Frjáls verslun - 01.05.1968, Síða 33
FRJALS VERZLUN
29
staði. Eru því stór varðskip nauð-
synleg bæði vegna misjafnrar
veðráttu og fjarlægðanna.
Auk varðskipanna hefur Land-
helgisgæzlan yfir einni DC-4 flug-
vél að ráða auk þyrlunnar. Báðar
hafa þær dugað okkur vel, en
Skymasterinn er orðinn 25 ára,
og margt hefur breytzt, frá því að
vélin kom í okkar þjónustu. Höf-
um við því á að losa okkur við
hana, áður en hún þarf að gangast
undir mjög mikla skoðun, leigja
í staðinn tvo flugbáta af varnar-
liðinu og reyna til lengri eða
skemmri tíma. En áhugi okkar
beinist samt mest að stóru þyrl-
unum, sem án efa eiga mikla fram-
tíð fyrir sér hér sem annars staðar,
því að leit er að tæki, sem hefur
eins fjölþætta notkun. Eins og er
hindra fjármál frekari framgang
þessara mál, en við fylgjumst vel
með öllu, sem gerist í þessum efn-
um, og vinnum á meðan að því að
mennta og þjálfa okkar flugmenn.
Við spyrjum Pétur um fjármála-
hlið fyrirtækisins, og hann svarar:
Á fjárlögum núna eru áætlaðar
60—70 milljónir til þessa reksturs,
sem skiptist milli flugsins og skip-
anna. Þá eru alltaf einhverjar
tekjur, sem koma á ýmsan hátt —
fyrst og fremst eru það björgunar-
laun, sem renna í landhelgissjóð,
en hann er raunverulega eigandi
allra tækja Landhelgisgæzlunnar.
Úr þessum sjóð er veitt fé til ný-
bygginga skipa og til kaupa á
tækjum. Hann hefur keypt allar
vélar okkar og lagt fé í öll skipin
Pétur Sigurðsson,
forstjóri.
— hefur nú þegar greitt 20% af
kostnaðarverði nýja Ægis. í þenn-
an sjóð renna einnig allar land-
helgissektirnar.
Af öðrum tekjum má nefna
greiðslur fyrir ýmiss konar aðstoð
við báta og skip, einnig fyrir að
draga dýpkunarpramma milli
hafna og loks fáum við lítið eitt
fyrir vöruflutninga. En þótt við
flytjum að meðaltali um 2 þúsund
farþega á ári tökum við aldrei
greiðslu fyrir það. Þetta er álitin
sjálfsögð þjónusta við fólk, sem
á í erfiðleikum.
Um hlutverk Landhelgisgæzl-
unnar segir Pétur: — Það er fyrst
og fremst að stunda löggæzlu-
störf á hafinu umhverfis ísland
og gæta réttar okkar út á við. Ef
þessi starfsemi gengur vel, vinnst
okkur oft nægur tími til að sinna
öðrum störfum, svo sem björg-
unar- og aðstoðarstörfum, ýmiss
konar vísindastörfum, til að
mynda sjómælingar og fiskirann-
sóknir, en að hinu síðarnefnda höf-
um við verið aðilar frá upphafi
til þessa árs, að íslendingar eign-
uðust sérstakt hafrannsóknarskip.
Þá aðstoðum við ríkisvaldið við öll
möguleg fyrirbæri, sem kunna
óvænt að skjóta upp kollinum,
eins og t. d. hafís, og geta því
störf Landhelgisgæzlunnar verið
mjög breytileg frá ári til árs.
Landhelgisgæzlan þarf því ekki að
leita sér verkefna og síðustu árin
hefur starfsemin stöðugt orðið
fjölþættari.