Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1968, Side 16

Frjáls verslun - 01.07.1968, Side 16
14 FRJÁLS VERZLUN sem unnt er að kaupa tryggingu gegn, og er einstaklingum og öðr- um í sjálfsvald sett, hvort þeir gera það. Því miður vanrækja menn oft að vátryggja sig gegn tjóni, sem ef til vill ríður þeim að fullu fjár- hagslega. er það skellur yfir líkt og brimskafl. Sannast þá að: ,,Vits lér vá, en vells eigi“, þ. e. „Skað- inn gerir mann hygginn, en ekki ríkan.“ Það er gaman að minnast þess, að á þjóðveldistímanum settu ís- lendingar lagaákvæði um gagn- kvæma ábyrgð á búfé og eldsvoða, sem bundin var við bændur í sama hreppsfélagi, sbr. Staðarhólsbók Grágásar. Þessi ábyrgð náði þó ekki til þess að bæta nema allt að helm- ing tjónsins. Til þessara fornu lagaákvæða má ef til vill rekja hið fornkveðna: „Betri er hálfur skaði, en allur.“ Á þeim tímum þekktust ekki hliðstæð lagaákvæði með öðrum norrænum þjóðum. Segja má með sanni, að með allri tryggingastarfsemi beri menn hvers annars byrðar. Er það ánægjulegt fyrir oss ís- lendinga, að tryggingarstarfsemin hefur aukizt og dafnað hér á landi síðustu fimmtíu árin, svo sem raun ber vitni, þrátt fyrir skálmöld þá, sem ríkt hefur víða um heim á þessu tímabili. í þessari þróun hefur Sjóvá- tryggingarfélag íslands h.f. átt drjúgan þátt. Megi heilbrigð vátryggingar- starfsemi vaxa og blómgast í landi voru um alla framtíð, til heilla fyrir land og lýð.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.