Frjáls verslun - 01.07.1968, Page 18
16
FRJALS VERZLUN
Fyrsti formaður félagsstjórnar-
innar var Ludvig Kaaber, banka-
stjóri, en aðrir í stjórn voru
þeir Sveinn Björnsson, sem varð
annar formaður félagsstjórnar-
innar, 1924—1926, Jes Zimsen,
ræðismaður, sem varð þriðji for-
maður stjórnarinnar, til dauða-
dags 3. janúar 1938, Hallgrímur
Kristinsson, forstjóri, og Halldór
Kr. Þorsteinsson, skipstjóri, sem
varð fjórði stjórnarformaðurinn,
frá 1938 til 1964.
Hefur enginn af stjórnendum
félagsins átt þar eins langa setu
og Halldór heitinn Þorsteinsson,
eða í rúmlega 45 ár, og þar aí
stjórnarformaður í rúmlega 25 ár.
Fullyrða má, að engum einstakl-
ingi á félagið jafnmikið að þakka
og þessum mikla brautryðjanda
og athafnamanni á sviði útgerðar
og atvinnumála.
Margir athafnamenn á sviði út-
gerðar, kaupsýslu og iðnaðar,
aðrir en þeir, sem áður hafa ver-
ið nefndir, hafa átt sæti í stjórn
Axel V. Tulinius,
fyrsti framkvæmdastjóri.
félagsins á undanförnum 50 árum
og nú eru horfnir af sjónarsviði
voru, að einum undanskildum,
svo sem þeir John Fenger, stór-
kaupmaður, Aðalsteinn Kristins-
son, framkvæmdastjóri, Hallgrím-
ur A. Tulinius, stórkaupmaður,
Lárus Fjeldsted, hæstaréttarlög-
maður, Guðmundur Ásbjörnsson,
kaupmaður, Hallgrímur Bene-
diktsson, stórkaupmaður, og Geir
Hallgrímsson, borgarstjóri.
Núverandi stjórn er skipuð
þeim Sveini Benediktssyni, fram-
kvæmdastjóra, sem er formaður
félagsstjórnarinnar, Ágústi Fjeld-
sted, hæstaréttarlögmanni, sem er
varaformaður, Ingvari Vilhjálms-
syni, útgerðarmanni, Birni Hall-
grímssyni, stórkaupmanni og
Teiti Finnbogasyni, framkvæmda-
stjóra.
Nær frá fyrstu tíð hefur lög-
fræðiskrifstofa Lárusar heitins
Fjeldsted annazt lögfræðiþjónustu
fyrir félagið. Síðar urðu meðeig-
endur hans Theodór Líndal, pró-
fessor. síðar Benedikt Sigurjóns-
son, hæstaréttardómari, og Ágúst
Fjeldsted. Er sú skrifstofa nú
rekin af hæstaréttarlögmönnun-
um Ágústi Fjeldsted og Benedikt
Blöndal.
Fyrsti framkvæmdastjóri félags-
ins var ráðinn Axel V. Tulinius,
yfirdómslögmaður, en hann hafði
þá um nokkurt skeið rekið hér
umboðsskrifstofu, bæði fyrir sjó-,
bruna- og líftryggingar. Hann
lét af störfum árið 1933 og varð
Brynjólfur Stefánsson, magister í
tryggingastærðfræði. eftirmaður
hans, en hann hafði verið skrif-
stofustjóri félagsins frá því nokkru
eftir að hann kom heim frá námi,
árið 1927.
Brynjólfur Stefánsson lét af
störfum 1. desember 1957, sökum
vanheiisu, og tók núverandi fram-
kvæmdastjóri, Stefán G. Björns-
son, við framkvæmdastjórastörf-
um af honum. Hann hafði þá ver-
ið aðalgjaldkeri félagsins frá 1926
og jafnframt skrifstofustjóri frá
1938. Áður hafði hann unnið hjá
Vátryggingastofu A. V. Tulinius.
frá því í október 1922, og hefur
því starfað að vátryggingum í
rétt 46 ár, á þessum merku tíma-
mótum félagsins.
Undir forystu þessara manna
hefur félagið vaxið og eflzt og er
nú stærsta tryggingahlutafélag
landsins, eins og það ávallt hefur
verið Árvekni forystumanna í
stjórn félagsins hefur hér einnig
verið þung á metaskálunum.
Sjóvátryggingar.
Eins og nafn félagsins bendir til,
var fyrsta markmið þess að taka
að sér sjóvátryggingar, bæði
skipatryggingar og farmtrygg-
ingar. Smátt og smátt hefur það
fært út kvíarnar, eítir því sem
ástæður hafa verið til, og rekur
nú orðið allar greinar innlendrar
tryggingastarfsemi, svo og erlend-
ar og innlendar endurtryggingar.
Er Sjóvátryggingarfélagið meðal
stærstu fyrirtækja og atvinnurek-
enda landsins.
Brunatryggingar.
í stjórnartíð Axels V. Tulinius,
eða 1. júlí 1925, stofnaði félagið
Brynjólfur Stefánsson,
annar framkvæmdastjóri.
nýja tryggingadeild. fyrir bruna-
tryggingar, en hann lagði þá nið-
ur umboð sín fyrir dönsk bruna-
tryggingafélög, á sama hátt og
hann haíði í upphafi lagt niður
umboð sín fyrir dönsk sjóvá-
tryggingafélög. Á tímabili annað-
ist félagið brunatryggingar hús-
eigna í Reykjavík. Húsatrygging-
ar í Reykjavík hafa nú um langt
árabil verið reknar ai sérstakri
borgarstofnun, Húsatryggingum
Reykjavíkur.
Undir forystu Brynjóifs Stefáns-
sonar bætti félagið áfram við nýj-
um tryggingagreinum.
Líftryggingar.
Á árinu 1933 var hafinn undir-
búnmgur að stofnun líftrygginga-
félags hér í borg. Voru þar að