Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1959, Síða 34

Frjáls verslun - 01.05.1959, Síða 34
kallaðir og voru orðnir einskis virði, meðan verið var í burtu. — Ástæðan til þess að ég var á þessu flakki, var einmitt sú, að ég var sendur landa á milli til þess að vinna að verzlunarsamnmgum fyr- ir Island, svo að ég befi ofurlitla reynslu af höft- unum, sem ég var að tala um. En svo mikil hefir breytingin orðið í þessum efnum í Evrópu vestan tjalds, að það er ekki aðeins að menn ferðist nú óhindrað og áritunarlaust milli flestra eða allra þátttökurikja í efnahagssamvinnunni, heldur eru verzlunarhöft víðast hvar að verða öllum almenn- ingi gleymt hugtak í þessum löndum. — Það væri þá helzt að ísland hefði verið fastheldið á fornar minjar, og að sú þjóð, sem þetta land byggir, befði enn skilyrði til þess að skilja af reynslu, hvað átt sé við með innflutningsleyfum, gjaldeyrisleyfum, yfirfærsluleyfum, útflutningsleyfum, útflutnings- styrkjum, niðurgreiðslum og uppbótum og hvað þeir nú heita allir dýrgripirnir á þessu minjasafni, — þessir munir, sem grannþjóðir okkar hafa verið að keppast við að kasta fyrir borð á undanförnum árum. Aukið frelsi — Við vitum ennþá, hvað það er að búa við þessa hluti, og einmitt þess vegna er okkur þörf á að íhuga, hvermg það væri að vera án þeirra. Eíafa þau lönd, sem losað hafa um höftin eða sleppt þeim alveg, gengið til góðs götuna fram eftir veg undanfarinn áratugp Ég veit, hversu þreytandi það er að hlusta á tölur í útvarpserindum, og skal því ekki nefna mörg dæmi, þótt af nægu sé að taka. Heildarfram- leiðsla þátttökuríkjanna var 58% hærri árið 1957 heldur en 1948. Neyzla almennmgs hafði ekki aukizt alveg eins mikið, en þó mjög verulega eða um 44%, og framleiðsla á stáli og rafmagni, sem einmitt er góður mælikvarði á grundvallaratriði í iðnaðinum, hafði meira en tvöfaldazt. Rœða Adarshalls — ,,Niet“ Adolotovs Það átti sér vitanlega sinn aðdraganda, að Efna- hagssamvinnustofnuninni var komið á laggirnar. Stundum er erfitt að benda á emstakt atvik, er komið hafi af stað merkilegri sögulegri þróun, en hér er auðvelt að benda á þáttaskilin. Hinn 5. júní 1 947 hélt þáverandi utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, Marshall hershöfðingi, ræðu í Harvardhá- skólanum og bauð Evrópu hjálp Bandaríkjanna til fjárhagslegrar viðreisnar. Hann setti aðeins eitt skilyrði, — Evrópa yrði að ganga að því að hjálpa sér jafnframt sjálf, þ. e. a. s. hvert Evrópuríki yrði að fallast á að reyna að styðja hin í hinm sameigin- legu viðreisn. Vegna þess að oft verður vart misskilnings ein- mitt um það atriði, er vert að minna á það, að til- boði Marsballs var ekki beint gegn neinum, nema aulaskapnum og öngþveitinu. Það náði jafnt til Austur-Evrópu og Vestur-Evrópu, enda tók Molo- tov þátt í fyrstu undirbúningsráðstefnu Evrópu- stórveldanna um málið, sem baldin var í París þeg- ar í júní 1947- En þetta gerðist meðan niet-tíma- bilið var í fullum blóma, og það var ekki aðeins að Stalín hafnaði þátttöku Sovétríkjanna, heldur bannaði hann grannríkjum sínum þátttöku, ef þau vildu halda vináttu hans. Reiptog mm milljarðana 1 fyrstu var það aðalverkefm stofnunarinnar að skipta efnahagsaðstoð Bandaríkjamanna milli þatt- tökuríkjanna, en þessi aðstoð, sem veitt var á ár- unum 1948—52, — Marshall-féð, — nam sam- tals meira en 13 milljörðum dollara. Bandaríkja- menn sögðu: Við viljum að sönnu fylgjast með því, hvernig þessu fé er vanð, en þið verðið að koma ykkur saman um það sjálfir, hvernig þið skiptið því. Áheyrendur mínir geta vafalaust gert sér í hugarlund, að það var ekkert smáræðis reip- tog, sem átti sér stað innan stofnunarinnar um skiptingu Marshalls-fjárins, og að margur þóttist eiga að fá meira að lokum. En öll árin tókst það samt að ná fullu samkomulagi um skiptinguna, því að samhljóða atkvæði aðildarríkjanna þurfti um þetta, svo sem öll önnur meiri háttar atriði. Það var því engin smávegis þjálfun í samvinnu fyrir snuð sinn en hann hlaut 34 J'RJÁLS VEUZLIJN — FYLOIRIT

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.