Frjáls verslun - 01.05.1968, Page 44
FRJALS VERZLUN
40
HÖFUDSTADUR NORDURLANDS
FERDAMIDSTÖDIN AKUREYRI
Akureyri — Mývatn, Mývatn —
Akureyri. Um þessa staði snýst
áhugi ferðamannsins á Norður-
landi fyrst og fremst. Það er enda
ekki að ófyrirsynju, eins margt
og unnt er að fá að sjá á þessum
stöðum og í næsta nágrenni þeirra.
Engir aðrir staðir á landinu, ut-
an Suð-Vesturlands og Suður-
lands, eru jafn fjölsóttir af ferðo-
mönnum. Það lætur því að líkum,
að Akureyri er sannkallaður
ferðamannabær. Þar er miðstöðin,
stofninn. Og þaðan liggja leiðir
til Mývatns og annarra áhuga-
verðra staða á Mið-Norðurlandi og
Norð-Austurlandi.
Bærinn Akureyri.
Fyrir tæpum 6 árum átti Akur-
eyri 100 ára kaupstaðarafmæli og
á síðasta ári komst íbúatala bæjar-
ins yfir 10.000 manns. Þetta er
rótgróinn bær, sem á alla fræði-
lega möguleika á að takast á herð-
ar stórt hlutverk í framtíðarupp-
byggingu íslenzka þjóðfélagsins.
Iðnaður (þar með fiskiðnaður),
verzlun og þjónusta eru þær at-
vinnugreinar, sem rísa undir bæj-
arlífinu, ásamt allverulegri útgerð,
og menningarlíf er blómlegt.
Stærsta aflið í atvinnulífi Akur-
eyrar er samvinnusamtökin, sem
hvergi eru hlutfailslega jafn
geysiöflug og þar. Einkarekstur er
einnig allöflugur og fer vaxandi.
Rikisrekstur er hins vegar hverf-
andi. Menningarlífið rís út frá
mörgum myndarlegum mennta-
stofnunum og starfsemi fjöl-
margra menningarsamtaka borg-
aranna.
Þá styrkir það stórkostlega
grunn bæjarins, að hann stendur
í miðju landbúnaðarhéraði, sem
óvíða á sína jafnoka hér á landi,
og að landfræðileg lega og gerð
héraðsins bjóða upp á alhliða
vaxtarmöguleika.
Því renna margar stoðir undir
það, að Akureyri taki að sér hlut-
verk uppvaxandi borgar og verði
í náinni framtíð ás stóraukinnar
uppbyggingar í strjálbýlinu til
vaxandi jafnvægis í lífsaðstöðu
þjóðarinnar og aukinnar nýtingar
á gæðum lands og sjávar.
Og þetta er nauðsynlegt. Ekki
aðeins að efla Akureyri, heldur
einnig og fyrst og fremst að efla
strjálbýliskjarna. Slíkt mótvægis-
afl gagnvart Reykjavík verður að
skapa, ekki beinlínis til að draga
burstir úr nefi höfuðborgarinnar,
þótt svo kunni að verða í ein-
hverjum mæli, heldur til að jafna
lífsaðsöðu borgaranna í landinu.
Á því byggist nýting gæða lands-
ins og sjávarins og alhliða fram-
farir, að lífvænleg svæði á öllu
landinu haldist í byggð og eflist að
alhliða aðstöðu.
Sem stendur hefur ekki þótt
tímabært af opinberri hálfu að við-