Frjáls verslun - 01.05.1959, Page 47
kvæmd samningsins eða endurskoðun til hennar,
e£ aðrar leiðir reynast ófærar. Þótt þessi sérstaka
nefnd hafi ekkert endanlegt úrskurðarvald, er
þarna mikil stoð fyrir þann, sem flytur sanngjarnar
kröfur, en þykist ekki mæta nægum skilningi.
I yfirlýsmgu fastafulltrúa Isands, Hans G.
Andersens sendiherra, á ráðsfundi Efnahagssam-
vinnustofnunarinnar er lýst afstöðu ríkisstjórnar
Islands um tvö efnisatriði. Þarna er raunar komizt
dálítið óvenjulegða að orði, að nnnnsta kosti í hinni
íslenzku þýðingu textans, því að sagt er, að þctta
sé ,,mat utanríkisráðherra“ á afstöðu ríkisstjórnar-
innar í þessum efnum. Ég hefi rökstuddan grun
um, hvernig á þessu orðavali stendur. Fer þó ekki
út í þá sálma, því að lögfræðilcga hefur þessi sér-
vizka í orðavah alls enga þýðingu. Ráðherrann er
í þessa stöðu vahnn til þess að ,,meta“ það, hvað
ríkisstjórnin ætlar sér í utanríkismálum, og það er
hans starf að binda ríkisstjórnina alla — og landið
í heild — gagnvart erlendum ríkjum með yfirlýs-
mgum sínum.
Fyrra atriðið, sem yfirlýsingin fjallar um, er rctt-
ur erlendra fiskislapa til þcss að leita vars undir
ströndum Islands í óveðn eða ef skip er í nauðum
statt a£ einhverjum ástæðum. Það er gremilega tek-
ið fram, að hér sé ekki um neinar nýjar ívilnanir
að ræða. Aðeins er verið að staðfesta það, að við
ætlum eins og hingað til að hegða okkur eins og
siðaðir menn um túlkun lagabókstafsins í þessum
tilfellum og ekki níðast á mönnum í sjávarháska.
Meira að segja er þarna sett nýtt skilyrði, sem
er réttmætt, til þess að komast hjá því að þessi
linkind verði notuð að fölsku yfirvarpi af land-
helgisbrjótum. Þeir, sem vilja njóta þeirra fríð-
mda að leita vars í sjávarháska með óbúlkuð veið-
arfæri, verða nú að tilkynna landhelgisgæzlunni um
ferðir sínar. I sambandi við þetta er það einnig
staðfest, að eins og hingað til megi erlend fiski-
skip, sem leita hafnar vegna vélbilunar eða af
öðrum svipuðum ástæðum, selja afla sinn þar, ef
annars væri hætt við að aflinn skemmdist, meðan
viðgerð fer fram. Þetta er, svo sem réttilega er tek-
íð fram í yfirlýsingunni, ekkert nýmæli. Mun
réttur þcssi fyrir löngu hafa venð staðfestur með
dónu Hæstaréttar.
Síðara atnðið mætti að formi til kalla nokkra
ívilnun við ríkisstjórn Bretlands. Þar er lýst yfir
því (sem ,',mati“ utanríkisráðherra), að engin ný
skref verði stigin um víkkun fiskveiðitakmarkanna
umhverfis ísland, fyrr en næsta þing Sameinuðu
þjóðanna (þ. e. það þing, sem nú situr) liafi lokið
umræðum sínum um skýrslu Alþjóða-laganefnd-
arinnar, en skýrsla sú fjallar einnutt um landhelgi
og skyld mál. Þmgi Samemuðu þjóðanna verður
væntanlega fljótt lokið, svo að ekki er nú frestur-
inn langur, sem við erum samningsbundnir um
aðgerðaleysi. Það cr og a£ okkar bvötum sjálfra,
að fiskveiðitakmörkin eru þarna rædd, og við höf-
um ætíð látið mjög að okkur kveða um afgreiðslu
þess máls á vettvangi Samemuðu þjóðanna. Eng-
um ábyrgum nianiu gat til hugar konnð í alvöru,
að við færuni að flytja línuna utar rétt áður en
málið kom á dagskrá á þessum alþjóðavettvangi.
Nokkur viðbót er við þessa yfirlýsingu utan-
ríkisráðherra. I sambandi við framtíðarlausn fisk-
veiðitakmarkanna kveður hann það æskilegt, er
ríkisstjórn íslands hafi gefizt tóm til að athuga
málið aftur, að lokinni meðferð þess á þingi Sam-
einuðu þjóðanna, að tilkynna þá ráði Efnahags-
samvinnustofnunarinnar niðurstöður þær, sem rík-
isstjórnin hefir konuzt að. I þessu virðist felast
,,gentlemen’s agreement“ um að rœða þessar nið-
urstöður innan stofnunarinnar, en ekki getur þetta
bundið okkur til þess að bíða eftir neinni eilífðar-
athugun, ef við teljum málum okkar betur borgið
með skjótum aðgerðum.
Af þeim atriðum, sem fram komu í yfirlýsingu
fulltrúa Bretadrottnmgar, er aðallega vert að benda
á þann fyrirvara, að samkomulag það, sem gert
hefir venð, feli ekki í sér viðurkenningu Breta-
stjórnar á lagagildi ákvarðana ríkisstjórnar Islands
um fiskveiðitakmörkin. Þess var að sjálfsögðu að
vænta, að Bretar gerðu þennan fyrirvara. De jure
situr hvor aðili við sinn keip eins og fyrr, en de
facto fáum við að framkvæma línuna frá 1952,
unz eitthvað nýtt gerist í málinu.
PRJÁLS VERZLUN — FYLGIRIT
47