Frjáls verslun - 01.11.1967, Side 26
26
FfifdALS VERZLUN
MARKAÐSKÖNNUN F.V.
MAGNAFSLÁTTUR AF
VÖRUVERÐI
Samkvœmt skyndikönnun F.V. eru magninnkaup hjá
KRON-verzlunum og þeim, er selja einungis í magnsölu,
óhagkvœmari en hjá venjulegum kaupmönnum
Svo sem getið var í októberblaði
Frjálsrar verzlunar, eru skoðana-
kannanir og athuganir, sem ætlað
er að gefa til kynna afstöðu
manna til ákveðinna mála eða eitt-
hvert sérstakt ástand eða aðstæð-
ur, næsta fátíðar hér á landi. í
síðustu tveim tölublöðum F.V.
hafa birzt niðurstöður þriggja
slíkra kannana. Könnuð var af-
staða til norrænnar samvinnu,
kannað var ástand í fataiðnaðin-
um1) og loks má geta könnunar,
sem gerð var á áliti húsmæðra á
mjólkursölumálum.
F.V. þykir það vel hæfa tilgangi
blaðsins, að á þess vegum fari af
og til fram skoðanakannanir og at-
!) Sú könnun var ekki fram-
kvæmd af F.V.
huganir og birtast því nú niður-
stöður þeirrar fjórðu.
Ekki er um að ræða skoðana-
könnun sem slíka (,,survey“),
heldur athugun eða skyndikönnun
(„spot check“). Munur á skoðana-
könnun og skyndikönnun er veru-
legur. í fyrra tilvikinu er eftir
allflóknum reglum valinn tiltölu-
lega lítill úrtakshópur, sem síðan
er látinn með afstöðu sinni túlka
álit miklu stærri hópa, heilla
stétta eða jafnvel alls almennings.
Vegna þess, hve sá hópur er að
tiltölu lítill, sem túlka á skoðanir
ákveðins heildarhóps, verður að
sjálfsögðu að vanda mjög til úr-
taksins. Skyndikannanir eru fram-
kvæmdar með enn minni úrtök-
um, oft jafnvel með fáum ein-
staklingum, enda er ætlunin með
þeim að kanna í fljótu bragði eitt-
Fj.ein. Kaupm. Kaup- félag Magn- sali
Strásykur 50 kg. 245.00 297.00 255.00
Kaffi 5 kg. 398.00 420.00 391.40
Þvottaefni 18 pk. 285.10 313.20 296.80
Epli 20 kg. 398.00 498.00 515.00
Tannkrem 6 pk. 144.45 154.80 154.80
Pakkasúpur 12 pk. 168.00 202.20 154.80
Tekex 12 pk. 239.40 289.20 247.70
Kakó 12 pk. 198.20 273.60 198.70
J arðaberjasulta 12 ds. 259.20 297.60 387.20
Aspars 24 ds. 650.40 766.80 638.10
Niðurs. ferskjur 1/1 24 ds. 730.00 1.056.00 794.60
Kaldir búðingar 12 pk. 114.50 142.40 112.00
Appelsín 24 fl. 136.80 135.60 122.60
Sígarettur 10 pk. 331.00 331.00 309.40
Heimsendingargjald Ekkert Ekkert 50.00
Alls kr.: 4.298.05 5.177.20 4.628.10
hvert ákveðið mál eða ástand.
Eðli sínu samkvæmt hafa þær því
ekki jafnmikið gildi og skoðana-
kannanir og veita ekki sömu
möguleika á alhæfingu. Á þessum
tveimur aðferðum er því nokkur
munur, sem að vísu er stigsmun-
ur, en á hinn bóginn er þeim ýmis-
legt sameiginlegt og bá aðallega
það, að sá, er könnunina annast,
hvort sem um er að ræða skoðana-
könnun til alhæfingar eða minni
skyndikönnun, verður að leitast
við að beita hlutlægum aðferðum.
Spurningar verða að vera þannig
orðaðar, að ekki geti leikið vafi á,
hvernig túlka beri svarið. Sá, er
spyr, má ekki á nokkurn hátt
reyna að hafa áhrif á skoðanir
þess, sem spurður er og gæta
verður þess, að aðstæður séu sem
sambærilegastar.
Að undanförnu hefur talsvert
borið á umræðum í blöðum og
manna á meðal um magnafslátt
af vöruverði. Hafa umræður þess-
ar einkum beinzt að nýlenduvör-
um og á tímabili var töluverður
hiti kominn í leikinn, skipzt var
á yfirlýsingum í blöðum og kvart-
anir senda viðskiptamálaráðherra.
í þessu tilefni ákvað F.V. að láta
fara fram skyndikönnun í nokkr-
um verzlunum í Reykjavík, og
skyldi forsvarsmönnum fyrirtækj-
anna gefinn kostur á að kynna
magnverð varnings þess, sem þeir
hafa á boðstólum. F.V. fór í nokk-
urs konar „innkaupaleiðangur“ og
áður en upp í hann var lagt, var
útbúinn listi yfir nokkrar vöruteg-
undir. Heimsótt var ein kaupfé-
lagsbúð, ein kaupmannsbúð og
loks verzlun eins magnsala, en
þar með er átt við aðila, sem að-
allega leggur áherzlu á að selja
fleiri einingar af hverri vöruteg-
und en venja er, en veitir þar á
móti afslátt, sem lækkar einingar-
verð vörunnar. Þetta er eitt af
þeim atriðum, sem nokkur styrr
hefur staðið um og hafa kaup-
menn haldið því fram, að þetta
sé ekki nein ný bóla, því þeir
hafi jafnan verið fúsir til að veita
afslátt, ef keypt væri í nokkru
magni. Á þessu hugðist F.V. fá
samanburð. Við það var miðað, að
fá samanburð á verði vara, sem
væru eins eða a. m. k. algjörlega
sambærilegar. Vera má, að ýms-
um þyki samsetning listans ekki
fullkomin, sumu hefðimáttsleppa,