Frjáls verslun - 01.05.1968, Side 41
FRJÁLS VERZLUN
37
stærð og þeir eins og tveggja shill-
inga peningar, sem nú eru í notk-
un. Það verður til þess að kynna
almenningi þessar tvær myntir að
gefa þær út svona snemma, en
um leið fullnægja áfram þörf-
inni á eins og tveggja shillinga
peningum. Á miðju þessu sumri
eiga nýju myntirnar (nema 50p
peningurinn) að vera til sölu sem
samstæður, en ekki sem löglegur
gjaldmiðill. Hinn 1. ágúst 1969
verður núgildandi % penny tek-
ið úr umferð og 2% shillings pen-
ingurinn verður gerður gildislaus
1. janúar 1970. Nýi 50p pening-
urinn verður tekinn í umferð í
október 1969.
Það er heppilegra fyrir almenn-
ing að framkvæma þessa breyingu
í áföngum og það skiptir miklu
máli sökum þess að slá verður
meira en 9 milljarða peninga. Þá
mun stjórnarnefndin gefa út breyt-
ingartöflur síðar og gera má ráð
fyrir, að bankar, stórverzlanir, yf-
irvöld í bæjum o. s. fi’V. muni gefa
út mikið upplýsingaefni auk breyt-
ingartöflu ríkisstjórnarinnar, sem
gert er ráð fyrir, að dreift verði
inn á hvert heimili.
Breytingartíminn mun valda
húsmæðrum, sem ekki hafa úr of
miklu að spila, mestum vandræð-
um, svo og verzlunaríólki, þeim
sem óvanir eru tugakerfi svo og
eldra fólki, sem óbeit hefur á
hvers konar breytingum. Þess er
vænzt, að verzlanir sýni verðmiöa
með tveimur myntum (gömlu og
nýju) og kaup, sem gerð eru með
lánum til langs tíma frá febrúar
1968 eiga að vera í £. s.d. upphæð-
um, sem eiga sér nákvæmt jafn-
gildi í tugakerfismyntinni. Nokki-
ar verzlanir hafa þegar látið við-
skiptavini hafa tugakerfispen-
inga úr plasti í daglegum viðskipt-
um sínum og hafa viðbrögð við-
skiptavina jafnt sem verzlunar-
fólks verið könnuð og vafalaust
gagnlegur lærdómur af því feng-
izt.
Breytingatímabilinu lauk fljótt
og greiðlega í Ástralíu, enda þótt
afgreiðsla, á meðan á því stóð,
tæki helmingi lengri tíma. Þetta
átti sýnilega rót sína að rekja til
þess, að yfirleitt hafði verzlunar-
fólk ekki lært áður, það sem pví
bar að gera. Þess sjást merki nú,
að þeir, sem reka verzlanir í Bret-
landi, hafi tilhneigingu til þess að
halda, að starfsfólk þeirra muni
læra á nýja kerfið í starfi sínu,
fremur en að láta fara fram ná-
kvæma undirbúningsvinnu til
kynningar á myntkerfinu. Þetta
er viðhorf, sem á örugglega efir
að koma í koll þeim fyrirtækjum,
Hér sjást þeir peningar, sem tekn-
ir verða í notkun samkvæmt hinu
fyrirhugaða nýja myntkerfi Breta.
Fyrst kemur nýja 10 pence
myntin, sem á að gilda jafnt og
gamla 2 shillinga myntin, síðan
nýja 5 pence myntin, jafngildi
gömlu 1 shillings myntarinnar.
Hinar myndirnar sýna ný 2 pence,
nýtt penny, hálft penny og fram-
hlið þá, sem verður á allri nýju
myntinni. Mynd af nýja 50 pence
peningnum vantar.
sem gera ekkert í þessu tilliti fljót-
lega.
Erfiðleikar — kostnaður.
Mestu erfiðleikarnir varðandi
myntbreytinguna fyrir 1971 eru