Frjáls verslun - 01.05.1968, Page 25
frjáls verzlun'
25
verði verzlað með á verðbréfa-
markaði, því að á þann hátt fá
opinberir aðilar til afnota nauð-
synlegt fjármagn, án þess að slá
eignarhaldi sínu á það og svipta
borgarana yfirráðum yfir því, eins
og ella mundi gert með skatt-
heimtu. Slík skuldabréfaútgáfa er
því einn þáttur þess heilbrigða,
lýðræðislega kerfis, sem ég áður
hef rætt um og nefnt auðstjórn
almennings eða fjárstjórn fjöld-
ans, þ. e. a. s. að eignarráð yfir
fjármagni þjóðfélagsins sé sem
allra mest dreift á meðal borgar-
anna, en ekki þjappað saman á
hendur stjórnvalda.
F.V.: Telur þú, aS íslenzkir at-
vinnurekendur séu of margir og
of smáir? Gceti það orSiS til góSs,
aS fYrirtœki hefðu vissa sam-
vinnu viS stœrri viSfangsefni?
E.K. J.: Smáatvinnurekendur eru
ekki síður nauðsynlegir en hinir
stærri. Ég ber jafn mikla virðingu
fyrir trillukarlinum eins og iðju-
höldinum. Báðir beita áræði sínu
og harðfylgi til að afla fjármuna
sér og sínum til handa, en jafn-
framt þjóðarheildinni.
Áreiðanlega á samvinna fyrir-
tækja og jafnvel samruni eftir að
aukast í framtíðinni. En það er þó
ekki fyrst og fremst samvinna
fyrirtækjanna sem slíkra, sem hér
er um að ræða, heldur að ný fyrir-
tæki verði stofnsett með þátttöku
fjölmargra aðila, og það er þar,
sem einkaframtaksmenn hafa
brugðizt. Hér hafa ekki verið
neinir frumkvöðlar (promotors á
erlendu máli), menn, sem beittu
útsjónasemi sinni, dugnaði og hug-
kvæmni til að koma á fót nauð-
synjafyrirtækjum, án þess að þeir
ættu þau sjálfir og einir, og hefðu
þar öll ráð.
F.V.: Nú hefur nokkuð verið
rœtt um stofnun hlutafélags til að
fullvinna hróál frá álbrœðslunni
í Straumsvík. Hvaða form telur
þú heppilegast á slíku hlutafé-
lagi og telur þú, að hér geti orðið
um mikilvœga atvinnugrein að
rœða í framtíðinni?
E.K. J.: Ég var rétt í þessu að
nefna skortinn á frumkvöðlum við
uppbyggingu íslenzks atvinnulífs,
og þess vegna tel ég ekki úr vegi
að geta þess hér, að þegar ég fyr-
ir skömmu ræddi við bankastjóra
Seðlabankans, formann Félags ísl.
iðnrekenda og formann ísals um
félagsstofnun til fullvinnslu úr
áli, gerði ég það að tillögu minni,
að félag, sem stofnað yrði til að
reyna að hrinda því máli úr höfn,
yrði framkvæmdafélag, sem síðar
sneri sér að öðrum viðfangsefn-
um; hef ég þegar gert stofnsamn-
ing og ítarlegar samþykktir fyrir
slíkt félag, og segir í upphafs-
greinum þeirra m. a.:
Félagið er hlutafélag og nafn
þess Frumkvöðlar h.f.
Tilgangur félagsins er undir-
búningur að stofnun atvinnu-
fyrirtækja, einkum á sviði iðn-
ANGLI
SKYRTUR
COTTON
COTTON - BLEND
09
RESPI SUPER - NYLON
Hvítar - röndóttar - mlslitar
14 STÆRÐIR
MISM. ERMALENGDIR