Frjáls verslun - 01.07.1968, Page 20
1B
FRJÁLS VERZLUN
verki nokkrir þekktir borgarar og
þar á meðal þáverandi fram-
kvæmdastjóri félagsins, Brynjólf-
ur Stefánsson og dr. Ólafur Dan
Daníelsson, sem síðar varð fyrsti
aktúar félagsins. Samkvæmt
fundargerð 18. október 1933 voru
mættir á fundi, auk framan-
greindra, þeir Jón Þorláksson,
bæjarstjóri, Guðmundur Ás-
björnsson, kaupmaður, Jón Ás-
björnsson, hæstaréttarlögmaður,
og dr. med. Halldór Hansen.
Úr stofnun sérstaks líftrygg-
ingafélags varð þó ekki, en 1. des.
ember 1934 stofnaði félagið sér-
staka líftryggingadeild, sem þá
strax gat tekið til starfa, enda
hafði áður verið unnið að undir-
búningi þess og samið við endur-
tryggjendur í Danmörku. Tók
deildin þá strax að sér allar teg-
undir líftrygginga og lífeyris-
trygginga. Hafði félagið forgöngu
um stofnun ýmissa lífeyrissjóða,
þar á meðal fyrir starfsmenn fé-
lagsins strax árið 1935, og seldi
þeim bæði dánarbóta- og lífeyris-
tryggingar. Síðar meir var grund-
velli kiopt undan slíkri trygg-
ingastarfsemi fyrir lífeyrissjóði,
þar sem ekki reyndist unnt að
fyigja verðbólgunni.
Nokkru síðar keypti félagið
líftryggingastofn „Thule“ í Stokk-
hólmi. sem hér hafði rekið líf-
tryggingaumboð í tugi ára, lengst
af af Vátryggingastofu A. V.
Tulinh's. Síðan vfirtók félagið líf-
tryggingastofn „Svea“ í Gauta-
borg, „Skandia“ og „Tryg“ og síð-
ast árið 1947 líftryggingastofn
..Danmark“ i Kaupmannahöfn, en
það félag rak um langt árabil eitt
af stærstu líftryggingaumboðum
hér.
Bifreiðatryggingar.
Undirbúningur að stofnun bif-
reiðatryggingadeildar var hafinn
á árinu 1936 og tók deildin til
starfa 2. janúar 1937. Jafnframt
stofnun þeirrar deildar yfirtók fé-
lagið tryggingastofn ..Danske
Llovd“, sem hér hafði rekið um-
boðsskrifstofu um langt árabih
Bifreiðatryggingadeildin hefur um
alllangt skeið verið til húsa í
eigin húsnæði að Laugavegi 176
og er starfsemi frjálsra ábyrgðar-
trygginga rekin þar jafnframt..
Frjálsar ábyrgðartryggingar.
Frá ársbyrjun 1953 hefur fé-
lagið tekið að sér frjálsar ábyrgð-
artryggingar og var það samtímis
og önnur innlend félög. Eru slik-
ar tryggingar endurtryggðar hér
á innanlandsmarkaði, þannig að
flest tryggingafélögin hér, ásamt
íslenzkri endurtryggingu, endur-
tryggja gagnkvæmt og mynduðu
um það heildarsamtök, er nefnast
Tryggingasamsteypa frjálsra á-
byrgðartrygginga.
Ýmsar tryggingar.
Auk þeirra tryggingagreina,
sem þegar hafa verið nefndar, tek-
ur félagið að sér allar eða allflest-
ar tegundir trygginga, svo sem
flugvélatryggingar, jarðskjálfta-
tryggingar, ferða- og slysatrygg-
ingar, rekstursstöðvunartrygging-
ar vegna bruna- og vélastöðvun-
ar, byggingatryggingar o. fl. o. fl„
svo sem stríðstryggingar, bæði á
friðar- og stríðstímum.
í upphafi var skrifstofa félags-
ins til húsa í húsi Nathan & Olsen
nú Reykjavíku” Aoótek Eftir
bvggingu húss Eimskipafélags ís-
londs voru skrifstofur þess þar
óslitið til ársins 1957. Flutti aðal-
skrifstofan þá í eigið húsnæði í
Ingólfsstræti nr. 5, en bifreiða-
t vgginea- voru áð'”- fluttar í
Borgartún 7. Er öll starfsemi
félagsins því nú í eigin húsnæði, í
In.eóUsstræti 5 og að Laugaveai
176
Félagið var stofnaðili að Stríðs-
tryggingafélagi íslenzkra skips-
hafna, sem síðar var með sérstök
um lögum breytt í íslenzka endu -
tryggingu, og heíur lengst af átt
þar fulltrúa í stjórn, fyrst Brynjólf
Stefánsson og síðar Stefán G.
Björnsson. Er það mikill hagur
fyrir félögin, að hér skuli vera
starfrækt íslenzkt endurtrygg-
ingafélag, og hafa þau flest veru-
leg viðskipti við það félag.
Fyrir rúmlega 8 árum stofn-
uðu innlendu tryggingafélögin
heildarsamtök, Samband íslenzkra
tryggingafélaga, og var fram-
kvæmdastjóri félagsins, Stefán G.
Björnsson, formaður þess fyrstu
6 árin og á nú sæti í stjórn þess.
Sambandið rekur m. a. skóla fyr-
ir starfsfólk félaganna, Trygginga-
skólann. Hefur Sambandið sér-
stakan framkvæmdastjóra, sem nú
er Bjarni Þórðarson, trygginga-
fræðingur. Er það til húsa að
Hverfisgötu 116 og er skólinn
starfræktur þar undir stjórn sér-
stakrar skólanefndar.
Flest innlendu brunatrygginga-
félögin og umboðsmenn erlendia
brunatryggingafélaga hafa allt fiá
árinu 1944 haft með sér samtök,
er nefnast Samband brunatryggj
enda á íslandi. og sérstaka ið-
gjaldanefnd. svipað og er á Norð-
urlöndum. Brynjólfur Stefánsson
var lengi framan af formað’ir
þessa sambands, en núverandi for-
maður er Stefán G. Björnssor.
Áður hefur verið getið T-vgg-
ingasamsteypu frjálsra ábyrgðar-
trygginga. en einnig hafa félögin
með sér önnur samtök, svo sem
Samtök islenzkra sjótryggienda
og Samband slysatryggjerd.;>.
Skintast félögin þar á upplýsing-
um og ræða ýmis hagsmunamá!
Áður hefur verið getið Lífevris-
sióðs starfsmanna félagsins. sem
stofnaður var árið 1935. Er hann
Fyrsta stjórn félagsins var skipuð Sveini Björnssyni, Jes Zimsen, ræð-
ismanni, Ludvig Kaaber, bankastjóra, Hallgrími Kristinssyni forstjóra
og Halldóri Kr. Þorsteinssyni, skipstjóra.