Frjáls verslun - 01.11.1967, Page 24
24
FRJÁLS VERZLUN
Spurningin er
ekki heldur
HVORT HVAÐA
Zeiss vél Zeiss vél
hsntar yöur hentaryður
M 20 GERÐIR AÐ VELJA.
Einkaumboð
Grandagarði. Sími 16485.
hann því þetta vandamál einfald-
lega með því að ganga í banda-
ríska herinn. Og þar með var hann
orðinn bandarískur ríkisborgari.
Magnús var í hernum í 18 mán-
uði og dvaldist á ýmsum her-
stöðvum um Bandaríkin. Hann
var brátt hækkaður í tign, fyrst
gerður að „corporal“, en þeg-
ar loks átti að senda herdeild hans
á vígvöllinn í Frakklandi var hann
orðinn „acting sergeant“ eða und-
irforingi. En þá um leið kom
friðurinn, svo að herþjónustu
Magnúsar lauk án þess, að hann
færi nokkurn tíma á vígstöðvarn-
ar.
Að lokinni herþjónustu fór
Magnús aftur til New York, og
innritaðist þar í verzlunarháskóla.
Lauk hann þaðan prófi eftir tvö
misseri, en réði sig að svo búnu
hjá United States Leather Com-
pany og síðar hjá Tuxedo Club,
sem var þá einhver virðulegasti
klúbbur Bandaríkjanna. Takmark-
aði hann félagatölu sína við 250,
og fengu aðeins mestu fyrirmenn
og auðkýfingar New York-borgar
aðgang að klúbbnum. Sá Magnús
um öll innkaup fyrir klúbbinn og
fékk 100 dollara í kaup á mánuði,
auk ágóðahlutar.
En þegar hér var komið sögu,
var heimþráin örlítið farin að
gera vart við sig. Magnús ákvað
að sigla heim til að heilsa upp á
ættingja og vini. Áður en hann
sté á skipsfjöl, trúlofaðist hann
danskri stúlku, Marie Brask að
nafni, en hún rak eigin hár-
greiðslustofu í New York. Magnús
tók sér far með dönsku farþega-
skipi til Kaupmannahafnar. Á
íslenzka grund sté hann svo aftur
í júlímánuði 1924.
III.
Ákvörðun Magnúsar um að
setjast ekki að á íslandi til lang-
frama, brevttist brátt af ýmsum
orsökum. Árið 1927 keypti hann
leðurverzlunina af föður sínum
og rak hana á sama hátt og faðir
hans hafði mótað hana við stofn-
un. Tveim árum síðar kom svo
unnusta hans, Marie, frá Banda-
ríkjunum til Danmerkur, og gengu
þau í hjónaband í Höfn.
Ekki hafa orðið stórvægilegar
breytingar á rekstrarfyrirkomu-
lagi leðurverzlunarinnar í gegn-
um árin. „Við höfum frá upphafi
lagt mikla áherzlu á að halda okk-
ur eingöngu við vandaðar vörur,
og haft bein sambönd við erlendar
verksmiðjur frá fyrstu tíð. Ég vil,
að þeir velji sérvörurnar, sem eiga
að selja þær,“ sagði Magnús eitt
sinn í blaðaviðtali. Viðskiptavin-
irnir hafa líka kunnað að meta
þjónustu verzlunarinnar, bví að á
skrifborði Magnúsar í skrifstofu
hans má sjá fagurlega útskorna
fánastöng, sem á er letrað: „Kær-
ar þakkir fyrir 50 ára viðskipti.
— Skósmiðafélag Reykjavíkur".
Magnús er að sjálfsögðu stoltur
af þessari viðurkenningu og jafn-
framt yfir verzlun sinni. En þeg-
ar hún berst í tal, er það jafnan
viðkvæðið hjá honum: „En hið
góða gengi verzlunarinnar er
kannski hvað mest því að þakka,