóttum náunga, sem einskis svif-
ist og bætti við til áherzlu máli sínu: „Hann er
sú manntegund, herra dómari, sem aldrei horfir
beint framan í yður, nema ef þér snúið við honum
bakinu."
★
Heyrt á förnum vegi:
Nóbelslaunin Laxness hlýtur,
lofið hæst og krónur margar.
Loksins er það lús og skítur
landinu, sem varð til bjargar.
r--------------------------------------------------->|
„FRJÁLS VERZLUN"
Ctgejandi: Vcrzlunarmannafélag Rcykjavíkur.
Formaður: Guðjón Einarsson.
Ritstjórar: Guimar Magnússon og Njáll Simonarson.
Ilitnejnd: Rirgir Kjaran, formaður. Gunnar Magnússon,
Ingvar N. Pálsson. Njáll Símonarson, Olafur I.
Hannesson, Oliver Steinn Jóhannesson og Pétur
Sæmundsen.
Slcrijstofa: Vonarstræti 4, 3. hæð, Reykjavík. Sími ótas.
VÍKINOSPHENT
>.-------------------------------------------------
184
FRJÁI.S VERZLUN