Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1959, Síða 39

Frjáls verslun - 01.05.1959, Síða 39
inu, og kapellur í bönkunum, sem verzla með er- lendan gjaldeyri. Ég hefi svo mörg orð um þetta, af því að mér er ljóst, að hér á landi er nú að vaxa upp kynslóð manna, sem ber hita og þunga dagsins í viðskipt- um sem öðru, en hefir aldrei kynnzt frjálsum við- skiftum af eigin raun, kynslóð, sem hefir tilhneig- ingu til þess að lita á það sem náttúrulögmál, að ekkert megi gera án leyfis yfirvaldanna. Við megum ekki lá þeim, sem aldrei hafa séð hest hreyfa sig án hnappeldu á framfótum, þótt þeir telji það eðlilegt göngulag hestsins að hoppa í hafti, en við þurfum að reyna að vekja hjá þeirn forvitnina á því hvermg fæn, ef við skærum á hnappelduna. Ég hefi nú rætt nokkuð um strauma og stefn- ur í verzlunarmálum hér ínnanlands. Þótt forvíg- ismennirnir að þessum stefnum eigi ýmist lof eða last fyrir aðgerðir sínar, er ekki því að leyna, að afstaða leiðtoganna, hvort heldur hefir verið í átt frelsis eða ríkisforsjár, hefir markazt af þeim stefn- um, sem uppi hafa verið erlendis. Ekki er laust við að mér hafi þó fundizt við fljótan til náms á það sem síður skyldi, haftastefn- una, þegar hún hefir skotið upp kollinum erlend- is. „Auðlærð er ill danska“ var máltæki í æsku minni. Það er a. m. k. svo, að undanfarin i o ár hef- ir haftastefnan verið á hröðu undanhaldi í hinum frjálsu löndum, og þá fyrst og fremst í þátttöku- ríkjum Efnahagssamvinnustofnunar Evrópu eða vestan tjalds á alþýðlegu máli. Fáni viðsloptafrelsisins hefir nú aftur verið dreg- inn að hún hjá þeim þjóðum, sem eru í farar- broddi í sókn vestrænna þjóða fram á við. En þótt ég segi, að þessi fám hafi ,,aftur“ venð dreginn að hún, er það ekki svo að skilja að fylgismenn viðskiptafrelsisins í dag hafi ekkert lært og engu gleymt. Forvígismenn viðskiptafrelsisins a ip. öld höfðu kjörorðið ,,laissez-faire“ — „látið það eiga sig“, en slíkt algert afskiptaleysi á sér formælend- ur fá í dag. Styðjum hver annan til heilbngðrar samkeppni, gæti verið kjörorð OEEC; innan þess félagsskapar er að miklu leyti um jafningja að ræða, Hvad getur embættið gert fyrir yður? en hin nýja afstaða gagnvart þeim löndum sem skemmra eru komin í efnahagsþróun, er þó kann- ske enn merkilegri. Áður var litið á þessi lönd sem akur auðmagnsins frá iðnaðarlöndunum; nú cr höfuðáherzlan lögð á að hjálpa þeim fram á við, til efnahagslegrar og pólitískrar velmegunar og sjálf- stjórnar. Alþjóðastofnanirnar, sem að þessu vinna, eru orðnar margar. Alþjóðabankinn, Alþjóða-gjaldeyr- issjóðurinn, Matvælastofnun S.Þ. Kannske mætti einnig nefna UNESCO og Heilbngðismálastofn- un S.Þ. (WHO) í þessu sambandi. NATO get- ur, auk þess að vera varnarbandalag, verið milli- göngumaður um fjárhagslegan stuðning þátttöku- ríkja hvers við annað, — svo senr dænnn sanna. Þó er það OEEC ásamt dótturstofnun sinni EPU — Greiðslubandalagi Evrópu—, sem mestu hefir kom- íð til leiðar um frjálsari verzlun og frjálsari greiðsl- ur innan Evrópu. Þaðan hefir á undanförnum i o FIUÁLS VEHZLUN — FYLGIRIT 3!)

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.