Frjáls verslun - 01.05.1968, Qupperneq 10
FRJALS VERZLUN
IQ
ÞJÓÐFÉLAGSLEGAR AFLEIÐ-
INGAR. Það hefur verið eitt af
aðalsmerkjum íslenzks þjóðfélags,
hversu margir einstaklingar eiga
eigin íbúðir eða hús.
Þau verðmæti, sem menn hafa
þannig skapað með eigin vinnu,
verða seint fullmetin. Hundruðir
manna leggja þannig á sig ómæl-
anlegt erfiði til að koma þaki yfir
sig og sína, nota hverja frístund
og vinna langan vinnudag. Hvers
eiga slíkir menn að gjalda?
Hefur íslenzka ríkið ekki jafn
miklar skyldur við þá borgara
sína, sem hafa vilja, dugnað og
þor til að búa í haginn fyrir fram-
tíðina? Hverjar verða afleiðingar
þess, að ríkið ætlar sér í svo stór-
felldum mæli að seilast hér inn
á sviðið. Verkar það hvetjandi á
slíka fyrirmyndarborgara aðhorfa
upp á ríkið svelgja í sig stóran
hluta þess fjármagns, sem með
réttu kæmi í þeirra hlut? Að
horfa upp á utanaðkomandi aðila
deila út húsnæði, byggðu fyrir
ríkisfé, á sama tíma og þeir vinna
í sveita síns andlits.
Hvað um einstaka bygginga-
meistara og félög, sem lagt hafa
byggingarstarfsemi fyrir sig og
hætt þar fé sínu? Er það framtíð-
arhlutverk þeirra að eiga í sam-
keppni við ríkisvaldið, afskiptir
með lánsfé og greiða stórar upp-
hæðir í sköttum til ríkisins, meðal
annars til keppinautarins?
Hvað kemur það til með að
kosta ríkisvaldið í sköttum og
skyldum, að veita ekki hinu gífur-
lega fé til framkvæmda einstakl-
inga, sem bera skatta?
AÐ SNÚA FRÁ VILLU SÍNS
VEGAR. Það er krafa þeirra, sem
vilja og geta treyst eigin framtaki,
að ríkisvaldið fullnægi skyldum
sínum við þá.
Fyrst og fremst hlýtur slíkri
kröfu að vera beint til þeirra,
sem fólkið hefur treyst til að
halda uppi rétti einstaklinganna í
þjóðfélaginu. Ef þeir reynast ekki
köllun sinni trúir, er grundvellin-
um gjörsamlega kippt undan um-
boði þeirra. í framtíðinni ber
þeim skylda til að koma í veg
fyrir stórkostlegustu þjóðnýting-
aráform, sem gerð hafa verið á
íslandi: Breiðholtsáætlunina.
Lánsfé almennings verður aðdeila
út meðal almennings, þar á það
heima — hvergi annars staðar.