Frjáls verslun - 01.05.1959, Page 26
1
Ég veit ekki, hvort þessi mynd getur minnt aðra en mig
á neitt. . . .
sérstakri nefnd innan OEEC, og athugar hún jafn-
framt, hvort fiskiafurðir skuli sæta sérstakri með-
ferð. Fulltrúar héðan að heiman hafa sótt fundi
þessarar nefndar.
Þarna ríður á, að við séum vel á verði. Afstaða
okkar hlýtur að mótast af hagsmunum landsins.
Eigum við að leggja lóð okkar í vogarskálina þeim
megin, að fiskiafurðir séu undanþegnar fríverzlun-
inni, eða eigum við að vinna að því, að þær verðt
með í kerfinu? Ennþá eru nuklar hömlur á inn-
flutningi fisktafurða víða í Evrópu, og okkur væn
að sjálfsögðu hagur að því að fá þær afnumdar, ef
við verðum ekki dœmdir úr leik um að njóta hlunn-
indanna. Á hinn bóginn gæti aðstaða okkar hugs-
anlega stórversnað frá því, sem nú er, ef við stönd-
um utan við fríverzlunarsvæðið og tollar og aðrar
innflutningshömlur á ftsktafurðum er afnumið inn-
an þess.
En höfum vtð nokkra von um að njóta þessara
fríðtnda, ef heimtað er quid -pro quo, — að menn
gjaldi líku líkt?
Innflutningstollar, sem eingöngu miðast vtð að
vera tekjulind fyrir ríkissjóð, verða væntanlega vtð-
urkenndir, hins vegar ekki verndartollar. Getum
vtð fallizt á það?
Takmörkun á innflutningi, hvort sem er af
hálfu ínnflutmngsskrifstofu eða millibankanefnda,
má ekki haldast uppi. Er nokkurt vit í slíku fyrir
Island?
Margs konar gengi peninganna gagnvart er-
lendum gjaldeyn verður á svörtum lista. Gætu Is-
lendingar sætt sig við það?
Utflutningsuppbætur verða útskúfunaratriði,
jafnt þótt þær væru færðar í dularklæði framleiðslu-
styrkja. Hvar stæðum við, ef við ættum að sjá af
þeim fríðindum?
Ég er ekki að þessu sinm að bera fram neinar
tdlögur um það, hvernig svara beri þessum spurn-
ingum og vafalaust mörgum öðrum, sem upp
hljóta að koma í sambandi við þátttöku okkar í
hinum frjálsa markaði. Ég nefm þetta aðeins til
umhugsunar, því að íslendmgar verða að hafa hug-
fast, að um það getur orðið að velja, annað hvort
að fylgja leikreglunum, ef þeir vilja njóta fríðind-
anna, eða að vera dæmdir úr leik.
Erum við nú á þeirri leið, sem gerir auðveldara
að fá að vera með í leiknum og koma okkar sjónar-
miðum að um leikreglurnar sjálfar?
Þetta var síðasta spurningm, og nú hætti ég.
Aðeins ein smásaga að lokum. Ég minnist ágætr-
ar skopmyndar eftir hinn danska teiknara Storm-
Petersen. Svangur hundur var að sníkja af herra
sínum, sem sat við matborðið. Karlinn tók hníf,
skar rófuna af hundinum og gaf honum.
Ég veit ekki, hvort þessi mynd getur minnt
aðra en nug á neitt, sem er að gerast á Islandi í
dag.
26
FRJÁLS VERZLUN — FYLGIRIT