Frjáls verslun - 01.07.1968, Side 17
FRJÁLS; VERZLUN
15
STEFÁN G. BJÖRNSSON forstjóri:
HÁLFRAR ALDAR STARF
Stofnun Sjóvátryggingarfélags íslands h.f. var fyrsta sporið,
sem stigið var hér á landi af einstaklingum, til að reka sjálf-
stœtt, innlent tryggingafélag.
Stofnun Eimskipafélags íslands
li.f., árið 1914, var merkasta fé-
lagsstofnun þess tíma, enda varð
þátttaka almenn, bæði hér á landi
og meðal íslendinga í Vesturheimi.
Eitt íslenzkt tryggingafélag var
stofnað hér um líkt leyti, Bruna-
bótafélag íslands, sem var ríkis-
stofnun, og er svo enn í dag, en
það félag tók þá eingöngu að sér
brunatryggingar húseigna utan
Reykjavíkur, en Reykjavíkur-
kaupstaður keypti þá sínar húsa-
tryggingar í Danmörku.
Elzta og stærsta tryggingahluta-
félag landsins, Sjóvátryggingarfé-
lag íslands h.f., var stofnað þrem-
ur árum síðar, og er það því 50
ára um þessar mundir. Var það
stofnað 20. október 1918, en hóf
starfsemi sína 15. janúar 1919.
Að stofnun félagsins stóðu 24
mikilsmetnir atvinnurekendur,
aðallega í Reykjavík, og voru
margir þeirra þeir sömu og stóðu
að stofnun Eimskipafélagsins, en
aðalframkvæmdir við undirbúning
að stofnun félagsins höfðu þeir
Sveinn Björnsson, yfirdómslög-
maður, síðar forseti íslands,
og Ludvig Kaaber, bankastjóri
Landsbanka íslands.
Þessir 24 atvinnurekendur voru
yfirdómslögmennirnir Axel V.
Tulinius og Sveinn Björnsson.
ræðismennirnir Ásgeir Sigurðsson
og Jes Zimsen, stórkaupmennirnir
Carl Olsen, Carl Proppé, Garðar
Gíslason. Geo Copland, Hallgrím-
ur Benediktsson, Hallgrímur A.
Tulinius, John Fenger og Olgeir
Friðgeirsson, bankastjórarnir Lud-
vig Kaaber og Sighvatur Bjarna-
son, framkv.stjórarnir Jón Ólafs-
son, fyrir Fiskveiðihlutafélagið
Alliance, Pétur Thorsteinsson,
fyrir Hauk h.f., Ólafur Thors og
Richard Thors, fyrir Kveldúlf h.f.,
og Þórarinn Böðvarsson fyrir
Víði h.f., útgerðarmennirnir Har-
aldur Böðvarsson, Loftur Lofts-
son og Th. Thorsteinsson, Halldór
Kr. Þorsteinsson, skipstjóri, og
Hallgrímur Kristinsson, forstjóri,
fyrir sjálfan sig og Samband ís-
lenzkra samvinnufélaga.
Af stofnendum, eða þeim, sem
á stofnfundi mættu, eru nú á lífi
þeir Carl Olsen og Richard Thors
og eru þeim hér með þökkuð
þeirra brautryðjendastörf og sam-
skipti í áratugi.
Stofnun þessa félags var fyrsta
sporið, sem stigið var hér á landi
af einstaklingum, til að reka sjálf-
stætt, innlent tryggingahlutafélag.