Frjáls verslun - 01.11.1967, Síða 50
5D
FRJÁLS VERZLUN
VI'ÐS VEGAR AÐ
SÍLDARMARKAÐUR
Fyrir skömmu voru á ferðinni í Vestmannaeyj-
um tveir Englendingar, sem voru að athuga um
kaup á frosinni síld. Höfðu Englendingarnir í
hyggju, ef um kaup semdist, að láta reykja síldina,
og framleiða svokallaðan „kippers“, sem er ákaf-
lega vinsæl morgunverðarfæða í Englandi. Vest-
mannaeyingar binda nokkrar vonir við þetta, þav
sem Englendingarnir gáfu í skyn, að um verulegan
markað væri þarna að ræða, e. t. v. allt að 5 þúsund
smálestum.
V ATNSHÖRGULL
Húsmæður í Þórshöfn í Færeyjum efndu fyrir
skömmu til mótmælaaðgerða gegn bæjarstjórn-
inni. Komu þær umvörpum að ráðhúsi borgarinnar
og skildu óhreinar bleiur eftir á tröppum þess, en
með þessu vildu þær mótmæla vatnsskorti í hluta
bæjarins. Gera þær ráð fyrir, að bæjarstjórinn
muni sjá til þess, að bleiurnar verði þvegnar.
Ástæðan fyrir mótmælunum er sú, að meðan sov-
ézk tankskip geta hvenær sem þeim hentar komið
til bæjarins og fyllt tanka sína af neyzluvatni fyrir
þau 500 sovézku fiskiskip, sem veiðar stunda í
grennd við Færeyjar, verða íbúar staðarins að láta
sér nægja svo mikla takmörkun á neyzluvatni, af
ekki dugar til þvotta á fatnaði.
LANDBÚNAÐARSÝNING
Búnaðarfélag íslands og Framleiðsluráð landbún-
aðarins hafa ákveðið að efna til landbúnaðarsýn-
ingar í Reykjavík á sumri komanda. Ekki hefur
opnunardagur sýningarinnar verið endanlega á-
kveðinn, en menn ætla, að hann verði í miðjum
ágústmánuði. Verður sýningin haldin á sýningar-
svæði atvinnuveganna í Laugardal. Sýningin mun
verða lík öðrum stórum landbúnaðarsýningum —
sýnd þróunarsaga landbúnaðarins, framleiðsla ein-
stakra greina hans, vísindastörf í þágu landbúnað-
arins, vélar, verkfæri og húsbyggingar, svo að eitt-
hvað sé nefnt. En merkasti sýningarliðurinn verð-
ur þó vafalítið búfjársýning. Framkvæmdastjóri
sýningarinnar er Agnar Guðnason ráðunautur.
VÍNFRAMLEIÐSLA
Breyttar aðstæður á heimsmarkaðnum hafa haft
alvarlegar afleiðingar fyrir vínframleiðslu Suður-
Afríku, sem getið hefur sér orð fyrir að vera sér-
lega vel skipulögð. Er gert ráð fyrir allt að 18%
samdrætti í framleiðslunni, sem fært hefur landinu
hundruð milljón króna ágóða á undanförnum ár-
um. Aðallega er það þrennt, sem samdrætti þessum
veldur, — nokkrir markaðir hafa glatazt, tolla-
vernd Efnahagsbandalagsins og ýmsar ráðstafanir
brezku stjórnarinnar vegna efnahagsörðugleika
heima fyrir. Heildarvínframleiðslan í Suður-Afríku
árið 1966 nam 33.8 milljónum gallóna, og þar af
voru fluttar út 3.1 milljónir gallóna. Mesta við-
skiptaþjóðin var Bretland, en þangað voru flutt
um 51% alls útflutningsins, en annar stærsti við-
skiptaaðilinn var Kanada. Á myndinni sést einn af
víngeymunum í Suður-Afríku, en sá tekur 4.500
gallón. Úr honum mætti fá eina flösku af víni í 740
ár.