Frjáls verslun - 01.11.1967, Qupperneq 60
6D
F RJÁLS verzlun
gegnum verzlanir og fyrirtæki er
auðvelt að hafa samband við alla
íslendinga. Væri mjög æskilegt,
að verzlunarmannastéttin gerði
sér grein fyrir þessu, og aðstoðaði
okkur eftir megni. Sú aðstoð get-
ur verið í mörgum myndum. Skal
nú getið nokkurra atriða. Kaup-
menn geta sett H-merkið á neyt-
endaumbúðir, eða í þær, hægt er
að setja H-merkið í mörgum
myndum á vöruna sjálfa, æskileg-
ur staður fyrir upplýsinga- og
fræðsluspjöld um H-umferðina og
almennar umferðarreglur, er ein-
mitt verzlanir, og þannig mætti
lengi telja. Reyndin varð sú í Sví-
þjóð, að kaupmenn beinlínis sótt-
ust eftir að aðstoða í einni eða
annarri mynd við upplýsinga- og
fræðslustarfsemi vegna hægri um-
ferðarinnar. Þeir töldu, að þetta
hefði ekki létt pyngju þeirra, held-
ur þvert á móti, hafði alls konar
H-upplýsinga- og fræðslustarfsemi
í verzlunum og fyrirtækjum örf-
andi áhrif á viðskiptin, enda tók
almenningur vel ýmsu, sem fund-
ið var upp á í sambandi við breyt-
inguna yfir í hægri umferð í Sví-
þjóð. Ekki er vafi á, að svo mun
einnig verða um íslendinga, og er
Upplýsinga- og fræðslumiðstöðin
í Aðalstræti 7 reiðubúin að að-
stoða verzlanir og fyrirtæki í
þessu sambandi, eftir því sem
kostur er.
(Upplýsingarnar í greininni eru
fengnar frá framkvæmdastjóra
hægri umferðar).
VÖRUR — ÞJÓNUSTA
STP
Frœgt olíubœtiefni komið á íslenzkan markað
Nýlega er komið á markaðinn
hér olíubætiefni, er nefnist STP,
og er sagt vera hið mest selda í
veröldinni. Söluumboð á íslandi
fyrir STP hefur Þóroddur E. Jóns-
son, sími 11747.
STP er ómengað efni, sem unn-
ið er úr jarðolíu, og blandast það
öllum olíum af sama uppruna. Því
er bætt í olíur til að styrkja þær
og veita þeim meiri smurhæfni.
Þetta efni hefur margþætta þýð-
ingu fyrir bifreiðina. í fyrsta lagi
minnkar það olíueyðsluna. Auk-
inn hraði hefur jafnan aukið álag
á olíuna, þar til að því kemur, að
olíulagið á slitflötunum hverfur
vegna hita. STP varnar þessu og
myndar sterka húð, sem minnkar
mótstöðu, loðir við málm og renn-
ur ekki burtu við hita.
Við notkun STP vex olíuþrýst-
ingurinn, og sést breyting á olíu-
mælinum nokkrum mínútum, eft-
ir að efninu hefur verið bætt í
olíuna. Jafnframt lokar það bili
milli stimpilhringjanna og leiðir
af sér betri þjöppun og veldur
greinilegri aukningu vélarorku.
STP myndar varanlega húð á
alla slitfleti og auðveldar því gang-
setningu bifreiða í kuldum. Hafa
tilraunir sýnt, að álag á rafgeymi
við gangsetningu minnkar um 10
—15 amper, eftir að þessu efni
hefur verið bætt í olíuna. Jafn-
framt kemur STP í veg fyrir, að
olían þykkni í kuldum og þynnist
í heitu veðri.
STP dregur verulega úr mót-
stöðu, bar sem það myndar himnu
á alla slitfleti, eins og fyrr segir,
og minnkar þetta vélarslit til
muna. Enn fremur hreinsar það
sót og úrgang úr vélinni og kem-
ur í veg fyrir, að olíuleiðslur stífl-
ist. Loks hreinsar það sót og önn-
ur óhreinindi úr sprengirúmi og
kertum, og heldur ventlasætum
hreinum. Af því leiðir betri þjöpp-
un.
Efni þetta minnkar hávaða í
ventlum og ventlaútbúnaði, og
vélin gengur þýðar með minni
hávaða; það stöðvar og kemur í
veg fyrir leka í gírkössum og
sjálfskiptingum, sem stafar af
þurrum og hörðum pakkningum.
Og þegar STP er bætt á gírkassa
og drif, dregur það úr hávaða og
minnkar slit.
Með STP er blandað þannig, að
sett er ein dós eða 1 á móti 10 af
því á vélina við hver olíuskipti
með vélina í gangi. Ef vélin er
mjög slitin, á að setja tvær dósir
eða 20% miðað við olíumagn. Á
gírkassa og drif er blandað 20%
við olíuna.
Enn fremur er komið hingað á
markaðinn STP orkuauki, en það
er efnablanda, sem eykur afl og
afköst vélarinnar í bifreiðinni á
mjög víðtækan hátt. Blöndu af
þessum orkuauka skal fara með
á þann hátt, að ein dós af STP
Gas Treatment er sett í 40 lítra
af benzíni á 1000 km fresti.
í samtali, sem F.V. átti við
Sverri Þóroddsson kappaksturs-
mann, sagði hann, að allir fremstu
kappakstursmenn veraldar notuðu
STP, enda væri það langmest
selda olíubætiefnið og orkuauk-
inn. Nefndi hann í þessu sambandi
kappaksturshetjur eins og Jimmy
Clark, Graham Hill og John
Surtees, svo að einhverjir séu
nefndir. Hann sagði enn fremur,
að það væri engin tilviljun, að
58% af olíubætiefnum veraldar
kæmi frá STP, og kvaðst eindreg-
ið mæla með því við íslenzkar að-
stæður, að fenginni eigin reynslu.