Frjáls verslun - 01.11.1967, Síða 25
FRJÁLS' VERZLUN
25
hve framúrskarandi heppinn ég
hef verið með samstarfsmenn
mína“. Hafa þeir, sem hafið hafa
störf hjá verzluninni yfirleitt
ílengzt þar í fjölda ára, t. d. hefur
einn helzti samstarfsmaður Magn-
úsar, Friðrik Eyfjörð, verið
hjá verzluninni rúmlega 37 ár.
Óneitanlega eru þetta um leið
meðmæli með Magnúsi, því að af
þessu verður ekki annað séð en
hann sé góður húsbóndi.
Magnús J. Brynjólfsson hefur
látið víðar að sér kveða en í kaup-
mennskunni einni saman, enda
býr maðurinn yfir gífurlegri
starfsorku. „Vinnan er hið eina,
sem nokkru máli skiptir“, errauði
þráðurinn í lífskenningu hans,
enda segir hann jafnan, að hún
hafi fært honum flestar hamingju-
stundir. Hann er árrisull maður.
og er yfirleitt mættur á skrifstofu
sinni klukkan átta að morgni.
Starfar hann þar fram að hádegi,
en hin síðari ár hefur hann lítið
getað verið þar seinni hluta dags,
því að þá þarf hann að sinna
margvíslegum trúnaðarstörfum,
sem á hann hafa hlaðizt.
Upp úr 1950 fór Magnús að
láta félagsmál verzlunarmanna
mjög til sín taka, og um svipað
leyti setur hann á stofn ásamt
öðrum nýtt fyrirtæki. Hann gekk
árið 1951 í félagsskap með Arn-
ljóti heitnum Guðmundssynitram-
kvæmdastjóra og Tryggva Jóns-
syni niðursuðufræðingi við firmað
„Kjöt & Rengi“. Ári síðar var svo
Niðursuðuverksmiðjan Ora sett á
fót, en við andlát Arngríms festu
þeir Magnús og Tryggvi kaup á
hluta dánarbúsins og sameinuðu
fyrirtækin undir firmanafninu
Niðursuðuverksmiðjan Ora —
Kjöt & Rengi h.f. Hefur Magnús
verið stjórnarformaður verksmiðj-
unnar frá stofndegi.
Magnús J. Brynjólfsson hefur
setið í Verzlunarráði íslands frá
því árið 1953, en Jón faðir hans
Brynjólfsson var einn af stofn-
endum ráðsins og í stjórn þess frá
stofnun 1917 til ársins 1933. Var
Magnús formaður ráðsins 1965—
66. Hann hefur einnig haft mikil
afskipti af Verzlunarskóla Islands.
Hann varð kennari í ensku við
skólann þegar eftir heimkomuna
frá Vesturheimi, og um 30 árum
seinna eða 1954 varð hann for-
maður skólanefndar. Gegndi hann
því starfi í samfleytt 11 ár, og i
formannstíð hans var nýi skólinn
reistur. Þá hefur Magnús einnig
átt sæti í stjórn Iðnaðarmálastofn-
unar íslands í 13 ár, á vegum
V erzlunarráðsins.
Magnús var einn af aðalhvata-
mönnum að stofnun Verzlunar-
sparisjóðsins, og hann hefur átt
sæti í bankaráði Verzlunarbank-
ans frá stofnun hans 1961. Þá
varð Magnús formaður Lífeyris-
sjóðs verzlunarmanna fyrstu þrjú
ár hans, enda var hann einn af
helztu hvatamönnum að stofnun
sjóðsins. í dag er þessi sjóður einn
hinn voldugasti á landinu, og ræð-
ur hann yfir 140 milljónum króna.
En Magnús hefur látið víðar til
sín taka en innan verzlunarstétt-
arinnar. Hann hefur átt sæti í
safnaðarnefnd Fríkirkjunnar í 25
ár, átti sæti í stjórn Skíðafélags
Reykjavíkur og hafði umsjón
með smíði skála félagsins. Þá er
hann heiðursfélagi í Oddfellow-
„Vinnan er hið eina, sem nokkru
máli skiptir.“
reglunni á íslandi, og er núver-
andi yfirmaður hennar. Fyrirregl-
una hefur Magnús unnið mikið
starf.
Magnús hefur verið heiðraður
á margvíslegan hátt. Hann hefut
verið sæmdur riddarakrossi ís-
lenzku fálkaorðunnar, knatt-
spyrnufélagið Víkingur hefur
sæmt hann gullmerki sínu, og
Verzlunarmannafélag Reykjavík-
ur hefur sæmt hann heiðursmerki
sínu úr gulli. Magnús getur óneit-
anlega verið stoltur yfir því síðast-
nefnda, því það hlaut hann, eftir
að félaginu hafði verið breytt í
launþegasamtök, og Magnús tald-
ist þá í hópi atvinnurekenda.
Magnús og Marie eiga tvö börn,
Elsu, gift Skafta Benedikts-
syni héraðsráðunauti, Garði í Að-
aldal, en sonurinn, Magnús,
kvæntur Sigrúnu Guðmundsdótt-
ur, starfar við verzlun föður síns,
og er óðum að taka við rekstri
hennar.
Magnús J. Brynjólfsson getur
verið sáttur við tilveruna. Ævifer-
ill hans hefur verið farsæll, og
hann hefur komið mörgu í verk.
Ungur lagði hann út í óvissuna til
að svala ævintýraþránni, og þeg-
arhannkom heim aftur, fullreynd-
ur maður, gerðist hann happa-
sæll kaupsýslumaður. Hann hef-
ur helgað verzlunarstéttinni starfs-
orku sína, og það hefur orðið
henni til heilla.
Nú situr Magnús árla dags á
skrifstofu sinni í húsinu, þar sem
hann fæddist fyrir tæpum 68 ár-
um, sinnir trúnaðarstörfum á eft-
irmiðdögum, og kvöldunum eyð-
ir hann í húsinu mikla, sem Odd-
fellowreglan reisti á leiksvæði
Magnúsar frá því á barnsárun-
um og þar sem hann stofnaði
knattspyrnufélagið Víking fyrir
áratugum. Hann hlýtur að geta
litið um öxl með nokkurri vel-
þóknun.