Frjáls verslun - 01.11.1967, Side 34
34
FRJALG VERZLUN
gert ráð fyrir á fjárlögum vissri
upphæð til að mæta þessum
greiðslum, en þær fóru oftast
langt fram úr áætlun. Yfirskoð-
unarmenn ríkisreikninga hvöttu
mjög til endurskoðunar á þessum
málum og töldu óvarlega með þau
farið.
677 millj. kr. Til fróðleiks má
geta þess, að á árunum 1955—1962
greiddi ríkissjóður vegna vanskila
á ábyrgðalánunum alls tæpar 360
millj. kr. og frá og með árinu 1963
til þessa dags 320 millj. kr. til við-
bótar, eða alls 677 millj. kr.
Þegar þess er gætt, að allar
ábyrgðir ríkissjóðs áriðl955námu
aðeins 579 millj., verður þetta að
skoðast gífurleg fjárhæð. Lausleg
athugun bendir til, að á hverju
ári falli um 5% af höfuðstóli allra
ábyrgðarlánanna í gjalddaga að
meðaltali og hafa þá vanskilin oft
numið mjög stórum hluta afborg-
ana, jafnvel yfir 50%. Menn voru
almennt sammála um, að þetta
gæti ekki gengið til lengdar og
eitthvað raunhæft yrði að gera,
en um leiðirnar hafa menn hins
vegar verið mjög ósammála.
LÖGGJÖF UM RÍKIS-
ABYRGÐIR.
Hinn 22. október 1958 flutti
Magnús Jónsson, þáverandi 2.
þingm. Eyfirðinga og núverandi
fj ármálaráðherra, þingsályktunar-
tillögu þess efnis, að ríkisstjórn-
inni yrði falið að undirbúa löggjöf
um ríkisábyrgðir, þar sem sam-
ræmdar yrðu þær reglur, sem um
þær hafi gilt og orsakir vanskil-
anna kannaðar. Var tillaga þessi
samþykkt eftir nokkrar umræður.
Nú fóru hins vegar í hönd mikil
átök í stjórnmálum landsins og
gerðist ekkert markvert í málinu
að sinni, þótt yfirskoðunarmenn
ríkisreikninganna héldu áfram að
vekja athygli á ástandinu.
í des. 1960 var lagt fram stjórn-
arfrumvarp á Alþingi um ríkis-
ábyrgðir. Frumvarpið var í 10
greinum og var hugsað sem lausn
á þessum málum. Merkasta ný-
mæli þessara fyrirhuguðu reglna
var, að nú var ákveðið sem aðal-
regla, að ríkisábyrgðir skylduvera
einfaldar að formi, en áður höfðu
þær flestar verið með sjálfskuld-
arábyrgð. Héreftir skyldi aðeins
veita ábyrgðir með sjálfskuldar-
ábyrgð, ef það væri sérstaklega
tiltekið í lögum þeim, sem taka
fram, að veita skuli ríkisábyrgð.
Þetta atriði er mjög þýðingarmik-
ið og hefur sparað ríkinu mikið
fé. Áður þurfti ríkissjóður oft að
inna af hendi greiðslur vegna
ábyrgðaaðila í vanskilum og hafði
þannig eignast kröfur, er námu
hundruðum millj. kr. Ef ábyrgðin
er einföld, eins og nú er aðalregla,
verður kröfuhafi að reyna fyrst
til þrautar hjá skuldara, áður en
hann getur gengið að ríkissjóði.
Einnig var gert ráð fyrir því í
frumvarpinu, að samið skyldi um
öll vanskil vegna ríkisábyrgðanna,
og var fjárveitingarnefndheimilað
að gefa eftir kröfur í því sam-
bandi.
Töluverðar umræður urðu um
þetta frumvarp ríkisstjórnarinnar
á Alþingi og komu fram ýmis
sjónarmið. Meirihluti þingmanna
vildi samþykkja frumvarpið lítt
breytt, en aðrir þingmenn höfðu
ýmislegt út á það að setja. Mestur
þyrnir var þeim þó í augum breyt-
ingin úr sjálfskuldarábyrgð í ein-
falda. Töldu þessir þingmenn, að
aðilum yrði gert erfiðara fyrir að
fá lán, ef einföld ábyrgð yrði tek-
in upp. Yfirleitt var það álit
þeirra, að með samþykkt þessa
frumvarps, yrðu ríkisábyrgðimar
gagnsminni fyrir þá, er helzt
þyrftu þeirra með, en það væru
einkum félitlir einstaklingar og
sveitarfélög.
Að lokum var frumvarpið sam-
þykkt sem lög nr. 37/1961. Var þá
náð merkum áfanga í sögu ríkis-
ábyrgða á íslandi, þótt deila megi
um málsmeðferð og fyrirkomulag.
Fyrstu árin eftir þessa breytingu
þurfti ríkissjóður og Ríkisábyrgða-
sjóður ekki að greiða neitt telj-
andi vegna vanskila á lánum með
einfaldri ábyrgð. Aftur á móti
héldu vanskilin áfram á eldri lán-
um með sjálfskuldarábyrgð og
hefur Ríkisábyrgðasjóður þurft að
greiða yfir 400 millj. kr. vegnavan-
skila á ábyrgðalánum, einkum
eldri lánum.
RÍKISABYRGÐA-
SJÓÐUR.
Umsýsla þessara mála var orð-
in svo viðamikil árið 1961, að tal-
ið var rétt að fá þau sérstökum
aðila til meðferðar. Með lögum,
sem samþykkt voru á Alþingi 16.
apríl 1962, var gert ráð fyrir, að
stofnaður skyldi sérstakur sjóður,
Ríkisábyrgðasjóður, og úr honum
skyldi greiða allar kröfur, er fall-
ið hafa á ríkissjóð eftir 1. janúar
1961 vegna ríkisábyrgða og einnig
skyldi greiða úr honum kröfur, er
fallið hafa á ríkissjóð frá sama
tíma, vegna vanskila á lánum,
sem ríkissjóður hefur tekið að
láni og endurlánað. Sem stofnfé
voru sjóðnum fengnar slíkar kröf-
ur sem ríkissjóður hafði eignazt,
ásamt hluta ríkissjóðs af gengis-
hagnaði vegna gengisbreytingar-
innar 1961. Einnig er ætlazt til, að
Ríkisábyrgðasjóður hafi milli-
göngu um veitingu ábyrgða, taki
við umsóknum um þær, láti fara
fram athugun á fjárhag þeirra, er
ábyrgðar óska, ef ástæða þykir til.
Tilgangurinn með þessari ný-
skipan ríkisábyrgða var að reyna
að draga úr hinum miklu útgjöld-
um ríkissjóðs vegna áfallinna rík-
bIúIIsIEIoIId
QpV°
m vélriiunarslóll
aðeins kr. 1.995.00
HVlLIÐ meðan þér vinnið
SAVO-stóll er vandaður stóll.
bIúIIsIIlIBIIðI1
HÚSGAGNAVERZLUN
VIÐ NÓATÚN — SÍMI 18520