Frjáls verslun - 01.05.1968, Blaðsíða 17
FRJÁLS' VERZLUN
IV
konar vélar og tæki fyrir 26 millj.
kr. Asfaltinnkaup á vegum borg-
arinnar nam 13,7 millj. kr. og
þannig mætti lengi telja.
Auk þess sem Innkaupastofnun-
in reynir að útvega vörur á sem
allra hagstæðastan hátt, er einnig
lögð mikil áherzla á, að flutnings-
gjöld á vöi’um á vegum borgar-
innar til landsins séu sem hag-
stæðust, svo og önnur kjör eins og
sjótryggingariðgjöld og þessháttar.
Er það því einnig innan verka-
hrings stofnunarinnar að leita
samninga við skipafélög, vá-
tryggingarfélög o. fl., og segja má
að stofnunin hafi náð mjög góðum
árangri í þessum efnum.
Þar sem um kaup á standard-
vörum er að ræða, t. d. kaup á as-
falti, vatnspípum, jarðstrengjum,
koparvír o. s. frv., eru nær undan-
tekningarlaust um kaup að undan-
gengnu vöruútboði að ræða. Slík
útboð eru alltaf auglýst í dagblöð-
um borgarinnar og er enginn vaii
á því, að með útboðum fær borgar-
félagið beztu kjörin, sem völ er á
á hverjum tíma, auk þess sem al-
menn vöruútboð stuðla að auk-
inni frjálsri samkeppni milli ís-
lenzkra kaupsýslumanna.
í einstökum tilfellum eru vöru-
kaup framkvæmd í samvinnu við
Innkaupastofnun ríkisins og má
hér t. d. nefna kaup á asfalti.
Reykjavíkurborg er að sjálfsögöu
langstærsti notandi asfalts hér á
landi, en þó er einnig flutt tölu-
vert magn af asfalti til landsins
á vegum Innkaupastofnunar rík-
isins, sem síðan á eftir að fara út
til ýmissa staða á landinu. Með
því að sameina slík útboð á asfalti
og á flutningi á asfalti til landsins,
er hægt að nýta hagkvæmni
stórra vörukaupa til hins ýtrasta.
Vörur, sem fluttar hafa verið íil
landsins eða keyptar af Innkaupa-
stofnuninni, eru siðan endurseid-
ar til þeirra stofnana, sem hafa
pantað viðkomadi vörur hjá stom-
uninni og eru vörurnar seldar á
kostnaðarverði, að viðbættri þókn-
un, sem samkvæmt reglum stofn-
unarinnar, getur verið frá 1 % upp
í 4% eftir stærð vörukaupanna.
Þessi lága þóknun er nægileg til
þess að standa straum af reksrar-
kostnaði stofnunarinnar, og einn-
ig hefur tekizt á undanförnum ár-
um að safna höfuðstól, sem í dag
nemur um 11 millj. kr. Slík höfuð-
FERDASJÓNVARP
í sumarbijstaft
í bí!
í bát
Aukahlutir:
RAFHLAÐA, BÍLLOFTNET,
BÍLSTRAUMTENGISNÚRA O.FL.
J. P. GUÐJÓNSSON HF.
Skúlagötu 26 - Síma 11740