Frjáls verslun - 01.05.1968, Blaðsíða 20
2 □
FRJÁLS VERZLUN
VERDUR ÞJÓDERNISLEGUM
HLEYPIDÓMUM I EVRÓPU ÚTRÝMT?
„Þjóðverjar eru frekir". — „Frakkar eru léttúðugir". — „Þjóð-
verjar eru mesta tónlistarþjóð í heimi". — Frakkar eru glaðvœrari en
Þjóðverjar". — Fastmótaðar skoðanir eins og þessar virðast enn vera algengar,
enda þótt fleira franskt og þýzkt œskufólk heimsœki land
hvors annars nú en nokkru sinni fyrr.
Fransk-þýzka æskulýðsstofnun-
in hefur, síðan henni var komið
á fót 1963, skipulagt ferðalög
500.000 ungra Frakka til vestur-
þýzka sambandslýðveldisins og
600.000 þýzkra æskumanna til
Frakklands. Spurningin er, hafa
þessar ferðir, námskeið og dvalir
í sumarbúðum gert þátttakendur
víðsýnni?
Þrátt fyrir erfiðleikana á því að
„mæla“ skoðanir, þá hafa skoð-
anakannanir meðal fransks og
þýzks æskufólks á aldrinum 15—
24 ára gefið til kynna, að gamlar
fastmótaðar skoðanir eru ekki úr
sögunni, enda þótt eitthvað hafi
dregið úr þeim. Skoðanakannan-
irnar leiddu í Ijós, að Þjóðverjar
töldu Frakka enn vera geðþekka
en lata, lifandi en yfirborðs-
kennda. Þær leiddu enn fremur í
ljós, að Frakkar héldu áfram að
líta á Þjóðverja sem duglega en
freka, kjarkmikla en kaldrana-
lega. Gagnkvæmar heimsóknir
gátu jafnvel verið tvíeggjað vopn.
Ungir Þjóðverjar höfðu tilhneig-
ingu, er þeir höfðu farið til Frakk-
lands og kynnzt ungu fólki þar,
til þess að geðjast meira að Frökk-
um en áður — en þeir þóttust
einnig koma betur en áður auga á
það, sem þeir töldu vera neikvæð-
ari skapgerðareinkenni Frakka.
Yvon Bourdet, franskur sál-
fræðingur, sem kennir við Sor-
bonne háskóla, hefur látið frá sér
fara skýrslu um skoðanakannanir,
sem hann framkvæmdi 1966 á
þúsundum franskra og þýzkra
pilta og stúlkna á aldrinum 11—18
ára, á meðan þetta fólk dvaldi
saman í sumarbúðum. Þar komst
hann að raun um, að þetta unga
fólk var haldið ýmsum hleypi-
dómum, sem ekki voru byggðir á
neinni hlutlægri reynslu eða mati,
heldur höfðu orðið til í uppeldi
fyrir utanaðkomandi áhrif, ekki
hvað sízt í skólum. Átti þetta
jafnt við um álit Þjóðverja og
Frakka hvora á öðrum og um við-
horf þeirra almennt til margvís-
legra mála.
SÖGUKENNSLA 1 BARNA-
SKÓLUM HÆTTULEG?
Á grundvelli skýrslu sinnar
leggur Bourdet til, hvorki meira