Frjáls verslun - 01.05.1968, Side 40
36
FRJÁL5 VERZLUN
PUNDID TEKUR UPP
TUGAKERFIÐ
Fyrir 15. febrúar 1971 mun
brezka myntkerfinu, sem er
margra alda gamalt, verða breytt
og annað einfaldara, sem byggist
á tugakerfinu, tekið upp í staðinn.
Margar ástæður liggja til grund-
vallar þessari breytingu. Um 95%
af íbúum heims nota peninga,
sem byggjast á tugakerfinu, og frá
1945 hefur fjöldi þeirra landa,
sem tekið hafa upp tugakerfið,
vaxið ört. Utanríkisverzlun Bret-
lands hefur vaxið mjög mikið og
tilvera tveggja umfangsmikiUa
verzlunarbandalaga — EFTA og
EBE — hefur gert myntbreytingu
að knýjandi nauðsyn. Til viðbót-
ar þessu hafa möguleikar á meiri
ferðalögum aukizt um allan henn
og unnt er að spara fé í verzlun
og iðnaði, þar sem aðeins eitt
kerfi er notað. Þá mun enn frem-
ur mikill tími sparast í skólum
við reikningskennslu.
Þessi vandamál og mörg önnur
voru rædd gaumgæfilega í hálft
annað ár af nefnd, sem komið var
á fót af brezku stjórninni, og var
Halsbury lávarður formaður
nefndarinnar. Fulltrúar meira en
100 stórfyrirtækja auk margra að-
ila og alls almennings, sátu ráð-
stefnur, sem haldnar voru í þessu
tilefni, lögðu fram skýrslur og
tjáðu álit sitt. Gaumgæfileg athug-
un á um 25 tegundum myntkerfa,
sem byggð voru á tugakerfinu,
leiddi til þess, að bornar voru
fram tillögur um kerfi, sem byggð-
ist á eftirfarandi mynteiningum:
Sterlingspund — penny — \k
penny. Þetta kerfi varð fyrir val-
inu vegna þess, að það samræmdist
flestum þeirra atriða, sem æskileg-
ust eru í sambandi við mynt, sem
byggist á tugakerfinu — það var
einfalt, gæti dugað lengi, myndi
ekki hafa áhrif á gengi sterlings-
pundsins á alþjóðavettvangi og
hefði ekki í för með sér óþarfar
verðhækkanir. Sem eðlilegt var,
þá hafði hugsanlegur kostnaður
við breytinguna og tíminn, sem
hún tæki, áhrif á niðurstöður
nefndarinnar. Árið 1966 tók ríkis-
stjórnin svo endanlega ákvörðun:
hinn 15 febrúar 1971 á að verða
búið að taka upp nýja mynt í
Bretlandi.
Samanburður á myntkerfunum
tveimur sýnir, að nýja kerfið muni
verða einfaldara, þegar breyting-
artímabilinu einu sinni er lokið. I
stað eftirfarandi mynteininga —
l/2d (d merkir penny), ld, 3d,
6d, l/0d (shillingur), 2/0d, 2/6d,
5/0d og 10/0d seðilsins koma l/2p,
lp, 2p, 5p, lOp og 50p myntir.
Taka ber eftir, að tekinn verður
upp bókstafurinn “p” fyrir hið
nýja penny í stað “d” áður. 50p
peningurinn kemur í stað tíu shill-
inga seðilsins, sem mikið fé hefur
farið í að búa til, sökum þess að
hann er fljótur að skemmast í um-
ferð manna á milli. Hins vegar
verða £1, £5 og £10 seðlarnir
áfram við lýði og nýr £ 20 seðill
verður tekinn í notkun.
Reynsla, sem fengizt hafði í
Ástralíu, gaf til kynna, að breyt-
ingin hefði gerzt á auðveldan hátt
og á styttri tíma þar, sökum þess
að langur tími fyrir breytinguna
var notaður í kynningar- og áróð-
ursskyni, svo að brezka stjórmn
ákvað að verja skyldi 5 árum til
undirbúnings og framkvæmdar
breytingarinnar. Stj órnarnefndin,
sem á að sjá um breytinguna á
enska peningakerfinu (The Deci-
mal Currency Board), annast þvi
kynningarstarfsemina og gaf út i
marz sl. fyrsta bæklinginn af
mörgum, sem eftir eiga að koma
út um breytinguna. Þá er smám
saman verið að taka þessa fyrir-
huguðu breytingu til meðferðar í
skólum, enda þótt það virðist enn
vera háð geðþótta viðkomandi
kennara. Myndir af nýju myntein-
ingunum að undanskilinni 50p
myntinni hafa birzt í blöðum auk
margra auglýsinga. Gert er ráð
fyrir, að þessari kynningarstarf-
semi verði haldið áfram í vaxandi
mæli fram til 1971. Flest stjórnar-
ráðuneytin, póststjórnin og veru-
legur hluti verzlunar og iðnaðar
munu skipta um mynt á D-degi
(Decimal-Day). Þá munu allir
skipta um mynt og verða þeir lok-
aðir fyrir almenn viðskipti fimmtu-
daginn þar á undan.
Breyting í áföngum.
Hinn 23. apríl sl. voru gefnir
út 30 millj, peningar og verða þeir
notaðir sem eins og tveggja shill-
inga peningar fram til 1971. Þess-
ar myntir eru eins að þyngd og